Ríkisendurskoðun taldi sig ekki hafa svigrúm til að álykta um lögbrot

Í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um einka­væðingu 22,5 prósenta hlutar í Íslands­banka segir að það sé ekki hlutverk stofn­un­ar­innar að álykta um hvort lög hafi verið brotin. Það sé á verksviði annarra að gera.

Skoðaði málið
Skoðaði málið Rík­is­end­ur­skoð­andi Guð­mundur Björgvin Helgason fór fyrir rann­sókn­inni á Íslands­banka­söl­unni í mars. Mynd: Ríkisendurskoðun

Strax í upphafi skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um einka­væðingu 22,5 prósenta hlutar ríkisins í Íslands­banka, sem framkvæmd var í mars á þessu ári, er sérstak­lega tekið fram að stofnunin telji sig ekki hafa svigrúm til að taka afstöðu um laga­ákvæði. Stofnunin starfi eftir lögum um ríkis­endur­skoðanda og endur­skoðun ríkis­reikninga, sem feli í sér eftirlit með fjárhags­legum hagsmunum ríkisins. Aðrir skoði lögbrot.

„Það fellur utan hlutverks Ríkis­endur­skoðunar að taka afstöðu til ágreinings­efna um laga­túlkun og ber embættinu að gæta varúðar að álykta almennt um túlkun og skýringu laga, enda er öðrum aðilum falið það hlutverk að lögum,“ segir á síðu þrjú í skýrslunni.

Fjölmargar athuga­semdir eru gerðar við einka­væðinguna í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar og virðist fátt í ferlinu hafið yfir gagnrýni. 

Sumt af því sem er gagnrýnt, svo sem vinnu­brögð söluaðila og umsjónar­aðila útboðsins og hvort sölunni hafi verið beint að öðrum en hæfum fjár­festum, er til rann­sóknar annars …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár