Söfnuðu tilboðum í eitt stórt Excel-skjal

Tilboðum í hluti ríkisins í Íslands­banka var safnað saman í Excel-skjölum sem síðan voru sameinuð í eitt stórt skjal hjá Íslands­banka. Ríkis­endurskoðun uppgötvaði í sumar að sumar tölur í skjalinu hafi verið rangt skrifaðar svo þær reiknuðust ekki með þegar unnið var með skjalið á söludegi.

Ríkis­endurskoðun gagnrýnir hvernig haldið var utan um tilboð þegar 22,5 prósenta hlutur ríkisins í Íslands­banka var seldur í mars á þessu ári. Sölu­aðilar fengu sent Excel-skjal frá Íslands­banka sem þeir áttu að fylla út í og senda til baka með þeim tilboðum sem bárust frá fjár­festum. Gögnunum var svo safnað saman í eitt stórt Excel-skjal sem vistað var miðlægt í Microsoft Teams, sem er ský- og samskipta­þjónusta sem margir vinnu­staðir nota, og var skjalið uppfært þar eftir því sem tilboð bárust. 

Enginn annar hugbúnaður en Excel var til staðar hjá Íslands­banka, sem sjálfur var einn þriggja söluaðila í útboðinu. 

„Á fundi Ríkis­endur­skoðunar með Íslands­banka í ágúst 2022 fullyrti bankinn að sérhannað kerfi sem hefði komið að notum væri ekki aðgengilegt hér á landi enda væri það talið of kostnaðar­samt í ljósi þess hve fáar sambærilegar sölur fari fram hér á landi,“ segir í …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið undanfarið ár