Skammlíf gjaldeyrismiðlun í Hafnartorgi

Fyrir­tækið FX Iceland, sem opnaði gjald­eyr­is­skipta­stöð á Hafnar­torgi árið 2020, hefur að eigin ósk verið tekið af lista Seðla­bankans yfir aðila sem veita gjaldeyris­skipta­þjónustu. Fjármála­eftirlitið gerði miklar athuga­semdir við starfsemi fyrir­tækisins.

FX Iceland starfrækti gjaldeyrisskiptastöð á Hafnartorgi frá því árið 2020.
FX Iceland starf­rækti gjald­eyr­is­skipta­stöð á Hafn­ar­torgi frá því árið 2020.

Fyrir­tækið FX Iceland ehf., sem hóf rekstur gjaldeyris­skipta­stöðvar í upphafi kórónu­veiru­faraldursins, hefur óskað eftir því að verða fellt af skrá Seðla­bankans yfir aðila sem veita gjaldeyris­skipta­þjónustu og hefur Seðla­bankinn orðið við þeirri beiðni.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Seðla­bankanum í dag, en í sumar sektaði fjármála­eftirlit bankans fyrir­tækið um 2,7 milljón fyrir marg­háttuð og alvarleg brot á lögum um aðgerðir gegn peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Eins og Kjarninn fjallaði um í ágúst var málinu lokið með sátt milli FX Iceland og fjármála­eftirlitsins, en athugun eftirlitsins hafði leitt í ljós víðtæka veikleika sem fólu í sér alvarleg brot gegn grundvallar­þáttum í vörnum gegn peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Fjármála­eftirlitið hefur heimild til þess að leggja allt að 500 milljón króna stjórnvalds­sekt á fyrirtæki vegna brota á ákvæðum laganna, en horfði auk annars til þess við sektar­ákvörðunina að umfang starfseminnar væri lítið, að fyrir­tækið hefði nýlega hlotið skráningu sem gjaldeyrisskiptastöð og einnig sýnt samstarfs­vilja við meðferð málsins, með því að gera að fyrra bragði áætlun um úrbætur og upplýsa og framgang þeirra.

Eigendur FX Iceland, sem fékk starfs­leyfi um mitt ár 2019 og opn­aði gjald­eyr­is­skipta­stöð á Hafn­ar­torgi í Reykjavík snemma árs 2020, eru hjónin Berg­sveinn Samp­sted, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Valitor og Hrönn Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs Sýn­ar.

Fyrir­tækið var með rúmar 28 millj­ónir króna í rekstr­ar­tekjur í fyrra og tap­aði rúmum 1,2 milljónum króna. Árið áður hafði tapið einnig verið rúm milljón.

Annmarkar á flestum þáttum sem skoðaðir voru

Fjármála­eftirlitið réðst í vettvangs­rannsókn hjá fyrir­tækinu í nóvember 2020 og kom sú vettvangs­rannsókn illa út, samkvæmt því sem fram kemur í samkomu­lagi um sáttinna milli fyrir­tækisins og fjármála­eftirlitsins sem birt var í sumar.

„Í ljós komu ann­markar sem snéru að aðgerðum máls­að­ila gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Voru ann­markar taldir vera á flestum þáttum sem teknir voru til skoð­un­ar, m.a. áhættu­mati máls­að­ila á rekstri sínum og við­skipt­um, fram­kvæmd áreið­an­leikakann­ana, reglu­bundnu eft­ir­liti, verk­ferlum, til­kynn­ingum til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu (SFL) og varð­veislu gagna,“ sagði í samkomu­laginu.

Einnig kom fram í skjalinu að fyrir­tækið hefði stundað viðskipti við tvo aðila eftir að Skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu, sem sinnir eft­ir­liti með pen­inga­þvætti, sendi til­kynn­ingu um grun­sam­leg við­skipti vegna þeirra.

Þá leiddu upp­lýs­ingar um 20 stærstu við­skipta­menn fyrir­tækisins í ljós að í öllum til­vikum var um við­var­andi við­skipta­sam­band að ræða þar sem sömu ein­stak­ling­arnir komu ítrekað með háar fjár­hæðir án þess að máls­að­ili óskaði frek­ari upp­lýs­inga eða stað­fest­inga þeim tengd­um.

Þá kom einnig fram í vett­vangs­rann­sókn­inni að FX Iceland óskaði ekki eftir því að við­skipta­menn sem stund­uðu við­skipti að jafn­virði 150 evrur eða minna gerðu grein fyrir sér með nafni eða per­sónu­skil­ríkj­um. Í kerfum fyr­ir­tæk­is­ins voru slíkir við­skipta­menn merktir sem „walk-in” og frek­ari upp­lýs­ingar um þá ekki skráð­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár