Stjórnandi vogunarsjóðs segir tortryggni Íslendinga tilhæfulausa

Financial Times fjallar um kaup vogunar­sjóða á hlut í Arion og greinir jafnframt frá hugmyndum fjármála­ráðherra um að tengja íslensku krónuna við aðra mynt.

Frank Brosens, einn af stofn­endum vogunar­sjóðsins Taconic Capital, fullyrðir að tortryggni íslensks almennings gagnvart sölunni á hlut í Arion banka, sé að miklu leyti tilhæfu­laus. Þetta kemur fram í viðtali við hann sem birtist í Financial Times í gær. Tilkynnt var um kaup Taconic á 9,9 prósenta hlut í Arion banka þann 19. mars en Frank fullyrðir að Taconic sækist hvorki eftir stjórnar­setu í Arion banka né áhrifum innan hans. 

Vogunar­sjóðurinn Taconic Capital var stofnaður árið 1999 og með eignir að virði 6 milljarða dollara í stýringu. „Taconic Capital annast stýringu fjár­festinga­sjóða sem eru með seljanleika í samræmi við fjár­festinguna í Arion banka. Fjár­festar eru einkum stofnana­fjárfestar, lífeyris­sjóðir, styrktar­sjóðir og fjár­sterkir einstaklingar,“ segir í tilkynningu sem birtist á vef Arion banka þegar greint var frá sölunni. Frank Brosens starfaði hjá fjármála­risanum Goldman Sachs um árabil, en Goldman Sachs kemur einnig að kaupunum í Arion banka gegnum dóttur­félagið ELQ Investors II Ltd.

Í frétt Financial Times er rætt við Benedikt Jóhannesson fjármála­ráðherra og haft eftir honum að til skoðunar sé að tengja íslensku krónuna við annan gjald­miðil. Fram kemur að honum finnist „absúrd“ að tengja krónuna við Kanada­dollar eða norsku krónuna, enda hafi gengi þeirra gjald­miðla fallið meðan íslenska krónan hafi styrkst umtals­vert síðustu mánuði. 

Haft er eftir Benedikt að enn ríki sundrung á Íslandi þrátt fyrir uppganginn í efnahags­lífinu. Fólk hafi orðið fyrir mikilli kjara­skerðingu og Ísland hafi náð sér á strik efnahags­lega en ekki félags­lega. „Fólk er enn reitt og tortryggið gagnvart viðskiptum, bönkum og stjórn­málamönnum,“ segir hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár