Breyta áformum og þyrma Straumstjörnum

Vega­gerðin ákvað á síðustu metrum umhverfis­mats að endur­skoða veghönnun við tvöföldun síðasta kafla Reykja­nesbrautar. Straum­stjörnum, sem eru einstakar á heimsvísu, verður ekki raskað.

Straumsvík og Straumstjarnir eru á náttúruminjaskrá.
Straums­vík og Straum­stjarnir eru á nátt­úru­minja­skrá. Mynd: Olga Kolbrún Vilmundardóttir/Náttúrufræðistofnun Íslands

Ekki verður þrengt að Straumstjörnum umfram það sem þegar hefur verið gert við tvöföldun síðasta kafla Reykja­nesbrautar. Í tjörnunum við Straumsvík gætir sjávar­falla í fersku vatni og eiga þær sér fáar líkar á jörðinni. Á þetta lögðu Hafrannsóknarstofnun, Náttúru­fræði­stofnun og Umhverfis­stofnun áherslu í umsögnum sínum í umhverfis­mats­ferli hinnar fyrir­huguðu framkvæmdar Vega­gerðarinnar og bentu á neikvæð áhrif sem hún myndi hafa á lífríki og ásýnt tjarnanna. Ákvað Vega­gerðin í kjölfarið að endur­skoða veghönnunina á þessum kafla.

Tveir valkostir voru kynntir í frummats­skýrslu sem auglýst í var í sumar og í báðum þeirra var gert ráð fyrir því að þrengt yrði að tjörnunum. Frá þessu hefur nú verið horfið í endanlegri mats­skýrslu stofnunarinnar og verður ekki farið með vegi, hjóla- eða göngu­stíga út í tjarnirnar líkt og lagt var til áður. Núverandi vegur hefur þegar þrengt mikið að tjörnunum en með tvöföldun hans verður þeim ekki raskað umfram það sem þegar hefur verið gert.

Í mats­skýrslu Vega­gerðarinnar segir að „í ljósi eindreginnar áherslu Hafrannsókna­stofnunar og fleiri aðila á að þrengja ekki að fjöru­svæði Straumstjarna“ ásamt athuga­semdum ISAL er varða öryggi gangandi og hjólandi, hafi verið ákveðið að endur­skoða veghönnunina á þessum kafla. Hingað til hafi hönnun miðast við að koma tvöföldun Reykja­nesbrautar fyrir á núverandi brú við Straumsvík. Svigrúm til að koma veglínunni frá Straumstjörnum var því ekki til staðar auk þess sem gert var ráð fyrir bráðabirgða­tengingu við Straum frá hringtorgi við ISAL.

Breytt veghönnun hefur í för með sér að brúin við Straumsvík verður breikkuð til að koma akbrautum fyrir auk þess sem sérstökum undir­göngum fyrir göngu- og hjólastíg verður bætt við til hliðar við aksturs­göngin. Með því er unnt að sveigja veglínuna meira til suðurs sem skapar rými fyrir aðrein frá ISAL til vesturs án þess að fara út í Straumstjarnir. Þá hefur verið ákveðið að gera undirgöng fyrir gangandi og hjólandi á móts við Straum og tengja þau stíga­kerfi Hafnar­fjarðar sem nú er í deili­skipulags­ferli.

Skipulags­stofnun hefur gefið álit sitt vegna áforma Vega­gerðarinnar um breikkun Reykja­nesbrautar frá Krýsuvíkur­vegi að Hvassahrauni í Hafnar­firði. Í álitinu er breyttum áformum Vega­gerðarinnar fagnað, ákvörðunin sögð jákvæð og til þess fallin að draga verulega úr umhverfis­áhrifum fyrir­hugaðar framkvæmdar að því marki að áhrif á tjarnir og vatnalíf eru ekki líkleg til að verða neikvæð.

Stofnunin leggur ríka áherslu á að brýnt verði fyrir verktökum í útboðs­gögnum að tjörnunum verði á engan hátt raskað. Skipulags­stofnun telur líka að Vega­gerðin hafi sýnt fram á að fyrir­huguð veglagning muni ekki hindra grunn­vatns­rennsli til tjarnanna og að „ferska grunn­vatnið og jarð­sjórinn undir muni áfram sveiflast í takt við sjávar­föll og grunn­vatnsins“.

Skipulags­stofnun telur að mats­skýrsla Vega­gerðarinnar uppfylli skilyrði laga og reglu­gerðar um mat á umhverfis­áhrifum. Um er að ræða breikkun Reykja­nesbrautar í Hafnar­firði frá Krýsuvíkur­vegi að enda fjögurra akreina brautarinnar við Hvassahraun vestan Straums­víkur á um 5,6 km kafla í 2+2 aðskildar akreinar. Þá er fyrir­hugað að breyta mislægum vegamótum við álverið í Straumsvík, byggja mislæg vegamót við Rauðamel, útbúa vegtengingu að Álhellu og tengingu að dælu- og hreinsistöð austan Straums­víkur. Tilgangur og markmið framkvæmdarinnar er fyrst og fremst að auka umferðar­öryggi og greið­færni.

Vernduðum hraunum raskað

Um er að ræða umfangs­miklar framkvæmdir, segir í áliti Skipulags­stofnunar, en áhrifa­svæði þeirra hefur mismikið gildi með tilliti til náttúru­fars. Við fyrir­hugaðar framkvæmdir mun hraunum sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt lögum um náttúru­vernd verða raskað en stofnunin segir ljóst að þeim hafi verið raskað nú þegar vegna núverandi vegar og ýmissa annarra framkvæmda en í mismiklum mæli þó.

Stofnunin telur talsverð neikvæð áhrif verða vegna vega­framkvæmda á Hrúta­gjár­dyngjuhraun sem hafi hátt verndar­gildi. „Mikilvægt er að raski verði haldið í algjöru lágmarki og að breidd framkvæmda- og öryggis­svæðis verði skilgreint eins þröngt og kostur er í samráði við Umhverfis­stofnun,“ segir í áliti Skipulags­stofnunar. Þar er bent á að bæði Skúlatúns­hraun og Kapellu­hraun séu nú þegar mikið röskuð og áhrif veglagningar því nokkuð neikvæð.

Landslag og ásýnd svæðisins einkennist af hraunum einkum á vestur­hluta framkvæmda­svæðisins sem eru að mestu óröskuð fyrir utan núverandi veg. Umhverfi austar á framkvæmda­svæði einkennist hins vegar af röskuðum svæðum og mann­virkjum. Áhrif fyrir­hugaðra framkvæmda á ásýnd svæðisins eru því í megin­atriðum svipuð og á jarð­myndanir og munu áhrif svo umfangs­mikilla framkvæmda verða talsvert neikvæð á vestari hluta en óveruleg á eystri hluta í nágrenni álversins og iðnaðar­svæðisins. Skipulags­stofnun telur að umfang neikvæðra áhrif til lengri tíma litið fari eftir því hvernig til tekst með frágang og leggur stofnunin áherslu á mikilvægi þess að dregið verði eins og kostur er úr umfangi skeringa og öryggis­svæða utan vegarins.

Áforma að færa blátoppu í öruggt skjól

Óröskuðu hraunin eru mosa- og kjarrivaxin og óhjá­kvæmilega mun sá gróður raskast innan framkvæmda­svæðisins en slíkar vist­gerðir hafa miðlungs til mjög hátt verndar­gildi. Auk þess er hætta á að tegundir á válista kunni að verða fyrir raski. Ein þeirra, blátoppa, vex á svæðinu og bendir Vega­gerðin í mats­skýrslu sinni á þá mögulegu mótvægis­aðgerð að flytja þær út fyrir framkvæmda­svæðið. Náttúru­fræði­stofnun tekur undir þennan tilflutning en segir að erfitt geti reynst að flytja ferlaufung eða burkna­tegundir líkt og Vega­gerðin leggur einnig til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár