Lokakaflinn við tvöföldun Reykjanesbrautar að hefjast

Skipulags­ferli og mat á umhverfis­áhrifum tvöföldunar Reykja­nesbrautar við Straumsvík er hafið. Á kaflanum er gert ráð fyrir mislægum gatna­mótum og undir­göngum fyrir hjólandi og gangandi. Lífríkið er viðkvæmt og á áhrifa­svæðinu er fjöldi fornminja.

Yfirlitsmynd yfir Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Á myndinni er einungis sýndur einn valkostur. Rauð punktalína afmarkar rannsóknarsvæðið.
Yfir­lits­mynd yfir Reykja­nes­braut í Hafn­ar­firði. Á mynd­inni er ein­ungis sýndur einn val­kostur. Rauð punkta­lína afmarkar rann­sókn­ar­svæðið. Mynd: Úr frummatsskýrslu

Vega­gerðin áformar að breikka Reykja­nesbraut í Hafnar­firði, frá Krýsuvíkur­vegi að enda fjögurra akreina brautarinnar á Hrauni vestan Straums­víkur. Lengd vegkaflans er um 5,6 kíló­metrar og er þetta eini kaflinn á Reykja­nesbraut, frá Ásbraut í Hafnar­firði að Njarðvík, sem ekki hefur verið breikkaður.

Bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar hefur auglýst tillögu að breytingu á aðal­skipulagi vegna hinnar áformuðu framkvæmdar. Samtímis er frummat­skýrsla um mat á umhverfis­áhrifum hennar auglýst.

Áformað er að breikka veginn í 2+2 aðskildar akreinar, breyta mislægum vegamótum við álverið í Straumsvík, ISAL, útbúa vegtengingar að Straumi og Álhellu, byggja mislæg vegamót við Rauðamel og útbúa tengingu að dælu- og hreinsistöð austan Straums­víkur. Einnig er áformað að byggja undirgöng fyrir gangandi og hjólandi rétt austan við álverið sem og eftirlits­staði fyrir umferðar­eftirlit beggja megin Reykja­nesbrautar, austan við Straumsvík.

Ein megin ástæða framkvæmdarinnar er að auka umferðar­öryggi á umræddum vegkafla, þar sem mikil umferð er um Reykja­nesbrautina og slys nokkuð algeng. Á kaflanum eru sex vegamót eða vegtengingar. Núverandi vegkafli er með eina akrein í hvora átt og eru þær ekki aðskildar.

Samkvæmt umferðaspá er gert ráð fyrir að árdags­umferð við Krýsuvíkur­vegamótin aukist úr um 19 þúsund ökutækjum á sólar­hring árið 2019 í um 43 þúsund ökutæki á sólar­hring árið 2039.

Reykja­nesbraut, eða þjóðvegur 41, liggur frá Sæbraut að Flugstöð Leifs Eiríks­sonar á Reykjanesi í gegnum Hafnar­fjörð. Umræddur vegkafli er eini kafli brautarinnar sem ekki hefur verið tvöfaldaður, en land svæðisins er í eigu Hafnar­fjarðar­bæjar og nokkurra einka­aðila.

Lands­lagið á þessum slóðum einkennist af sléttlendi, hraunum og ísöltum tjörnum og er hluti svæðisins í nálægð við byggingar og iðnaðar­svæði, þ.e. álverið í Straumsvík, Hellna­hraun og geymslu­svæðið Álhellu. Þá liggur Reykja­nesbraut fram hjá útivistar­svæðum. Þrjú svæði innan áhrifa­svæðis fyrir­hugaðrar breikkunar Reykja­nesbrautar eru á náttúru­minjaskrá: Strand­lengjan frá Fögruvík að Straumi, Straumsvík og Hval­eyrarlón og fjörur Hval­eyrarhöfða.

Vegstæðið verður ekki fært, heldur stendur einungis til að breikka núverandi veg.

Í frummats­skýrslu Vega­gerðarinnar, sem verkfræði­stofan Mannvit vann, segir að framkvæmdin muni hafa bein áhrif á jarð­myndanir, þar sem þeim yrði raskað með vega- og stígagerð. Jarð­myndanir innan framkvæmda­svæðisins eru aðallega hraun en þau njóta sérstakrar verndar samkvæmt lögum um náttúru­vernd. Framkvæmdin myndi hafa nokkuð neikvæð varanleg áhrif á Skúlatúns­hraun en engin áhrif á Kapellu­hraun „þar sem ekkert er eftir til að vernda innan áhrifa­svæðis framkvæmdarinnar”. Þá er framkvæmdin talin hafa talsvert neikvæð varanleg áhrif á Hrúta­gjár­dyngjuhraun en framkvæmdin myndi raska hrauninu talsvert, bæði vegna breikkunar vegarins, vegtengingu að Álhellu og vegna mislægra vegamóta við Rauðamel.

Áhrif framkvæmdarinnar á fuglalíf við Reykja­nesbraut, að Straumsvík og Straumstjörnum undan­skildum, eru metin óveruleg til talsvert neikvæð. Í frummats­skýrslu segir að gera megi ráð fyrir að nú þegar séu áhrif Reykja­nesbrautar neikvæð á þéttleika varpfugla, en framkvæmdinni mun engu að síður fylgja varanlegt búsvæðatap, m.a. á óröskuðu svæði.

Umhverfi tjarnanna og strandarinnar við Straum er sérstakt, m.a. vegna hraunsins og þess mikla grunn­vatns­streymis sem þar er. Eitt helsta einkenni tjarnanna í Straumsvík er að þar gætir áhrifa sjávar­falla. Framkvæmdin mun hafa í för með sér rask í nágrenni við tjarnirnar í Straumsvík og hugsanlegt er að áhrifa á grunn­vatns­streymi gæti meira norðan megin við veginn. Ætla má að áhrif breikkunarinnar á vatnalíf tjarnanna í Straumsvík verði talsvert neikvæð, og mjög líklega varanleg og óafturkræf, ef einstakt lífríki tjarnanna raskast. Þá mun tenging Reykja­nesbrautar við Álhellu hafa óbein og nokkuð neikvæð áhrif á vatnalíf Gerðis­tjarnar og Brunn­tjarnarinnar.

Skráðar hafa verið 70 forn­leifar á 48 minja­stöðum innan athugunar­svæðis framkvæmdarinnar, og í frummats­skýrslu segir að gera megi ráð fyrir að hún geti haft áhrif á flestar þeirra. Áhrifa­svæði tvöföldunarinnar fer yfir stóran hluta af frið­helgunar­svæði Kapellu­tóftar, sem er friðlýst fornleif, og yfir heimatún þriggja kotbýla: Péturs­kots, Gerðis og Litla-Lambhaga. Í og við heimatún er minja­dreifin hvað þéttust, og möguleiki á að óþekktar minjar komi í ljós þegar framkvæmdir hefjast.

Almenningi gefst kostur á að kynna sér fyrir­hugaða framkvæmd og frummats­skýrslu í dag, fimmtudaginn 15. júlí. Kynningin verður haldin í húsa­kynnum Vega­gerðarinnar (Mótor­skálanum), Borgar­túni 5-7 í Reykjavík. Húsið verður opið á milli kl. 14 og 18. Á staðnum verða fulltrúar frá Vega­gerðinni og Mannviti.

Allir geta skilað inn athuga­semdum við frummat­skýrsluna og tillögu að aðal­skipulags­breytingum. Þær skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. ágúst næst­komandi til Skipulags­stofnunar bréfleiðis eða með tölvu­pósti á skipulag@skipulag.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár