Mikil olíuverðshækkun á skömmum tíma

Heims­markaðsverð á olíu hefur hækkað um 30 prósent á tveimur mánuðum.

Verð á tunnu af hráolíu hefur hækkað mikið á skömmum tíma, eða um 30 prósent á síðustu tveimur mánuðum. Sé horft fjóra mánuði aftur í tímann er hækkunin rúmlega 40 prósent.

Verðið á tunnunni er nú 64 Bandaríkja­dalir en það var um 42 Bandaríkja­dalir í byrjun ársins.

Miklar sveiflur hafa einkennt heims­markað með olíu undan­farin misseri, en þegar það fór hæst á síðasta ári, í október, fór það í 75 Bandaríkja­dali. Það hrundi síðan niður undir lok ársins og var rúmlega 40 Bandaríkja­dalir, samkvæmt markaðs­upplýsingavef Wall Street Journal.

Þessar miklu sveiflur upp og niður hafa komið fram, meðal annars í kjölfar yfir­lýsinga olíu­framleiðslu­ríkja um að ýmist draga úr fram­leiðslu eða auka hana.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur kallað eftir því að olíu­framleiðslu­ríkin í OPEC samtökunum, auki fram­leiðslu á olíu til að verðið lækki og haldi þannig verðbólgu í skefjum.

Fyrir Ísland getur hröð hækkun olíu skilað sér í aukinni verðbólgu, meðal annars vegna hækkunar á rekstrar­kostnaði fyrir­tækja og hækkunar á fram­leiðslu- og flutnings­kostnaði.

Verðbólga mælist nú 2,9 prósent en verðbólgu­markmiðið er 2,5 prósent. Megin­vextir Seðla­banka Íslands eru 4,5 prósent.

Spár greinenda gera ráð fyrir að verðbólga muni aukast á næstu misserum, meðal annars vegna hækkandi flug­fargjalda, að því er fram kemur í nýlegum spá greiningar­deilda Arion banka og Lands­bankans. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár