Mikil hækkun flugfargjalda í kortunum

Grein­endur bæði Lands­bankans og Arion banka gera ráð fyrir að flug­fargjöld muni hækka verulega á næstu misserum, með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu.

Grein­endur Lands­bankans gera ráð fyrir að verðbólga muni aukast á næstu misserum, og muni mælast 3,2 prósent í apríl. Grein­endur Arion banka spáðu því að verð­bólgan færi í 3,3 prósent, en hún mælist nú 2,9 prósent.

Megin­ástæðan fyrir aukningu verð­bólgunnar er talin vera hækkun á flug­fargjöldum, en í spá Lands­bankans er gert ráð fyrir að 20 prósent hækkun á flug­fargjöldum muni ýta verð­bólgunni upp á við.

„Við gerum ráð fyrir 20 prósent hækkun á flug­fargjöldum til útlanda. Þróun flug­fargjalda til útlanda í mars og apríl fer að mjög miklu leyti eftir því í hvorum mánuði páskarnir lenda. Páskarnir eru mikill ferðatími og eftir­spurn og verð eftir flugi því hærra. Árin 2015, 2016 og 2018 féllu páskar í lok mars/byrjun apríl og var óveruleg breyting á þessum lið milli sömu mánaða. 2017 voru páskar vikuna eftir verð­könnunar­vikuna og hækkuðu flug­fargjöld til útlanda þá um tæp 15%. Í ár eru páskar tveimur vikum á eftir verð­könnunar­viku Hagstofunnar sem skýrir þessa hækkun,“ segir í greiningu Lands­bankans.

Megin­vextir Seðla­banka Íslands eru nú 4,5 prósent, en verðbólgu­markmiðið er 2,5 prósent.

Í greiningu Lands­bankans er enn fremur fjallað um áhrif falls WOW air á þróun flug­fargjalda, og hvernig Hagstofa Íslands hefur verið að vega þátt WOW air inn í vísi­töluna. Síðustu ár hefur Hagstofan byggt verð­mælingar sínar á flugi til útlanda á verði farmiða hjá Icelandair og WOW air. Hlutdeild WOW air var um þriðjungur af vísi­tölunni.

„Flug­fargjöld eru tekin inn í vísi­töluna mánuðinn sem flugið er flogið, en ekki mánuðinn sem flugið er keypt. Alla jafna hefði flug sem keypt var í febrúar og mars og flogið hefði í apríl átt að koma inn í vísi­töluna núna. Hagstofan er í þeirri mjög svo sérstöku stöðu að vera með verð­mælingar á flugi sem ekki verður flogið vegna gjald­þrots WOW air. Það er alls óvíst hvernig Hagstofan mun snúa sér í þessu og þá hvort að einungis verði miðað við verð á keyptum flugmiðum af Icelandair. Flug­fargjöld til útlanda hafa lækkað mikið síðustu ár. Þannig var að meðaltali 12,8% ódýrara að fljúga til útlanda 2018 en 2017 og 15,5% ódýrara 2017 en 2016. Við eigum von á að þessi þróun gangi til baka á þessu ári sökum minna framboðs og minni samkeppni í kjölfar gjald­þrots WOW air en einnig vegna hækkunar olíuverðs,“ segir í greiningu Lands­bankans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár