Spá því að verðbólgudraugurinn fari á flug

Greiningar­deild Arion banka telur að verðbólga muni aukast í þessum mánuði, en hún mælist nú 2,9 prósent.

Greiningar­deild Arion banka spáir því að verðbólga muni fara úr 2,9 prósent í 3,3 prósent í apríl. Ástæðan er meðal annars hækkun á flug­fargjöldum, segir í greiningunni.

„Hækkun á verði flug­fargjalda hefur mest áhrif á vísitölu neyslu­verðs í apríl, en gert er ráð fyrir 12% hækkun (0,17% áhrif á VNV). Hækkunina má fyrst og fremst rekja til yfir­vofandi páskafrís, ekki gjald­þrots WOW air, en við teljum að áhrifin af minni samkeppni á flug­markaði séu ekki komin fram. Af öðrum undir­liðum sem hækka má nefna að eldsneyti hækkar um 2% (0,07% áhrif á VNV), reiknuð húsaleiga hækkar um 0,25% (0,06% áhrif á VNV), húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 0,4% (0,05% áhrif á VNV) og tómstundir 0,3% (0,02% áhrif á VNV),“ segir í greiningunni.

Megin­vextir Seðla­banka Íslands eru nú 4,5 prósent, og verðbólgu­markmiðið er 2,5 prósent.

Í greiningunni segir að útsölu­áhrif á verð­bólguna séu nú gengin til baka. „Okkur sýnist að eftir töf í febrúar hafi áhrifin gengið að fullu til baka í mars. Það vekur athygli að undir­vísitalan tómstundir hefur látið lítið fyrir sér fara að undan­förnu þrátt fyrir að vera að miklu leyti háð gengi krónunnar. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá breytingu á undir­vísitölum fatnaðar og tómstunda. Þar sést að breytingin fyrstu þrjá mánuði ársins er oftast mjög nálægt breytingunni á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Áhugavert er að sjá hvað verð tómstunda (sjónvörp, DVD diskar og spilarar og annað slíkt) hefur breyst lítið á fyrstu mánuðum ársins, sérstak­lega í ljósi þess að fyrir nokkrum árum hækkuðu verð á þessum lið nokkuð reglulega á fyrsta fjórðungi,“ segir í greiningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár