Runólfur Pálsson skipaður nýr forstjóri Landspítala

Heilbrigðis­ráðherra hefur skipað nýjan forstjóra Land­spítalans til næstu fimm ára. Nýi forstjórinn tekur við starfinu 1. mars næst­komandi.

Runólfur Pálsson.
Runólfur Pálsson. Mynd: Aðsend

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur ákveðið að skipa Runólf Pálsson í embætti forstjóra Land­spítala til næstu fimm ára. Í tilkynningu á veg stjórnar­ráðsins segir að ákvörðun ráðherra sé tekin að undan­gengnu mati lögskipaðrar hæfnis­nefndar sem mat Runólf meðal þeirra umsækjenda sem hæfastir þóttu til að gegna embættinu.

Greint var frá því í byrjun október að Páll Matthíasson myndi láta af störfum sem forstjóri spítalans. Hann hafði gegnt því embætti í átta ár en þar á undan var hann í rúm fjögur ár fram­kvæmda­stjóri geðsviðs spít­al­ans.

Embættið var auglýst í kjölfarið og alls sóttu fjórtán um það áður en umsóknar­frestur rann út í nóvember. Þriggja manna hæfis­nefnd fór í kjölfarið yfir hæfi umsækjenda.

Runólfur er læknir að mennt með sérfræði­réttindi í lyflækningum og nýrna­lækningum. Hann er prófessor við Háskóla Íslands og vara­forseti lækna­deildar Háskóla Íslands. Þá hefur hann gegnt leiðandi hlutverki á alþjóða­vettvangi á sviði lyflæknis­fræði. Hann hefur verið afkasta­mikill í vísinda­starfi.

Í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins segir að Runólfur hafi afburðar­þekkingu á öllum þáttum faglegrar starfsemi spítalans og einnig yfirgrips­mikla þekkingu á heilbrigðis­kerfinu hér á landi í víðu samhengi, samspili stofnana og mismun­andi þjónustu­stiga. „Hann hefur verið leiðandi og farsæll í klínískum störfum og sem stjórn­andi. Runólfur hefur unnið að innleiðingu marg­víslegra umbóta og nýjunga og fram­tíðarsýn hans fyrir Land­spítala er skýr. Runólfur hefur mikla reynslu og þekkingu á kennslu- og þjálfunar­hlutverki spítalans. Hann var kennslu­stjóri lyflækninga­sviðs og stað­gengill framhalds­menntunar­stjóra lyflækninga­sviðs Land­spítala auk þess að hafa komið að fjölda nefnda og annarra stefnu­mótandi starfa í tengslum við kennslu- og þjálfunar­hlutverk spítalans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár