„Þá eru þeir að nota þessa kjaradeilu til að loka verksmiðjunni“

Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfs­manna Rio Tinto Alcan, segir að lítið hafi þokast í viðræðum við Rio Tinto Alcan. Hefur áhyggjur af því að kjara­deilan sé fyrir­sláttur. Óvíst að Rio Tinto noti verktaka­heimildina ef um það semst. Rio TInto Alcan segist ekki sitja við sama borð og önnur fyrirtæki og segir samninga­viðræðurnar vera réttlætismál.

Lítið þokast
Lítið þok­ast Lítið þok­ast í samn­inga­við­ræðum Rio Tinto Alcan og starfs­manna álvers­ins segir Gylfi Ingv­ars­son, tals­maður starfs­mann­anna. Mynd: Haukur Herbertsson / Flickr

„Ég hef margoft sagt það að ég hef ekki grænan grun um á hvaða vegferð Rio Tinto er. Það getur ekki snúist um launakjör lægstlaunuðustu starfs­manna í fyrir­tækinu“  segir Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfs­manna álversins í Straumsvík, aðspurður um hvernig samninga­viðræður gangi við eiganda álversins í Straumsvík. Samninga­fundur hófst í Karp­húsinu klukkan eitt og verður fundað næstu daga áfram ef ekki semst en verkfall á að hefjast í álverinu á miðvikudaginn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár