Metoo-bylting hafin í Marokkó

Fjöldi kven­kyns háskóla­nema í Marokkó hefur rofið þögn­ina og greint frá þving­unum kenn­ara til kyn­lífs gegn því að fá góðar ein­kunnir. Dæmi eru um að konur hafi verið reknar úr háskólum hafi þær ekki farið að vilja kennar­anna.

Konur þyrptust út á götur í Marokkó nýverið til að mótmæla kynferðisofbeldi í háskólum landsins
Konur þyrpt­ust út á götur í Marokkó nýverið til að mót­mæla kyn­ferð­is­of­beldi í háskólum lands­ins

Háskóla­sam­fé­lagið í Marokkó er nú und­ir­lagt af ásök­unum kven­kynsnem­enda um kyn­ferð­is­lega mis­notkun kenn­ara. Sögur þeirra hafa fyllt sam­fé­lags­miðla í anda #metoo bylt­ing­ar­innar. Þetta eru mikil tíma­mót því í hinu íhalds­sama Norður-Afr­íku­ríki hafa fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­brota yfir­leitt ekki greint frá.

„Ég var rekin úr háskóla fyrir ári síðan vegna ásak­ana um að hafa svindlað á prófi,“ hefur AFP-frétta­stofan eftir hinni 24 ára gömlu Nadiu. „Sann­leik­ur­inn var hins vegar sá að ég hafði neitað að láta undan kyn­ferð­is­legri kúgun eins kenn­ara míns.“

Einn verið dæmdur

Nadia hefur aftur fengið skóla­vist í Hassan I háskól­anum í Settat í námunda við borg­ina Casablanca en fleiri konur hafa nú stigið fram og saka fimm kenn­ara skól­ans um sam­bæri­legar þving­anir.

Einn þeirra hefur þegar verið ákærður og dæmdur fyrir brot sín. Það gerð­ist fyrr í þessum mán­uði en brotin fólust í því að krefja konur úr nem­enda­hópnum um kyn­líf gegn því að fá góðar ein­kunnir. Þetta er fyrsta dóms­mál sinnar teg­undar í land­inu. Hinir fjórir kenn­ar­arnir hafa einnig verið ákærðir og hefj­ast rétt­ar­höld yfir þeim á næstu dögum.

Nadia segir að ekki hafi verið hlustað á sig þegar hún greindi frá kúg­un­unum. Hún er í raun ekki fyrsta konan til að greina frá. Á síð­ustu árum hafa minni fjöl­miðlar í land­inu nokkrum sinnum fjallað um svip­aðar ásak­anir en það hefur engu skilað.

En sam­fé­lags­miðl­arnir hafa breytt öllu og gefið kon­unum rödd. Þegar sögur fjölda þeirra fóru að flæða um miðl­ana fór almenn­ingur – og yfir­völd – að átta sig á hversu víð­feðmt ofbeldið var í háskól­unum.

Skjáskotið afdrifaríka

Þetta hófst allt fyrir nokkru er skjá­skot af sam­skiptum kven­kyns nem­anda og kenn­ara hennar voru birt á sam­fé­lags­miðlum. Þar krafð­ist kenn­ar­inn þess að konan hefði við hann kyn­mök. Það var þá sem Nadia ákvað að segja frá. Áður hafði hún ekki ímyndað sér að opin­berun á reynslu hennar myndi hafa nokkur áhrif.

En nú var allt breytt. „Ég vildi segja frá og um leið hvetja önnur fórn­ar­lömb til að gera slíkt hið sama.“

Aktí­vistar í Marokkó stofn­uðu Facebook-síðu og hvöttu konur til að segja frá ofbeldi gegn sér, hvort sem það væri undir nafni eða ekki. „Um leið og við ýttum þessu úr vör skall bylgja frá­sagna á okkur,“ hefur AFP-frétta­stofan eftir Söruh Benmoussa, einum for­sprakka hreyf­ing­ar­innar.

„Ég bið ykkur að stöðva þá kyn­ferð­is­legu mis­notkun og þær ömur­legu og óásætt­an­legu aðferðir sem skrímsli dul­búin sem leið­bein­endur beita,“ skrif­aði ein konan sem kom ekki fram undir nafni en nafn­greindi skól­ann. Fleiri nem­endur við skól­ann greindu þá frá sam­bæri­legri reynslu sinni. Þetta var til þess að einn kenn­ar­inn við skól­ann var rek­inn. Fleiri kenn­urum var einnig sagt upp, kenn­urum sem höfðu vitað af brot­unum en ekk­ert aðhafst.

Sumir skól­arnir hafa ekki brugð­ist við ásök­unum og hefur mennta­mála­ráð­herra Marokkó, Abdelatif Miraoui, sagt að hvorki ofbeldi né áreitni eigi að við­gang­ast innan veggja háskól­anna.

Aðrir skólar hafa sett á lagg­irnar við­bragð­steymi og gert nem­endum kleift að segja frá reynslu sinni og koma mál­unum í far­veg.

Ný lög en fáar kæra

„Það er lyk­il­at­riði að styðja fórn­ar­lömb og hjálpa þeim við að leita til dóms­kerf­is­ins,“ segir mann­rétt­inda­lög­fræð­ing­ur­inn Karima Nadir. Það hefur vissu­lega ekki alltaf verið auð­velt að kæra kyn­ferð­is­brot í Marokkó. Fyrst árið 2018 var refsi­lög­unum breytt og við­ur­lögum um fang­els­is­vist fyrir „áreitni og kyn­ferð­is­lega mis­notkun“ bætt inn. Nadir segir að það hafi vissu­lega verið fram­för en enn séu fáar konur sem kæri. Því vilji hún breyta.

„Kynlíf gegn ein­kunnum“ er ekki bundið við Marokkó. Árið 2019 gerði BBC heim­ild­ar­mynd um það hvernig kenn­arar við háskóla í Vestur-Afríku, m.a. Nígeríu, mis­not­uðu aðstöðu sína gagn­vart kven­kyns nem­endum.

„Ég er 28 ára og hef aldrei lokið námi og það er af einni ástæðu,“ segir Kiki Mordi sem gerði heim­ild­ar­mynd­ina. „Það var ekki af því að ég væri ekki klár – ég var fram­úr­skar­andi nem­andi. En ég gat ekki einu sinni lokið námi. Allt út af kyn­ferð­is­legri áreitni.“

Mordi greindi svo frá því að einn af kenn­ur­unum hennar hafi neitað að gefa henni ein­kunn á prófi sem hún tók í tvær annir af því að hún hefði neitað að láta undan þving­unum hans um kyn­líf. Hún var þá í lækna­námi og sagði skóla­yf­ir­völdum frá mál­inu en við­brögðin voru engin. „Þetta er rán. Ef það er ein­hver staður á jörðu sem stúlkur eiga að búa við öryggi er það í skólum.“

Mordi og teymi hennar not­uðu m.a. faldar mynda­vélar við gerð mynd­ar­innar og náðu upp­tökum af því þegar kenn­arar í virtum háskólum í bæði Gana og Nígeríu, áreittu konur og reyndu að kúga þær til kyn­lífs.

Í kjöl­farið á frum­sýn­ingu mynd­ar­innar voru þeir kenn­arar sem náð­ust á upp­tökur reknir frá skól­unum. Þá tók Níger­íu­þing málið fyrir og færði í lög refs­ingar kenn­ara mis­noti þeir og áreiti nem­endur sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár