Fimm ríki slíta stjórnmálasambandi við Katar

Nágranna­ríki Katar ásaka það um að styðja við hryðjuverka­samtök á borð við Íslamska ríkið og Al-Kaída.

Emírinn af Katar, Sheikh Tamim bin Hamad Al-Thani.
Emírinn af Katar, Sheikh Tamim bin Hamad Al-Thani. Mynd: EPA


Fimm ríki í Mið-Austur­löndum hafa slitið stjórnmála­sambandi við Katar. Ríkin fimm; Saudí-Arabía, Egypta­land, Bahrain, Sameinuðu arabísku fursta­dæmin og Yemen, segja að stjórn­völd í Katar hafi stuðlað að óstöðug­leika í svæðinu með því að styðja hryðjuverka­samtök á borð við Íslamska ríkið og Al-Kaída. Stjórn­völd í Katar hafa neitað þessum ásökunum stað­fastlega. Í yfir­lýsingu sem þau sendu frá sér í morgun fordæmdu þau ákvörðunina og sögðu ekkert til í þeim ávirðingum sem á þau væru borin. Allt yrði gert til að hrinda tilraunum til að skaða samfélag og efnahag Katar. BBC greinir frá.

Samkvæmt fréttum sem borist hafa í nótt er búið að loka landa­mærum Saudí-Arabíu og Katar og yfirvöld í Riyadh, höfuðborg Saudí-Arabíu, hafa líka lokað á öll tengsl í sjó og lofti við nágranna­ríkið. Egyptar hafa einnig meinað skipum og flugvélum frá Katar að nota hafnir eða flugvelli innan landamæra sinna. Óljóst er hvaða áhrif bannið mun hafa á starfsemi Qatar Airways, einu umsvifa­mesta flug­félags svæðisins, sem flýgur til yfir 150 áfanga­staða víðs vegar um heiminn.

Öll ríkin sem um ræðir, þau fimm sem hafa nú slitið stjórnmála­sambandi og Katar, eru nánir samstarfs­aðilar Banda­ríkjanna. Bandaríkjaher er til að mynda með tíu þúsund manna herstöð í Katar. Rex Tillerson, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, var á ferð um svæðið fyrir um tveimur vikum ásamt Donald Trump, forseta landsins. Þeir héldu því stað­fastlega fram að ferð þeirra hafi verið mikil sigurför en ósættið á milli banda­manna þeirra í Mið-Austur­löndum rímar ekki við þá sögu­skýringu. Tillerson hefur þegar hvatt ríkin til að jafna ágreining sinn og hefur boðist til að miðla málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár