Hænur í stað óleyfilegs kosningaáróðurs

„Þetta er framhald verks sem var þar áður,“ segja lista­mennirnir um tvær stórar hænur sem halda uppi merkjum nýrrar stjórnar­skrár við undirgöng í nágrenni Lækjar­skóla í Hafnar­firði. Málað var yfir veggverk á sama stað í aðdrag­anda sveitar­stjórnar­kosninga.

Nýtt verk Töfrateymisins í grennd Lækjarskóla í Hafnarfirði. Hænurnar hafa töluverðar áhyggjur af framtíð sinni að sögn listamannanna.
Nýtt verk Töfrateym­is­ins í grennd Lækj­ar­skóla í Hafn­ar­firði. Hænurnar hafa tölu­verðar áhyggjur af fram­tíð sinni að sögn lista­mann­anna. Mynd: Ólafur Ólafsson

Lista­mennirnir Libia Castro og Ólafur Ólafsson ásamt Töfra­teyminu hafa hafa sett upp nýtt veggverk við undirgöng sem ganga undir Reykja­nesbraut í grennd við Lækjar­skóla í Hafnar­firði. Veggurinn sem varð fyrir valinu er Töfra­teyminu ekki með öllu ókunnugur því hópurinn hafði áður málað veggverk fyrir ofan undir­göngin sem samanstóð af orðunum „Við eigum nýja stjórnar­skrá!“ Líkt og Kjarninn fjallaði um í lok ágúst þá var málað yfir umrætt verk eftir að yfir­kjörstjórn Hafnar­fjarðar komst að þeirri niður­stöðu í aðdrag­anda sveitar­stjórnar­kosninga að verkið mætti túlka sem kosninga­áróður en líkt og áður segir eru undir­göngin í grennd Lækjar­skóla sem er kjör­staður í Hafnar­firði.

Nýja verkið er tiltölu­lega skylt hinu eldra verki og fjallar beinlínis um örlög verksins sem áður prýddi vegginn. Verkið sýnir tvær hænur sem ræðast við, önnur hænan hrópar: „Það bara má ekki minnast á nýju stjórnar­skrána!!“ og því svarar hin hænan með orðunum: „Oh! Nú verður málað yfir okkur“.

Veggjalist fengið að þrífast þarna í mörg ár

Ólafur Ólafsson segir nýja verkið vera beint framhald af hinu eldra. „Þetta er framhald af því verki og viðbragð við aðgerðum yfir­kjör­stjórnar sem okkur þykja vera órétt­mætar og furðulegar. Verkið útskýrir sig svo nokkurn veginn sjálft, þær eru að velta þessu fyrir sér, þessari sögu. Þær eru skelkaðar yfir því hvort það verði málað yfir þær, hvort þær fái að standa,“ segir Ólafur.

Ólafur segist ekki viss um hvað yfirvöld í Hafnar­firði kunni til bragðs að taka þegar hann er spurður að því hvort hann sé vongóður um að hænurnar fái að lifa á veggnum til frambúðar. Í því samhengi bendir hann á að í „fleiri ár“ hafi veggja­list fengið að þrífast umhverfis undir­göngin. „Ég kenndi einmitt vegglista­kúrs á vegum Hafnar­fjarðar­bæjar fyrir mörgum, mörgum árum og þá vorum við einmitt að mála í þessum og önnur göng í nágreninnu. Það hafa alltaf verið vegg­listaverk þarna allar götur síðan.“

Nýja verkið er enn eitt innlegg Libiu og Ólafs í umræðuna um nýja stjórnar­skrá sem hefur verið endur­tekið stef í list­sköpun Libiu og Ólafs. „Þetta er framhald verks sem var þar áður. Sem er hluti af áfram­haldandi verki, Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnar­skrá fyrir lýðveldið Ísland eftir Libiu, mig og Töfra­teymið. Það var veggverk yfir þessum göngum þar sem var málað “Við eigum nýja stjórnar­skrá!” sem vitnaði í bleikan borða sem við hífðum upp fyrir framan Alþingi við lok gjörnings okkar 3. Október 2020,“ útskýrir Ólafur.

Tíu ár frá þjóðaratkvæði um stjórnarskrártillögur

Gjörn­ingurinn sem um ræðir var umfangs­mikill viðburður sem unnin var í samstarfi við Listasafn Reykja­víkur. Á vef safnsins segir meðal annars um verkið: „Myndlistar­tvíeykið Libia Castro & Ólafur Ólafsson fá til liðs við sig hóp ólíkra tónskálda, innlendra og erlendra, tónlistar­fólks, samtaka, aðgerðar­sinna og almennra borgara til þess að skapa í samstarfi fjölradda tónlistar- og myndlistar­gjörning við allar 114 greinar nýju íslensku stjórnar­skrár­tillögunnar frá 2011.“ Fyrir gjörninginn Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnar­skrá fyrir lýðveldið Ísland voru Libia og Ólafur útnefnd listamenn ársins við afhendingu Íslensku myndlistar­verð­launanna árið 2021.

Nýja verkið með hænunum var málað í gær og er tíma­setningin engin tilviljun því á morgun verða liðin tíu ár frá því að kosið var um tillögur stjórnlaga­ráðs í þjóðar­atkvæða­greiðslu. „Þess vegna kemur þetta verk núna í aðdrag­anda stór­afmælis þjóðar­atkvæða­greiðslunnar sem haldin var 20. Október 2012,“ segir Ólafur og bætir við: „Á fimmtudaginn verða tíu ár frá því að við kusum okkur nýja stjórnar­skrá með skýrum meirihluta í þjóðar­atkvæða­greiðslu. Í 10 ár hefur alþingi hunsað niður­stöðu þeirrar þjóðar­atkvæða­greiðslu.“

Aðspurður segist Ólafur ætla að halda upp á afmælið á Austur­velli. „Við hvetjum alla til að mæta á fimmtudaginn á Austur­völl klukkan fimm og fagna með okkur og fá sér 10 ára afmælis­köku,“ segir lista­maðurinn en Stjórnar­skrár­félagið hefur efnt til afmælis­fagnaðar á Austur­velli í tilefni þessara tímamóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár