Ríkisstjóri Kaliforníu neitar að hlýða Trump

Bandaríkja­forseti vill að þjóðvarðar­liðið sinni gæslu við landamæri Banda­ríkjanna og Mexíkó.

Jerry Brown, ríkis­stjóri í Kaliforníu, neitar að hlýða Donald Trump Bandaríkja­forseta. Hingað til hefur hann neitað að fara eftir svo til öllu sem Trump hefur lagt til, og hefur auk þess höfðað dómsmál í nokkur skipti þegar Trump hefur tilkynnt um fyrir­skipanir og aðgerðir á sviði umhverfis­mála. Þannig brást Kalifornía strax við því, þegar Trump dró Banda­ríkin út úr Parísar­samkomu­laginu, og lýsti því yfir að ríkið myndi standa við sitt og gott betur.

Núna neitar Brown að hlýða fyrir­skipun um að þjóðvarðarlið Banda­ríkjanna verði sent að landa­mærum Banda­ríkjanna og Mexíkó, innan Kaliforníu, til að fylgjast með straumi fólks yfir landa­mærin. Trump vill að fjögur þúsund manna lið verði við landa­mærin, en Brown segir þetta óþarfa. Hann segir landamæra­gæsluna góða og segist treysta því að alríkis­stjórnin hafi nægilega stjórn á því verkefni sem hún á að sinna, sem er landamæra- og tollgæsla.

Þjóðvarðar­liðið heyrir hins vegar undir ríkin sjálf, og því verða ríkis­stjórar að samþykkja það þegar þau eiga að sinna tilteknum verkefnum. Nú þegar hafa um þúsund liðar úr þjóðar­varðar­liðinu farið að landa­mærunum og munar mest um 650 manna lið frá Texas. Óskað var eftir því að Kalifornía legði til 237 liða en Brown var ekki tilbúinn að verða við því.

neitar að verða við óskum Donalds Trumps, forseta Banda­ríkjanna, um að senda þjóð­varðliða til að fylgjast með ólöglegum innflytjendum frá Mexíkó. Trump tilkynnti fyrir nokkru að hann ætlaði að senda fjögur þúsund þjóð­varðliða að landa­mærum Banda­ríkjanna og Mexíkó til að halda aftur af straumi ólöglegra innflytjenda.

Kalifornía er fjölmennasta ríki Banda­ríkjanna með 38 milljónir íbúa, og má með sanni segja að ráðamenn þar séu miklir andstæðingar Trumps forseta og þess sem hann stendur fyrir. Kalifornía er mikið vígi Demókrata, eins og nágranna­ríkin, Oregon og Washington. Samtals búa um 50 milljónir manna í þessum þremur ríkjum á vestur­ströndinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár