Atvinnulygarar og apaheilar

Gamall brandari segir að besta leiðin til að sjá hvort stjórn­málamaður sé að ljúga sé að fylgjast með vörum hans. Ef þær hreyfist sé stjórn­mála­maðurinn sennilega að ljúga þá stundina.

Það er ekkert nýtt að kjósendur efist um heilindi kjörinna fulltrúa en segja má að umræðan um lygar þeirra hafi náð ákveðnu hámarki undan­farin ár. Donald Trump Bandaríkja­forseti er auðvitað þekktur fyrir að fara frjáls­lega með stað­reyndir svo ekki sé meira sagt. Öll Brexit-herferðin í Bretlandi er í dag sögð hafa verið byggð á lygum og stjórn­málamenn á borð við Boris Johnson verið dregnir fyrir dómstóla fyrir vikið. Á Íslandi fullyrða þingmenn fullum fetum að þeir hafi verið að spauga þegar þeir náðust á upptöku ræða pólitísk hrossa­kaup og dreifa óhróðri um kollega sína. Selahljóð væru líklega komin frá hjólreiða­mönnum inni á knæpu.

Dæmin eru ótal mörg en rauði þráðurinn er að sann­leikurinn er orðinn afstæður í stjórn­málum og menn taka sér fullan rétt til að túlka stað­reyndir eftir eigin höfði eins og um skoðanir væri að ræða. Deilurnar um hversu margir voru viðstaddir embættis­töku Trumps forseta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár