Spáir því að Amazon kaupi Target

Smásölu­risinn Amazon hefur verið í miklum sóknarhug að undan­förnu. Frekari land­vinningar á sviði verslunar­rekstrar eru taldir líklegir.

Smásölu- og tækni­risinn Amazon er sagður vera líklegur til að kaupa verslunar­fyrirtækið Target, sem rekur um 1.800 verslanir um öll Banda­ríkin.

Target er metið á 36 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 3.800 milljörðum króna. Stutt er síðan Amazon keypti Whole Foods fyrir 13,7 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 1.400 milljörðum króna. Það fyrirtæki er með 470 verslanir í rekstri, í Banda­ríkjunum og Evrópu.

Vöxtur Amazon hefur verið gríðar­lega mikill en markaðs­virði fyrir­tækisins er nú 580 milljarðar Bandaríkja­dala, eða tæplega 60 þúsund milljarðar króna.

Jóla­vertíðin hjá fyrir­tækinu sló öll fyrri met, en netverslun færist sífellt í aukana, en á því sviði er Amazon leiðandi.

Kaup félagsins á Whole Foods hafa styrkt fyrir­tækið í sessi að mati greinenda, en með kaupunum steig fyrir­tækið fyrsta stóra skrefið inn á hefð­bundinn verslunar­markað. Frá upphafi hefur fyrir­tækið einblínt á verslun á netinu og með uppbyggingu vildarkjara­kerfis hefur fyrir­tækið séð tækifæri í því að byggja upp enn meiri þjónustu við áskrifendur sína.

Amazon hefur ekki gefið út nákvæmlega hversu margir eru nú orðnir áskrifendur af (Prime Members) af vildarkjara­kerfi fyrir­tækisins en grein­endur hafa talið að fyrir­tækið sé með hátt í 100 milljónir áskrifenda nú þegar, og þeim fjölgar stöðugt.

Whole Foods og Target eiga það sameiginlegt að hafa gert mikið upp úr vildarkjara­kerfum og notenda­upplýsingum til að dýpka sambandið við viðskipta­vini.

Gene Munster, áhrifa­mikill fjár­festir og stofnandi Loup Ventures, spáir því að Amazon kaupi Target á árinu og setji enn meiri kraft í þróun tækninnar sem býr að baki Amazon Go verslununum, þar sem viðskipta­vinir versla án aðkomu starfs­fólks eða búðar­kassa.

Slík verslun hefur þegar verið sett upp í Seattle en uppsetningu verslana á öðrum stöðum hefur verið frestað, vegna þess að tækni­þróuninni er ekki lokið.

Target hefur einnig verið að þróa hjá sér netverslunar­möguleikana og keypti á dögunum sprota­fyrirtækið Shipt fyrir 550 milljónir Bandaríkja­dala, um 60 milljarða króna, en með kaupunum hyggst félagið byggja upp áreiðanlegra heimsendingar­kerfi fyrir netverslun, meðal annars með fersk­vörur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár