Ís­lenskur Breivik-að­dáandi til­kynntur til lög­reglu

Rasismi blossar upp vegna vel­vilja almenn­ings í garð flótta­fólks. Morg­un­blaðið heldur áfram að hæð­ast að flótta­fólki og vel­gjörð­ar­mönnum þess og birtir skopteikn­ingu af sökkvandi skipi.

Mynd tengist frétt ekki beint.
Mynd teng­ist frétt ekki beint.

Íslend­ingur úthúðar útlend­ingum, fal­ast eftir vopnum og dáist að fjöldamorð­ingj­anum Anders Behring Breivik á vefnum 4chan. Málið hefur verið til­kynnt til lög­reglu, en ummælin birt­ast á und­ir­síð­unni /pol/ á 4chan þar sem nettröll og ras­istar lýsa áhyggjum af vel­vilja Íslend­inga í garð flótta­fólks. Und­an­farna daga hafa þús­undir manna boðið Eygló Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, aðstoð sína við mót­töku hæl­is­leit­enda vegna neyð­ar­á­stands­ins í Mið­jarð­ar­hafi. Taka ber fram að á síð­unni grass­erar ras­ismi í bland við gálga­húmor, en /pol/ er vett­vangur fyrir skrif sem eiga að ganga í ber­högg við „póli­tískan rétt­trúnað“.

Íslenski not­and­inn spyr: „Hvernig get ég stofnað borg­ara­her gegn inn­flytj­endum, strákar?“ Hann segir íslensk stjórn­völd þegar hafa sam­þykkt að veita 50 flótta­mönnum hæli og biður „evr­ópska bræður“ sína um hjálp við að útvega sér AK-47 riffla. Hann spyr rúm­enskan not­anda hversu erfitt sé að verða sér út um skot­vopn í land­inu hans en tekur fram að spurn­ingin sé hýpó­þetísk og birtir mynd af Anders Behring Breivik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár