Endurnotkunarbylgjan

Í Danmörku eru 950 verslanir sem selja notuð föt, húsgögn og annan notaðan varning. Þeim fjölgar sífellt og þar voru á síðasta ári opnaðar 70 slíkar verslanir. Allt byrjaði þetta á prest­hjónum.

Herluf Andersen, „endurnotapresturinn“, lést árið 2013, þá áttræður að aldri.
Herluf Andersen, „end­ur­nota­prest­ur­inn“, lést árið 2013, þá átt­ræður að aldri. Mynd: Niels Aage Skovbo

Flestir kannast við að hafa gengið í fötum af eldri systkinum, fengið gamla eldhús­borðið sem mamma og pabbi voru búin að setja upp á háaloft og kommóðuna frá ömmu. Þetta eru dæmi um endur­nýtingu sem kannski var tilkomin af praktískum ástæðum en ekki endilega af umhyggju við auðlindir jarðarinnar. Verslanir með notuð föt, húsgögn og yfirleitt allt sem nöfnum tjáir að nefna skjóta nú upp kollinum, nánast eins og gorkúlur víða um lönd. Í Danmörku eru 950 slíkar verslanir og fjölgar sífellt, þar voru á síðasta ári opnaðar 70 verslanir með notaðan varning.

Foreldrar dönsku endurnotkunarverslananna

Sumarið 1971 var Herluf Andersen prestur við Kristjáns­kirkjuna í Árósum á ferð í Bretlandi, ásamt Ruth eiginkonu sinni. Klerkurinn var að kynna sér messusiði þarlendra, ekki síst hvaða sálmar væru sungnir við kirkjulegar athafnir.

Í þessari heimsókn varð hjónunum gengið fram hjá verslun sem seldi notaðan fatnað og ýmislegt fleira.

Verslunin var í eigu hjálpar­samtakanna Oxfam, prests­hjónin könnuðust við það nafn og ákváðu að kíkja inn, ekki þó til að versla. Eftir að þau höfðu skoðað sig um og rætt við starfs­fólkið, sem allt var sjálfboða­liðar, staðnæmdust þau á gangstéttinni fyrir framan verslunina, litu hvort á annað og Ruth sagði „getum við ekki gert svona heima í Árósum?“

Prestur kinkaði kolli og þar með var það ákveðið.

Hjónin voru ekki algjörir nýgræðingar í þessum efnum. Þau höfðu um árabil efnt til flóa­markaðar í Árósum þar sem þau seldu fatnað og ýmislegt fleira sem almenningur í borginni hafði gefið Kristjáns­kirkjunni. Ágóðinn rann til Hjálpar­stofnunar dönsku kirkjunnar. En að opna verslun hafði hjónunum ekki dottið í hug fyrr en þau sáu Oxfam búðina í Bretlandi.

Fyrsta endurnotaverslunin opnuð

Heimkomin frá Bretlandi hófust prests­hjónin handa við undir­búning þess að koma versluninni á fót. Það var í mörg horn að líta en 1. september 1972 var allt til reiðu og fyrsta endur­nota­verslunin í Danmörku opnuð. Þessi verslun var, og er enn, til húsa á Gammel Munkegade 8 í Árósum, í húsnæði sem borgin lagði til.

Skemmst er frá því að segja að reksturinn fór vel af stað, enginn skortur var á sjálfboða­liðum til starfa og sömu sögu var að segja um vörurnar. Árósabúar tóku því fagnandi að geta losað sig við allt mögulegt úr kjöllurum og geymslum og viðskipta­vinir í versluninni sömuleiðis ánægðir með að geta gert góð kaup.

Þau Ruth og Herluf lögðu mikla áherslu á að allar tekjur af versluninni skyldu renna óskiptar til Hjálpar­stofnunar kirkjunnar, ekkert væri borgað fyrir þær vörur sem verslunin fengi frá almenningi, starfs­fólk (sjálfboða­liðar) fengi engin laun og yrði sjálft að borga kaffi á vinnu­staðnum o.s.frv.

Endurnotapresturinn

Prests­hjónin létu ekki nægja að opna þessu einu verslun í Árósum og til að gera langa sögu stutta stóðu þau á bak við hvorki meira né minna en stofnun 80 endur­nota­verslana víðs vegar í Danmörku. Hjálpar­stofnun kirkjunnar rekur nú 130 slíkar verslanir.

Séra Herluf var kallaður „endur­nota­presturinn“ og hann sagði einhverju sinni að þótt kannski væri hægt að misskilja þetta viðurnefni væri orðið í sínu tilviki hrós. Hann lagði líka ætíð mikla áherslu á að hlutur eigin­konunnar Ruth væri ekki síðri. Herluf Andersen var prestur við Kristjáns­kirkjuna í Árósum í 43 ár, lést áttræður að aldri árið 2013. Árósaborg heiðraði minningu prestsins og lítið torg í námunda við Kristjáns­kirkjuna ber nú nafn hans, Herluf Andersens Plads. Ruth Andersen er 84 ára og ern, hún kemur daglega í verslunina á Gammel Munkegade 8 og sinnir þar ýmsum störfum.

Margra ára deila við „hið opinbera“

Velgengni og vöxtur endur­nota­verslananna fór ekki framhjá hinu sívökula auga innheimtu­manna ríkisins. Séra Herluf fóru að berast bréf frá „hinu opinbera“ þar sem tollheimtu­menn hins verald­lega valds í Danmörku bentu á að samkvæmt þeirra skilningi bæri að greiða söluskatt af þessari „höndlan“ eins og það var orðað. Klerkur svaraði og benti á að samkvæmt sínum skilningi bæri ekki að greiða söluskatt af þessari „höndlan“ ekki frekar en þegar maður „selur nágrannanum sófa.“

Ekki vildu tollheimtu­mennirnir sætta sig við þessa niður­stöðu en að lokum hafði klerkur betur, ríkið setti þó það skilyrði að eingöngu væru seldar í þessum endur­nota­verslunum vörur sem einstaklingar eða fyrirtæki hefðu gefið. Í svarbréfi prests þar sem hann fagnaði niður­stöðunni sagði hann að það hefði verið legið fyrir, frá upphafi, að allt sem selt væri í endur­notabúðunum hefði verið gefið þangað.

950 endurnotaverslanir og svo allt hitt

Þegar prests­hjónin frá Árósum ákváðu fyrir 46 árum, á breskri gangstétt, að opna endur­notaverslun í Árósum hafa þau líklega ekki rennt grun í að árið 2017 yrðu 950 endur­nota­verslanir í Danmörku. Í raun eru þær þó miklu fleiri því í þessari tölu eru eingöngu þær sem byggja starfsemina á gjöfum og láta allar tekjur renna til mannúðar­mála. Þótt fatnaður sé fyrirferðar­mestur í endur­nota­verslununum er þar hægt að finna flest sem nöfnum tjáir að nefna, húsgögn, búsáhöld, raftæki o.fl. o.fl.

Endurnotkun hefur stóraukist á síðustu árum

Því fer fjarri að góðgerða­samtök sitji ein að endurnotahitunni. Svonefndum antík verslunum (þar sem kaup­maðurinn kaupir og selur aftur) hefur fjölgað mikið, þær eru reknar á allt öðrum forsendum en verslanir Hjálpar­stofnunar kirkjunnar og hlið­stæðra samtaka. Flóa­mörkuðum fjölgar líka jafnt og þétt og aukin áhersla er á endur­notkun byggingar­efnis (múrsteina, timburs o.fl.). Við þetta bætist svo endur­vinnsla sem eykst sífellt en það er nú önnur saga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár