Í september komst ég að því að það býr maður undir rúminu mínu. Ég lá uppi í rúmi og var að horfa á Louis C.K uppistand á Netflix þegar ég heyrði lágan slepjulegan hlátur. Fyrst hélt ég að hann kæmi að utan og ég reif gardínuna frá glugganum en það var enginn fyrir utan. Hláturinn virtist nánast koma innan úr mér og í smá stund hélt ég að þetta væri garnagaul. Ég ýtti aftur á play en stuttu síðar heyrði ég aftur í hlátrinum: bældur hlátur, næstum eins og einhver væri að hafa sig allan við að gefa ekki frá sér hljóð. Ég fríkaði út. Fraus gjörsamlega og án þess að hreyfa mig skimaði ég um íbúðina. Ýtti á spacebar. Það virtist ekkert vera í eldhúsinu né frammi á gangi en skyndilega heyrði ég greinilega einhvern ræskja sig. Ég heyrði að röddin kom undan rúminu mínu. „Halló! Hver er þarna?“ kallaði ég og beindi röddinni niður á rúmið. Ég hoppaði á fjórar fætur og lagði eyrað að dýnunni. Ekkert hljóð. „Er einhver þarna?“ og ég heyrði í einhverju mjakast hægt og rólega lengra undir rúmið. Alveg kjurr þarna á fjórum fótum rann á mig einhver heiftarleg reiði. Hvaða ímyndunarveiki var þetta í mér? Það gat ekki verið að einhver væri þarna, það væri fáránlegt. Ég ýtti aftur á play á Louis C.K. til að róa taugarnar, færði mig síðan hægt og rólega að rúmgaflinum og beygði mig til að kíkja undir rúmið. Og þarna var hann bara! Maður, eða öllu heldur hálfur maður. Hann var ekki nema höfuð, axlir og hendur: skorinn rétt fyrir neðan geirvörtur. Hann starði á mig og ég starði á móti. Ég trúði varla mínum eigin augum! Maður undir rúminu mínu búinn að koma sér vel fyrir á milli einstæðra sokka, sælgætisbréfa og tómra dósa. Það fyrsta sem rann upp fyrir mér var hversu skelfilega langt var liðið síðan ég ryksugaði eða skúraði íbúðina. Ég hafði ekki litið undir rúmið svo mánuðum skipti. En fljótlega fylltist ég skelfingu. Hversu lengi hafði hann verið þarna? Öll kvöldin sem ég lá uppi í rúmi fram á nótt að horfa á einhverja ömurlega þætti? Eða öll skiptin sem ég stundaði sjálfsfróun, hafði hann heyrt í þessu öllu? Vissi hann að ég var búin með allar Vampire Diaries-seríurnar og hafði sofið yfir mig fimm daga í röð? Ég ræskti mig og spurði kurteisislega: „Afsakið, mætti ég spyrja hversu lengi þú hefur verið hérna undir rúminu mínu?“ Maðurinn var skelfingu lostinn og virtist ekki koma upp orði, kannski mállaus? Ætli maður geti talað hafi maður engan líkama? Ég hafði ekki hugmynd. „Ertu búinn að vera hérna lengi?“ sagði ég hægar og skýrar, eins og ég væri að tala við barn. Maðurinn kinkaði kolli. Ég vissi það! Hann vissi þá allt um það hvernig ég eyddi hálfum deginum uppi í rúmi að horfa á þætti og vorkenna sjálfri mér. Og hvað það var langt síðan ég stundaði kynlíf. „Þú afsakar draslið hérna undir rúminu, ég bý ein þannig ég þríf miklu minna en ég ætti að gera, fer alveg vel um þig og allt?“ Maðurinn kinkaði varlega kolli og ég er ekki frá því að hann hafi brosað örlítið. Ég gaf honum thumps up, en fattaði að ég hafði óvart gefið honum thumbs down vegna þess að ég var að tala við hann á hvolfi. Mér fannst þetta svo óþægilegt að ég veifaði honum eins og til að kveðja þó að ég væri auðvitað ekki að fara neitt. Síðan lagðist ég aftur upp í rúm. Ýtti á spacebar. Ég stökk fram í eldhús og byrjaði að tannbursta mig. Passaði mig á að vera létt á fæti til að maðurinn sæi ekki hvað ég get verið trukkaleg í umgangi. Ég er gjörn á að rekast í allt og er svo oft svo þungstíg að það mætti halda að ég væri hundrað kílóum þyngri en ég er. Ég trítlaði þarna um eldhúsið með tannburstann í munninum, valhoppaði yfir í svefnherbergið og leitaði að hreinum náttfötum. Neðst í skúffunni var náttkjóll sem ég hafði ekki farið í síðan ég var tólf ára. Bleikur kjóll úr einhverju gerviefni sem var alveg skelfilegt að sofa í. Ég lét eins og ég hefði aldrei sofið í öðru og smeygði mér í kjólinn með tannburstann í munninum. Dansandi flýtti ég mér síðan inn í eldhús til að spýta, hreinsaði tannburstann og kom mér aftur upp í rúm. „Góða nótt“ sagði ég við manninn sem var ekkert líklegri til að svara núna frekar en fyrr. Ég pírði augun yfir Louis C.K., eiginlega nær svefni en vöku. Mig langaði að lækka svo ég gæti sofnað en var svo hrædd um maðurinn myndi ekki heyra neitt ef ég gerði það. Stundum heyrði ég mannin hlæja undir koddanum og dýnunni þegar Louis sagði eitthvað sérstaklega fyndið. Síðan sofnaði ég.

Maður
„Hann var ekki nema höfuð, axlir og hendur: skorinn rétt fyrir neðan geirvörtur. Hann starði á mig og ég starði á móti. Ég trúði varla mínum eigin augum!“ Salka Valsdóttir skrifar um manninn sem hún fann undir rúminu sínu.
Mest lesið

1
Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
Foreldrar írskrar stúlku sem lést í bílslysi á Íslandi í lok sumars eru í senn þakklát Íslandi og sorgmædd yfir að hún lést langt fyrir aldur fram. Þau eiga þó erfitt með að fallast á að hún hafi látist í slysi, þar sem vísbendingar eru um að ekið hafi verið á yfir 200 kílómetra hraða í banaslysi dóttur þeirra.

2
Írisi Helgu birt nálgunarbann eftir áreiti í vikunni
Lögreglan á Suðurnesjum birti Írisi Helgu Jónatansdóttur nálgunarbann í gær eftir að hún og fjölskylda hennar áreittu brotaþola fyrir utan heimili þeirra.

3
Dætur lýstu ótta og uppnámi fyrir dómi og vitni brustu í grát
Vitni lýstu fyrir dómi hvernig meint umsáturseinelti Írisar Helgu Jónatansdóttur hefði haft áhrif á daglegt líf þeirra og öryggiskennd. Vitni fjölmenntu á áhorfendabekkina eftir að hafa gefið skýrslu fyrir dóminum.

4
Myndbirting Morgunblaðsins „á ekkert skylt við mig eða mitt líf“
Kona sem er múslimi var myndbirt með umfjöllun Morgunblaðsins um þiggjendur fjárhagsaðstoðar. Hún er starfsmaður á leikskóla.

5
Evrópa milli vonar og ótta eftir afhroð Trumps
Sigur demókrata gæti veitt forsetanum meira aðhald, en óvíst er hvort stefna Bandaríkjanna gagnvart Úkraínu, tollum og öryggi Evrópu breytist.

6
Tölurnar á bak við stórsigur demókrata í bandarísku þingkosningunum
Demókratar náðu meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings og unnu mikilvæga sigra í ríkisstjórakosningum víða um land. Metþátttaka, gríðarleg fjáröflun og breytt fylgi meðal ungs fólks og kjósenda af rómönskum uppruna settu svip sinn á kosningarnar. Í nokkrum ríkjum unnu demókratar í fyrsta sinn í áratugi.
Mest lesið í vikunni

1
Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu
Brotaþoli lýsti flóknu ástarlífi Írisar Helgu Jónatansdóttur sem er sökuð um umfangsmikið umsáturseinelti. Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu þegar hann gekk á vitnið, og úr varð nokkurt orðaskak.

2
Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
Foreldrar írskrar stúlku sem lést í bílslysi á Íslandi í lok sumars eru í senn þakklát Íslandi og sorgmædd yfir að hún lést langt fyrir aldur fram. Þau eiga þó erfitt með að fallast á að hún hafi látist í slysi, þar sem vísbendingar eru um að ekið hafi verið á yfir 200 kílómetra hraða í banaslysi dóttur þeirra.

3
Hátt í fjörutíu vitni í aðalmeðferð meints eltihrellis
Íris Helga Jónatansdóttir mun sitja ein í Héraðsdómi Reykjaness á mánudaginn og svara til saka. Hátt í fjörtíu vitni hafa verið boðuð vegna aðalmeðferðar málsins sem tekur fjóra daga.

4
Íris Helga handtekin grunuð um umsáturseinelti í öðru máli
Íris Helga Jónatansdóttir bar við minnisleysi og sagðist ekki kannast við netfang í tölvu sinni. Fyrir dómi kom fram að hún hefði nýverið verið handtekin vegna gruns um umsáturseinelti í óskyldu máli. Hún viðurkenndi að hafa ranglega kært mann fyrir kynferðisofbeldi og sent tilhæfulausa kvörtun til barnaverndar.

5
Árni Guðmundsson
Það er þetta með að skipta sér af og láta sig varða
Árni Guðmundsson er einn fremsti forvarnarsérfræðingur þjóðarinnar. Hann segir lærdóminn um að skipta sér af, að láta sig varða málefni þeirra sem minna mega sín, stærstu lífslexíuna.

6
Saltvítið við Evrópustrendur
Þegar Miðjarðarhafið þornaði upp
Mest lesið í mánuðinum

1
Vilja að Katla fari á elliheimili
Heilbrigðisráðuneytið hefur þrýst á að Katla Guðnadóttir, 24 ára gömul, velji sér hjúkrunarheimili til að flytja á tímabundið. Formaður ÖBÍ segir slíkar innlagnir ungs fólks sjaldnast verða tímabundnar. Katla hefur verið ári lengur á Grensásdeild en heilbrigðisstarfsfólk taldi þurfa og vill flytja heim til sín.

2
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragnarsdóttir nær dauða en lífi á skurðarborði Landspítalans eftir alvarlegt tilfelli meðgöngueitrunar. Íslenskur vísindamaður í Bandaríkjunum, Jóhann Elí Guðjónsson húðlæknir, leiðir brautryðjandi rannsóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúkdómurinn kemur fram. Hann telur mögulegt að þróa lyf við sjúkdómnum sem bjargað gæti mannslífum.

3
Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu
Brotaþoli lýsti flóknu ástarlífi Írisar Helgu Jónatansdóttur sem er sökuð um umfangsmikið umsáturseinelti. Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu þegar hann gekk á vitnið, og úr varð nokkurt orðaskak.

4
Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
Foreldrar írskrar stúlku sem lést í bílslysi á Íslandi í lok sumars eru í senn þakklát Íslandi og sorgmædd yfir að hún lést langt fyrir aldur fram. Þau eiga þó erfitt með að fallast á að hún hafi látist í slysi, þar sem vísbendingar eru um að ekið hafi verið á yfir 200 kílómetra hraða í banaslysi dóttur þeirra.

5
Hjónadjöflar
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Djöfla eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.

6
Ástleysið er sárt
Nánd er næring, nauðsynleg eins og matur. Tæpur helmingur fólks elst upp í óöruggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ástarsamböndum á fullorðinsárum, jafnvel ógnað heilsu, enda er „tengslamyndun ein af grunnforsendum farsældar“, að sögn klíníska sálfræðingsins Guðbrands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ástina í öllum sínum myndum.






























Athugasemdir