Sukk og svínarí í Sádi-Arabíu

Afkomendur konungsins ólust upp við ótrúlegt ríkidæmi og eru þekktir fyrir eyðslusemi og munaðarlíf. Nú eru kynslóða­skipti í vændum.

Þann 23. janúar síðastliðinn lést Abdullah, konungur Sádi-­Arabíu, og hafði hann þá stjórnað landinu í tæp tíu ár. Sama dag og Abdullah féll frá tók Salman, fyrrum krónprins, við krúnunni. Bróðir þeirra beggja, Muqrin, var svo skipaður nýr krónprins og á yfir­borðinu virðist erfðaröð landsins vera nokkuð stöðug. Fram til þessa hafa sex seinustu konungar landsins komið úr röðum sona stofnenda landsins, Abdulaziz, sem átti 45 syni og lést árið 1953. Í ljósi þess að Muqrin krónprins er yngsti sonur Abdulaziz og verður auk þess sjötugur á þessu ári er ljóst að núverandi fyrir­komulag er að renna sitt skeið. Afkomendur þessa 45 bræðra hafa alist upp við ótrúlegt ríkidæmi og eru einna helst þekktir fyrir eyðslusemi og munaðarlíf.

Tíu þúsund prinsar

Valdaætt Sádi-Arabíu er vægast sagt fjölmenn, 45 synir Abdulaziz eignuðust velflestir fjöldann allan af börnum, en talið er að prinsar landsins nemi ríflega tíu þúsund. Völd sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár