„Fjármálalestarslys“ sem hangi yfir tæplega 20 árum eftir að Framsókn breytti ÍLS í spilavíti

„Hvort á ég að taka af þér peninginn úr buxna­vasanum hægra megin eða vinstra megin,“ spurði þingmaður Samfylk­ing­ar­innar á þingi í dag þegar hann ræddi boðaða úrvinnslu ÍL-sjóðs.

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Hvort á ég að taka af þér peninginn úr buxna­vasanum hægra megin eða vinstra megin? Þetta eru kostirnir sem hæstvirtur fjármála­ráðherra stillir upp líkt og um sé að ræða sérstaka sparnaðar­aðgerð fyrir almenning. Ég er að sjálfsögðu að tala um það fjármála­lestarslys sem hangir ennþá yfir okkur tæplega 20 árum eftir að Framsóknar­flokkurinn breytti Íbúða­lánasjóði (ÍLS) í spilavíti.“

Þetta sagði Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag undir liðnum störfum þingsins, þegar hann ræddi þá stöðu sem upp er komin vegna ÍL-sjóðs, sem fyrir liggur að muni að óbreyttu tapa 200 milljörðum króna.

Tapið er tilkomið vegna skuldabréfa­flokka sem gefnir voru út af Íbúða­lánasjóði árið 2004 en voru ekki uppgreiðanlegir. Lántakendur flúðu síðar sjóðinn og nú eru útlán einungis um 20 prósent af eignum hans. Ávöxtun eigna stendur því ekki undir skuldum og sjóðurinn verður tómur löngu áður en síðustu skulda­bréfin, sem eru með gjalddaga 2044, eiga að koma til greiðslu.

Hvort á höggið að koma á ríkissjóð eða lífeyrissjóði?

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, tilkynnti á blaðamanna­fundi fyrir helgi að reynt verði að ná samkomu­lagi við eigendur skulda­bréfa sem ÍL-sjóður gaf út um að þeir gefi eftir hluta eigna sinna.

Tak­ist ekki að ná þessu sam­komu­lagi ætlar Bjarni að leggja fram frum­varp fyrir árs­lok sem feli í sér að ÍL-­sjóði verði slitið á næsta ári, skuldir hans látnar gjald­falla og með því myndi ein­föld rík­is­á­byrgð virkj­ast. Við það myndu 47 millj­arðar króna falla á rík­is­sjóð og skatt­greið­endur spara sér um 150 millj­arða króna á núvirði.

Það tap þyrftu þá aðrir að axla. Þessir aðrir eru að uppi­stöðu sami hópur og sá sem á að verja, almenn­ingur í land­inu. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins áttu íbúða­bréf útgefin af Íbúða­lána­sjóði fyrir 643 millj­arða króna í ágúst síð­ast­liðn­um. Það var um 75 pró­sent af öllum slíkum bréf­um um mitt þetta ár.

Jóhann Páll sagði í ræðu sinni í dag að heiðarlegast hefði verið af Bjarna að spyrja landsmenn á blaðamanna­fundinum: „Hvort viljið þið krakkar mínir taka á ykkur höggið í gegnum ríkissjóð eða í gegnum lífeyris­sjóðina ykkar?“

„Hvaða merkingu hefur ríkisábyrgð héðan í frá“

Talsmenn lífeyris­sjóða landsins hafa gagnrýnt þá leið sem ráðherrann boðar harðlega og meðal annars kallað hana tilraun til að ganga í sparnað almennings. Már Wolfgang Mixa, lektor í fjár­málum við HÍ og stjórn­ar­maður í Almenna líf­eyr­is­sjóð­un­um, sagði í Kast­ljósi í gær að það að slíta ÍL-­sjóði jafn­gildi greiðslu­falli rík­is­sjóðs og að það gæti haft neikvæð áhrif á lánshæfi ríkis­sjóðs. Bjarni hefur mótmælt þessari gagnrýni og í hádegis­fréttum Bylgjunnar líkti hann henni við þá orðræðu sem var uppi þegar verið að var að gera upp gömlu bankana, og ríkið átti í erjum við að mestu erlenda kröfuhafa.

Þegar umrædd skulda­bréf voru gefin út árið 2004 var skýrt í útgáfu­lýsingu þeirra að þau nutu ríkis­ábyrgðar. Fyrir vikið fengu útgáf­urnar sömu láns­hæf­is­ein­kunn og íslenska ríkið hafði á þessum tíma, AAA hjá Moody´s. Það er hæsta ein­kunn sem hægt er að fá hjá því láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki.

Jóhann Páll sagði stóru spurninguna í málinu einfalda. „Hvaða merkingu hefur ríkis­ábyrgð héðan í frá ef löggjafinn telur sig þess umkominn að gjör­breyta leik­reglunum eftir á? Og hvaða afleiðingar hefur það að umgangast ríkis­tryggð skulda­bréf og þá skilmála sem liggja þeim til grund­vallar með þessum hætti? Hvað þýðir þetta fyrir lánshæfi ríkis­sjóðs til lengri tíma? Hvað þýðir þetta fyrir samvinnu­verkefnin sem ráðist verður í hér á næstu árum og samstarf ríkis­sjóðs við stofnana­fjárfesta? Þetta eru stóru spurningarnar sem við þurfum að ræða hér í þingsal á næstu dögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár