„Ekki samsæri, aðeins harmleikur“

Kínverjar beita nú fleiri aðferðum en áður við saman­tektir á fjölda látinna og sýktra vegna veirunnar Covid-19. Þar með hefur tala látinna hækkað skarpt. Þetta er ekki samsæri heldur harm­leikur, segir pistla­höfundur.

Til margþættra aðgerða hefur verið gripið í Kina og víðar vegna faraldursins.
Til marg­þættra aðgerða hefur verið gripið í Kina og víðar vegna far­ald­urs­ins. Mynd: EPA

Tala látinna og sýktra vegna nýju kóróna­veirunnar hefur hækkað gríðar­lega eftir að heilbrigðis­yfirvöld i Kína breyttu aðferðum sínum við saman­tektir sínar. Samkvæmt tölum sem birtar voru í dag hafa tæplega 1.400 látist vegna veirunnar í landinu. 254 ný dauðsföll hafa verið skráð í Hubei-héraði einu saman en þar er faraldurinn talinn eiga upptök sín. Þá hafa verið 15 þúsund ný tilfelli smits verið staðfest í héraðinu og þar með um 60 þúsund í öllu landinu frá því í desember. Enn er unnið að því að uppfæra tölur fyrir önnur héruð landsins.

Heilbrigðis­yfirvöld í Hubei segja að héðan í frá verði tölur um sýkta og látna byggðar á fleiri greiningar­þáttum en áður. Nú verði einnig greiningar sem gerðar eru með tölvu­sneiðmyndum (CT) teknar með í reikninginn en ekki aðeins tilfelli sem greind hafa verið með þar til gerðum prófum.

Þessi breyting er gerð í kjölfar ásakana um að yfirvöld séu að greina rétt og satt frá raun­verulegri útbreiðslu faraldursins. Þá hafa próf sem notuð eru til greiningar verið af skornum skammti og fjölmargir sjúklingar hafa ekki fengið þá meðferð sem þeir þurfa.

Til ýmissa róttækra aðgerða hefur verið gripið í Kína til að reyna að hefta útbreiðslu veirunnar. Í borginni Shiyan í Hubei-héraði hefur algjört útgöngu­bann verið sett á, líkt og þegar stríðs­ástand ríkir. Einungis þeir sem vinna við að berjast gegn veirunni mega yfirgefa heimili sín. Allar byggingar í borginni hafa verið innsiglaðar.

Samanburðurinn við svínaflensuna

Pistla­höfundur China Daily, Mario Cavolo, ber í nýjum pistli saman áhrif svína­flensunnar árið 2009 og nýju kóróna­veirunnar, Cavid-19. Hann rifjar upp að sú flensa, sem var af völdum H1N1-veirunnar, hafi verið mjög skæð í Banda­ríkjunum. Í fyrstu hafi verið greint frá því að um 60 milljónir manna hafi sýkst af henni og yfir 18 þúsund látist.

Hins vegar hafi nýrri rann­sóknir sýnt að mann­fallið var mun meira eða um 300 þúsund.

„Þess vegna er ég að klóra mér í höfðinu yfir hinum undarlegu neikvæðu öflum sem ráðast á Kína og Kínverja í umfjöllun um kóróna-veiruna sem átti upptök sín í Wuhan í miðhluta Kína,“ skrifar hann og heldur áfram: „Á meðan H1N1-faraldurinn geisaði árið 2009 minnist ég þess ekki að hafa heyrt um kynþátta­fordóma í garð Bandaríkja­manna um allan heim. Gerir þú það?“

Hann spyr svo hvort að einhver ríkis­stjórn hafi á þessum tíma sent borgurum sínum í Banda­ríkjunum skilaboð um að yfirgefa landið, jafnvel ekki eftir að svína­flensan hafði breiðst út um alan heim. „Neibb, ekki píp,“ svarar hann sjálfum sér.

Hann segir allt annað uppi á teningnum núna. „Eitthvað er ekki í lagi gott fólk. Ég er að lesa um haturs­fullar árásir á kínversk stjórn­völd um þeirra meinta alþjóð­lega samsæri um að draga vísvitandi úr tölum um smit.“

Cavolo segir að mat á fjölda sýktra og látinna sé alltaf vandamál í faröldrum sem þessum. Þannig hafi fjöldi sýktra og látinna af völdum svína­flensunnar á sínum tíma verið stórlega vanmetinn lengi vel. Ýmsar skýringar liggi þarna að baki. Veirunni sé slétt sama í hvaða landi, innan hvaða landamæra, hún kemur sér fyrir. Þá vanti oft tól til að greiningar, eins og hafi nú gerst í Kína. Það vanti heilbrigðis­starfsfólk og sjúkrahús.

„Þetta eru stað­reyndir og ekki vandamál sem bundið er við kínverskt heilbrigðis­kerfi eða stjórn­völd. Þetta er ekki samsæri, aðeins harm­leikur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár