Hæstiréttur dæmdi ríkinu í óhag í Jöfnunarsjóðs-máli

Breytingar á reglugerð um úthlutun úr Jöfnunar­sjóði sveitar­félaga voru dæmdar ólöglegar í Hæstarétti í dag.

Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða Grímsnes- og Grafnings­hreppi 234,4 milljónir króna, að viðbættum vöxtum, vegna breytinga á reglugerð um úthlutun fjármuna úr Jöfnunar­sjóði sveitar­félaga, sem ekki samræmdum stjórnar­skrá.

Einn dómari af fimm, Benedikt Bogason, skilaði sératkævði, og taldi að staðfesta hefði átt dóm Lands­réttar, sem féll ríkinu í vil. „Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið tel ég reglugerðar­heimildina í 3. málslið 18. gr. laga nr. 4/1995 ekki í andstöðu við 2. mgr. 78. gr. stjórnar­skrárinnar. Einnig fellst ég á það með Lands­rétti að hún fari heldur ekki í bága við jafnræðis­reglu 65. gr. stjórnar­skrárinnar eða skerði þau réttindi sem njóta verndar í 76. gr. hennar. Samkvæmt þessu tel ég að staðfesta eigi dóm Lands­réttar um annað en máls­kostnað og fella hann á aðal­áfrýjanda á öllum dómstigum,“ segir í sératkvæði Benedikts.

Forsaga málsins er sú að ríkið gerði breytingar á reglugerð um úthlutun úr Jöfnunar­sjóði sveietarfélaga, þar sem kveðið var um að þau sveitar­félög sem hefðu heildar­skatttekjur af útsvari og fasteigna­skatti, sem teldist verulega umfram lands­meðaltal, skyldu ekki njóta tiltekinna framlaga úr sjóðnum.

Þágildandi reglugerð um Jöfnunar­sjóð sveitar­félaga nr. 960/2010 var svo breytt á grund­velli framan­greindrar heimildar með reglugerð nr. 1226/2012. Var þar mælt fyrir um nýja grein í stofn­reglu­gerðinni en samkvæmt henni skyldu framlög til þeirra sveitar­félaga þar sem heildar­skatttekjur væru að minnsta kosti 50 prósent umfram lands­meðaltal, það er útsvar og fasteigna­skattur á hvern íbúa miðað við full­nýtingu þeirra tekju­stofna, falla niður.

Grímsnes- og Grafnings­hreppur var eitt þeirra fimm sveitar­félaga sem sættu niður­fellingu jöfnunar­framlaga af þessum sökum. Höfðaði hreppurinn málið á þeim forsendum, og krafðist greiðslu sem svaraði til þeirra fjárhæðar sem hann hefði fengið á árunum 2013 til 2016 ef ekki hefði komið ti ákövrðun ráðherra um niður­fellingu greiðslnanna.

Í dómi Hæstaréttar kemur fram að í skýringum í greinar­gerð frumvarps til stjórnar­skipunar­laga nr. 97/1995 kæmi fram að tilgangur hennar væri að taka af skarið um að ákvörðun um tekju­stofna sveitar­félaga ætti undir löggjafar­valdið og þar með ekki undir framkvæmdar­valdið.

Í ljósi stjórn­skipulegrar stöðu sveitar­félaga og fyrirmæla 2. mgr. 78. gr. yrði laga­áskilnaðar­regla ákvæðisins ekki túlkuð á annan veg en þann, að ekki væri heimilt að fella niður tekju­stofna sveitar­félaga í heild eða að hluta nema með lögum.

„Eins og fram er komið var í skýringum í greinar­gerð frumvarps til síðastgreindra stjórnar­skipunar­laga með reglu þeirri er varð 2. mgr. 78. gr. sagt að tilgangur hennar væri að taka af skarið um að ,,ákvörðun“ um tekju­stofna sveitar­félaga ætti undir löggjafar­valdið og þar með ekki undir framkvæmdar­valdið. Í ljósi stjórn­skipulegrar stöðu sveitar­félaga og sérstak­lega fyrirmæla 2. mgr. 78. gr. verður laga­áskilnaðar­regla ákvæðisins ekki túlkuð á annan veg en þann, að ekki sé heimilt að fella niður tekju­stofna sveitar­félaga í heild eða að hluta nema með lögum. Það varð því ekki gert með reglugerð. Auk þess mælir ákvæði 3. málsliðar 18. gr. laga nr. 4/1995 í fyrsta lagi fyrir um heimild ráðherra til þess að ákveða hvort fella skuli niður umrædd jöfnunar­framlög eða ekki og í öðru lagi til þess að ákveða hvað telja beri ,,verulega umfram lands­meðaltal“. Ráðherra var þannig falið ákvörðunar­vald um hvort skerða skyldi tekju­stofna sveitar­félaga eða ekki andstætt því sem beinlínis var tekið fram í lögskýringar­gögnum með 2. mgr. 78. gr. svo sem rakið hefur verið. Þá er ljóst að ráðherra var ekki bundinn af ráðagerð í greinar­gerð frumvarps þess, sem síðar varð að lögum nr. 139/2012, um að 50% teldist verulega umfram lands­meðaltal. Hann gat því metið það svo að lægra, jafnvel mun lægra, hlutfall væri einnig verulega umfram lands­meðaltal, eða talið rétt að hlut­fallið væri hærra, jafnvel mun hærra en 50% til þess að fullnægja örugglega framan­greindum áskilnaði. Niður­staða ráðherra um þetta hefði leitt til þess að sveitar­félögum sem sættu niður­fellingu þeirra tekju­stofna, sem um ræðir, hefði fjölgað eða fækkað eftir atvikum,“ segir í dómnum.

Dómarar í málinu voru Þorgeir Örlygsson, Benedikt Bogason, Greta Baldurs­dóttir, Helgi I. Jónsson og Viðar Már Matthíasson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár