Sagði Bjarna annaðhvort ekki skilja einfaldar fjármálaafurðir eða vera að ljúga að þjóðinni

Kristrún Frosta­dóttir líkti Bjarna Benedikts­syni við Liz Truss á þingi í dag, sagði hann stunda „vúdúhagfræði“ og svara með frekju og hroka. Bjarni sagði Kristrúnu ekki skilja lögfræðina í máli ÍL-sjóðs og fara fram með útúr­snúninga.

„Kreddu­pólitík hæstvirtrar ríkis­stjórnar virðist nú vera að ná hámarki. Hæstvirtur fjármála­ráðherra fetar nú í fótspor fyrrum forsætis­ráðherra Breta, Liz Truss, með glanna­skap í efnahags­málum. Hann heldur blaðamanna­fund um hvernig hann ætlar að spara þjóðinni fúlgur fjár með því að knýja gamla Íbúða­lánasjóð í þrot. Álíka vanhugsað og hugmyndir Truss um að hægt sé að endur­reisa breska hagkerfið með því að ráðast í umfangs­miklar skatta­lækkanir. Ásýndar­stjórnmál drifin áfram af úreltri hugmynda­fræði um útvistun á pólitískri ábyrgð. Íslenskir fjármála­markaðir kaupa ekki þessa hugmynd hæstvirts ráðherra, ekki frekar en markaðir keyptu skatta­lækkunar­hugmyndir bresku ríkis­stjórnarinnar.“

Þetta sagði Kristrún Frosta­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og væntanlegur formaður hennar, í inngangi að fyrir­spurn um málefni ÍL-sjóðs sem hún lagði fyrir Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra og formann Sjálfstæðis­flokks, í óundirbúnum fyrirspurna­tíma í dag.

Hægt er að lesa um það sem ÍL-sjóðs málið snýst um hér, í frétta­skýringu Kjarnans sem birtist á mánudag.

Kristrún sagði að sú leið sem Bjarni hafi boðað í málefnum sjóðsins, að setja sjóðinn þrot með laga­setningu, væri enn ein bókhalds­brellan, tilfærsla á skuld og tilfærsla á pólitísku verkefni sem fór illa yfir á lífeyris­sjóði landsins. „Það er í hæsta máta óábyrgt að bera þessa vúdúhagfræði á borð fyrir þjóðina. Annað hvort skilur hæstvirtur fjármála­ráðherra ekki hvernig einfaldar fjármála­afurðir virka, eða hann er að ljúga af þjóðinni. Og ég veit ekki hvort er verra. Þegar á hæstvirtan ráðherra er gengið er svarað með frekju og hroka og skýlt sér á bakvið lögfræði­álit um lögmæti þessarar aðgerðar, sem er engan vegin afdráttar­laust. Samkvæmt hæstvirtum ráðherra ætlar ríkis­sjóður enga ábyrgð að bera á framtíðar­skuld­bindingum opinberrar stofnunar sem sett var á laggirnar í pólitískum tilgangi með lífeyri þjóðarinnar að veði.“

Spurning hennar til Bjarna sneri svo að þeirri 190 milljarða króna lánveitingu sem ríkis­sjóður tók úr ÍL-sjóði á árunum 2020 og 2021, til að standa straum að halla­rekstri á þeim árum vegna áhrifa kórónu­veiru­faraldursins. Hún spurði hvaða sjónarmið hefðu legið að baki ákvörðun Bjarna um að sækja þá upphæð í sjóðinn á þessum árum, fara fram hjá markaðnum í útgáfu skulda­bréfa og festa það sem hún kallaði „ofur­hagstæð kjör“ fyrir ríkissjóð á lánum frá ÍL-sjóði allt til ársins 2034. „Ef ætlunin var aldrei að standa undir framtíðar­skuld­bindingum sjóðsins er þessi snúningur býsna skugga­legur.“

Slík öfugmæli að um háalvarlegt mál væri að ræða

Bjarni brást við fyrir­spurninni með því að segja það fáránlegt að opna á umræðu um ÍL-sjóð í óundirbúnum fyrir­spurnum í ljósi þess að sérstök umræða fari fram um málefni sjóðsins á þingi síðar í dag. Þrátt fyrir það ætlaði hann að bregðast við nokkrum hlutum. „Það er mikill ábyrgðar­hluti þegar hátt­virtur þingmaður stendur hér í þingsal og heldur því fram að fram sé komið að ríkið ætli enga ábyrgð að bera á framtíðar­skuld­bindingum ÍL-sjóðs. Þetta eru slík öfugmæli þegar verið er að reyna að vitna í þann vanda sem ég hef vakið athygli á að það er háalvarlegt mál.“

Það væri fyrst ástæða til þess að hafa áhyggjur ef ákveðið væri að víkja sér undan ábyrgð ríkis­sjóðs á málinu. „Þegar hátt­virtur þingmaður sakar mig um að skilja ekki fjármála­markaði þá ætla ég að halda því fram að hátt­virtur þingmaður skilji ekkert í lögfræðinni í þessu máli. Vegna þess að það eina sem ég hef gert á þessum tíma­punkti er að vekja athygli á alvarlegri stöðu ÍL-sjóðs sem á ekki fyrir skuld­bindingum sínum. Ég hef vakið athygli á hvers eðlis ríkis­ábyrgð á skuldum ÍL-sjóðs er og ég hef sagt að það væri mitt mat, en á endanum ákvörðun Alþingis, að við ættum að gera upp sjóðinn á grund­velli þeirra loforða sem gefin voru á sínum tíma. Sem felur í sér fullt uppgjör gagnvart öllum kröfu­höfum á grund­velli ríkis­ábyrgðarinnar með slitum ÍL-sjóðs.“

Bjarni endurtók það sem hann sagði á blaðamanna­fundi á fimmtudag, að sú leið sem hann boði muni spara ríkis­sjóði aukna vænta áhættu inn í fram­tíðina. „En það tjón sem hátt­virtur þingmaður er að vísa til að verði út á fjármála­mörkuðunum ræðst á endanum á næstu 22 árum á því hvernig þeir spila úr þeim eignum sem til þeirra ganga með fullu uppgjöri á öllum skuld­bindingum ÍL-sjóðs, eins og þær standa á uppgjörs­degi. Og fáránlegt að vera með full­yrðingar um það hvernig úr mun spilast.“

Sagði Kristrúnu vera að tala fyrir því að strjúka fjármálaöflunum í landinu

Kristrún kom aftur í pontu og sagði það ótrúlegt að fylgjast með því að einn daginn hafi ráðherrann talað um að spara ríkis­sjóði 150 milljarða króna og þann næsta talað um að ekkert sé verið að gera. „Það er augljós­lega verið að taka framtíðar­greiðslu­flæði frá þessum sjóðum. Það átta sig allir á því sem skilja fjármála­afurðir sem eru óuppgreiðanlegar með þessari ríkis­ábyrgð. Þetta er útúr­snúningur á orðræðu sem hæstvirtur fjármála­ráðherra beitti fyrir sig í síðustu viku. Fullt uppgjör er greini­lega eitthvað allt annað skilgreiningar­atriði í þessu máli. “

Hún benti svo á að Bjarni hefði ekki svarað fyrir­spurninni sem hún lagði fram, um þá peninga sem ríkið tók að láni úr ÍL-sjóði, í ljósi þess að ekki hafi staðið til að uppfylla framtíðar­greiðslu­flæðis sjóðsins. Með því hafi verið farið í sjóði sem aðrir eiga.

Bjarni sagði málflutning Kristrúnar vera útúr­snúning. Þau ríkis­skuldabréf sem seld hafi verið inn í ÍL-sjóð í skiptum fyrir milljarðana 190 væru bestu skuldir sem sjóðurinn gæti átt. Skulda­bréfin væru verð­tryggð og hentuðu sjóðnum vel. „Ég hafna þessu algjör­lega.“

Kristrún væri að sjá fyrir sér að láta sjúklingnum, ÍL-sjóði, blæða hægt og rólega út og láta okkur það engu varða þó að í hverjum mánuði vaxi framtíðar­skuld­bindingar skatt­greiðenda um 1,5 milljarða króna, á hverju ári 18 milljarða króna. Hún væri að segja að strjúka þyrfti „fjármála­öflunum í landinu, kröfu­höfunum. Fjármála­markaðir verða ávallt að vera í forgangi.“ Hann væri hins vegar að mæla fyrir hönd framtíðar­kynslóðs þessa lands sem ættu það ekki skilið að ríkis­ábyrgð sem var skýrt hafi verið skilgreind sem einföld yrði útvíkkuð í sjálf­skuldar­ábyrgð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár