186 íslenskar fjölskyldur fengu 8,4 milljarða í arð vegna erlendra hlutabréfa

Innlend hlutabréfa­eign jókst á árinu 2020 en arðgreiðslur vegna hennar drógust saman og sölu­hagnaður sömuleiðis líka. Ástæður þess má leita í kórónu­veiru­faraldrinum. Þær fáu íslensku fjöl­skyldur sem áttu erlend hlutabréf tóku hins vegar út mikinn arð.

Það var ekki ástæða fyrir íslenska eigendur erlendra hlutabréfa að grípa oft um ennið á árinu 2020.
Það var ekki ástæða fyrir íslenska eig­endur erlendra hluta­bréfa að grípa oft um ennið á árinu 2020. Mynd: Úr safni

Í lok árs 2020 áttu einstaklingar á Ísland hlutabréf í íslenskum félögum sem metin voru á 73,6 milljarða króna að nafnverði. Hlutabréfa­eign var 6,6 milljörðum krónum meiri, eða 9,9 prósent, en í lok árs 2019.

Alls töldu 59.920 fjöl­skyldur fram hlutabréf, 3.906 fleiri en árið áður. Þá töldu 4.921 fjöl­skyldur fram 20 milljarða króna í erlendum hluta­bréfum, sem var 4,4 milljörðum króna eða 28,4 prósent meira en vegna ársins 2019. Fjöl­skyldurnar voru 424 fleiri en þá.

Þetta kemur fram í umfjöllun um álagn­ingu ein­stak­linga á árinu 2021 í Tíund, frétta­blaði Skatts­ins, sem Páll Kol­beins rekstr­ar­hag­fræð­ingur skrif­ar.

Vert er að taka fram að í tölum Tíundar er hlutafé talið fram á nafnverði, sem gefur mjög takmarkaða mynd af raun­verulegu verðmæti hluta­bréfanna. Upplausnar­virði bréfanna, það sem hægt væri að fá fyrir þau ef þau yrðu seld á markaðs­virði nú, er miklu hærra en nafn­virðið. Markaðs­virði skráðra félaga í Kauphöll Íslands jókst til að mynda um 312 milljarða króna á árinu 2020.

Í fyrra jókst það um rúm­lega eitt þús­und millj­arða króna og var 2.556 millj­arðar króna þegar því ári lauk. Því hefur virði hluta­bréfa skráð í íslensku Kaup­höllina aukist um meira en 1.300 milljarða króna á tveimur árum. Vert er að taka fram að nokkrar nýskráningar áttu sér stað á þessu tímabili. Í fyrra voru til að mynda tvær stórar skráningar á aðal­markað og tvær minni á First North markaðinn.

Söluhagnaður dróst saman

Af hluta­bréfum er oft greiddur arður. Á árinu 2020 fengu alls 8.660 fjöl­skyldur einhvern arð af slíkum, alls 44,4 milljarða króna. Arðurinn var 4,5 milljörðum krónum lægri en hann var árið áður og þeim sem fengu greiddan arð fækkað um næstum fimm þúsund. Þar spilaði kórónu­veiru­faraldurinn mikla rullu en þeim tilmælum var til að mynda beint til fjármála­fyrirtækja að greiða ekki út arð um tíma eftir að hann skall á og önnur skráð félög, til dæmis í þjónustu­starfsemi, fóru varlega í slíkar útgreiðslur á meðan að full áhrif faraldursins voru að koma fram. Þá hafði faraldurinn vitanlega mikil áhrif á rekstur þeirra skráðu félaga sem áttu hagsmuni í ferða­þjónustu, sem skrapp gríðar­lega saman þegar farþega­flutningar nánast lögðust af um tíma, og eru enn langt frá því sem þeir voru árið 2019.

Arður af erlendum hluta­bréfum jókst hins vegar mikið, eða um 8,4 milljarða króna milli ára, og 186 fleiri fjöl­skyldur fengu greiddan arð. Í Tíund segir að „um mjög mikla aukningu á arði af erlendum hluta­bréfum að ræða.“

Þeir sem eiga hlutabréf geta hagnast á þeim á annan hátt en að fá greiddan út arð vegna starfsemi fyrir­tækja. Þeir geta líka selt bréfin og leyst þannig út sölu­hagnað vegna hækkandi gengis þeirra.

Það virðist ekki hafa verið lenska á árinu 2020 að gera það í miklum mæli. Ein ástæða þess getur verið sú að aðrir fjár­festinga­möguleikar, eins og vextir á innlánun, gáfu ekki mikla arðsemi á umræddu ári þar sem stýri­vextir voru lækkaðir niður í 0,75 prósent.

Sölu­hagnaður var 26,1 milljarður króna árið 2020, eða 5,9 milljörðum krónum minni en árið áður. Í Tíund segir að árið 2020 hafi 3.839 fjöl­skyldur talið fram sölu­hagnað, en þar af töldu 3.155 fjöl­skyldur fram 23,1 milljarð króna í sölu­hagnað af hluta­bréfum og 757 fjöl­skyldur þrjá milljarða króna í annan sölu­hagnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár