Uppgefin fjármunaeign Íslendinga erlendis næstum 700 milljarðar króna í lok síðasta árs

Beinar fjármuna­eignir Íslendinga erlendis eru 44 prósent af því sem þær voru árið 2007. Upp­­­gefnar eignir lands­­manna á þekktum aflands­eyjum hafa dreg­ist mikið saman á und­an­­förnum árum.

Bein fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis jókst um 42 millj­arða króna á árinu 2020 og var 689,5 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Frá lokum árs 2017 hefur hún auk­ist um 139,5 millj­arða króna. Þetta kemur fram í nýlegum hag­­tölum frá Seðla­­banka Íslands.

Að uppistöðu er um eigið fé að ræða, alls 537,4 milljarðar króna, en útistandandi lán innlendra aðila til erlendra eru 152,1 milljarðar króna. Því var 78 prósent af eignum Íslendinga erlendis eigið fé. Ekki er óvarlegt að ætla að hluti þeirra lána hið minnsta sé milli tengdra aðila. Mestar eru eignirnar sem tengdar eru fjármála­starfsemi, alls 309 milljarðar króna. Af fjár­festingu innlendra aðila erlendis er tæpur helmingur í eignarhalds­félögum.

Bein fjármuna­eign innlendra aðila erlendis er órafjarri því sem hún var árið 2007, en þá áttu Íslendingar uppgefið 1.554 milljarða króna utan landsteinanna. Umfang fjármuna­eignar Íslendinga erlendis um síðustu áramót var því 44 prósent af þeirri upphæð.

Fjármuna­eignin óx tíma­bundið eftir bankahrun, aðallega vegna erlendra eigna þrotabúa föllnu bankanna, hafta á Íslandi sem komu í veg fyrir að kröfu­hafar þeirra greiddu sér þær eignir út og veikrar krónu gagnvart helstu viðskipta­myntum. Í árslok 2012 stór beina fjármuna­eign innlendra aðila erlendis í 1.587 milljörðum króna. Um helmingur þeirra eigna var vegna fjármála­starfsemi.

Mest í eignarhaldsfélögum í Hollandi

Mestar eru upp­­­gefnar fjármuna­eignir Íslend­inga í Hollandi, en þar eiga inn­­­lendir aðilar alls tæplega 402 millj­­arða króna. Þær jukust um 46 milljarða króna á síðasta ári. Megnið af því fé er í eignarhalds­félögum samkvæmt samantekt Seðla­banka Íslands.

Upp­­­gefnar eignir lands­­manna á þekktum aflands­eyjum hafa dreg­ist mikið saman á und­an­­förnum árum. Þannig er fjár­­muna­­eign inn­­­lendra aðila á Bresku Jóm­frú­­areyj­un­um, sem inn­i­heldur með ann­­ars Tortóla, sögð vera 22 millj­­ónir króna í tölum Seðla­­banka Íslands, sem er svipað og síð­ast­liðin ár. Í árs­­lok 2015 voru 32 millj­­arðar króna í eigu Íslend­inga sagðir vera vistaðir í eyja­kla­s­an­­um.

Sá hluti fjár­­muna Íslend­inga erlendis sem eru óflokk­aðir hefur marg­faldast á nokkrum árum. Í lok árs 2017 var hann met­inn á tæpa 25 millj­arða króna en um síð­ustu ára­mót var sú upp­hæð komin upp í 76,5 millj­arða króna.

Óflokkað stækkar

Eignir Íslend­ingar í krónum talið lækk­uðu skarpt á í útlöndum frá árunum 2016 og 2017. Þar spil­aði mikil styrk­ing íslensku krón­unnar stóra rullu. Í lok árs 2017 hafði fjár­muna­eign inn­lendra aðila í krónum talið ekki verið lægri frá árinu 2004.

Síð­ustu ára hefur þetta breyst og á tveggja ára tíma­bili, frá lokum árs 2017 og fram til lok árs 2019, juk­ust eign­irnar í krónum talið um 97 millj­arða króna. Það gerð­ist á sama tíma og íslenska krónan veikt­ist umtals­vert, og jók þannig krónu­virði helstu við­skipta­gjald­miðla.

Krónan veiktist skarpt árinu 2020 og hver evra kostaði 14,9 prósent meira í lok þess árs en í byrjun. Í ár hefur hún á móti styrkst um 5,2 prósent.

Skrán­ingu á erlendri fjár­­­­muna­­­­eign Íslend­inga var breytt fyr­ir­ nokkrum árum síð­­­­­­­an. Nú eru gefnar upp­­­­lýs­ingar um eign í færri löndum en áður en ­flokk­­­­ur­inn „óflokk­að“ hefur stækk­­­­að. Áður var hægt að sjá til að mynda hver bein fjár­­­­muna­­­­eign Íslend­inga er á Cayman-eyj­um, Mön, Jersey, Guernsey og Má­ri­­­­tí­us. Það er ekki hægt leng­­­­ur.

Líkt og áður sagði var „óflokk­uð“ bein fjár­muna­eign Íslend­inga rúm­lega 76,5 millj­arðar króna í lok árs 2020.

Íslend­ingar voru stórnot­endur skatta­skjóla

Erlend fjár­­­muna­­­eign Íslend­inga var mjög í kast­­­ljósi heims­ins vorið 2016 í kjöl­far frétta úr gagna­­­leka frá panömsku lög­­­fræð­i­­­stof­unni Mossack Fonseca sem gerður var opin­ber í apríl 2016.

Í þeim kom fram að um 600 Íslend­ingar teng­d­ust um 800 aflands­­­fé­lögum sem koma fram í skjöl­un­­­um. Fyrir liggur að mestu er um að ræða við­­­skipta­vini Lands­­­banka Íslands sem stund­uðu aflands­við­­­skipti. Ekki liggur fyrir hvaða milli­­­­­göng­u­liði Kaup­­­þing og Glitnir not­uðu, en sam­­­kvæmt við­­­mæl­endum Kjarn­ans sem þekktu vel til í starf­­­semi íslensku bank­anna fyrir hrun er ljóst að fjöldi aflands­­­fé­laga sem stofnuð voru fyrir íslenska við­­­skipta­vini eru mörg þús­und tals­ins. Því sýndi lek­inn frá Mossack Fonseca ekki nema brot af þeim aflands­fé­lögum sem þeir áttu, og eiga mögu­lega enn. Enn sem komið er hafa ekki komið fram upplýsingar um Íslendinga í nýjum leka, hinum svokölluðu Pandora-skjölum, en samstarfs­aðilar alþjóða­samtaka rannsóknar­blaðamanna (ICIJ) hérlendis, Reykjavik Media og Stundin, hafa boðað birtingu úr þeim gögnum á föstudag.

Lík­legt verður að teljast, að hluti þeirra eigna sem íslenskir rík­­is­­borg­­arar hafa komið fyrir í þekktum skatta­­skjól­um, séu ekki inni í þeim tölum yfir erlendar fjármuna­eignir inn­­­lendra aðila sem Seðla­­bank­inn birt­­ir. Til­­­gangur þess að stofna félag í skatta­­skjóli er enda fyrst og síð­­­ast tal­inn annar af tveim­­ur: að kom­­ast undan skatt­greiðslum eða til að leyna til­­vist eignar frá ein­hverj­­um.

Haustið 2019 hafði emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra, sem er ekki lengur til sem sjálfstæð stofnun, lokið rann­sókn í alls 96 málum sem eiga upp­runa sinn í Panama­skjöl­un­um. Af þeim höfðu alls 64 málum verið vísað til refsi­með­ferðar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara, farið hafði verið fram á sekt­ar­kröfu fyrir yfir­skatta­nefnd í 17 mál­um, refsi­með­ferð í tveimur málum var lokið með sekt­ar­gerð hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra og ekki var hlut­ast til um refsi­með­ferð í 13 mál­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár