Eignir tæknirisa aukast ævintýralega

Á síðustu mánuður hefur hlutabréfa­verð í Tesla og Amazon þotið upp. Frum­kvöðl­arnir Elon Musk og Jeff Bezos hafa hagnast verulega á þessu.

Elon Musk er stofnandi Tesla Motors.
Elon Musk er stofn­andi Tesla Motors. Mynd: EPA

Það er óhætt að segja að rafbíla- og raftækni­fram­leiðandinn Tesla Motors og tækni­risinn Amazon séu nú að ganga í gegnum mikið vaxtar­skeið. Tesla varð í dag verð­mætasti bíla­fram­leiðandi Banda­ríkjanna og fór verð­miðinn í fyrsta skipti yfir 50 milljarða Bandaríkja­dala. Næst þar á eftir kemur General Motors og síðan Ford, sem er 45 milljarða Bandaríkja­dala virði. Í byrjun ársins var fyrir­tækið 35 milljarða Bandaríkja­dala virði og því hefur aukning markaðs­virðis fyrir­tækisins verið mikil á undan­förnum þremur mánuðum, eða sem nemur um 15 milljörðum Bandaríkja­dala, um 1.700 milljörðum króna.

Eigandinn hagnast

Stærsti eigandinn, forstjórinn og stofn­andinn, Elon Musk, hefur hagnast verulega á þessum mikla uppgangi markaðs­virðis enda meðal stærstu eigenda félagsins. Hans eignir eru nú metnar upp á 18,4 milljarða Bandaríkja­dala.

Reiknað er með því að næsta ár verði stærsta ár í sögu Tesla en þá mun Tesla Model 3 bíllinn fara í almenna sölu en um 500 þúsund bílar hafa þegar verið forpantaðir. Bíllinn mun kosta frá 35 þúsund Bandaríkja­dölum, eða sem nemur tæplega fjórum milljónum króna.

Vaxtaráformin á fullu hjá Amazon

Annar tæknirisi hefur hefur upplifað mikinn vöxt að undan­förnu er Amazon en markaðs­virði þess er nú 431 milljarður Bandaríkja­dala og hefur það aukist um meira 100 milljarða Bandaríkja­dala á innan við einu ári, eða sem nemur um 11 þúsund milljörðum króna. Amazon er langsamlega verð­mætasta smásölu­fyrirtæki heimsins en næst á eftir því kemur Walmart, en markaðs­virði þess er 222 milljarðar Bandaríkja­dala.

Á næstu 12 mánuðum hyggst félagið ráða 80 þúsund nýja starfs­menn, en nú þegar hefur vaxtar­áætlun fyrir­tækisins, sem samþykkt var á hluthafa­fundi félagsins í fyrra, gengið eftir og gott betur og hafa 20 þúsund nýir starfs­menn verið ráðnir á síðustu tveimur mánuðum.

Fyrir­tækið hyggst opna tugi vöruhúsa um öll Banda­ríkin til að styrkja lager­starfsemi sína vegna mikils vaxtar í verslun á netinu. Þá er fyrir­tækið einnig að undirbúa innreið fyrir­tækis í smásölu í verslunum og verður þar stuðst við gervi­greind að miklu leyti, þar sem viðskipta­vinir munu geta gengið inn í verslunina, sótt vöruna og svo gengið út, án þess að þurfa að fara á afgreiðslu­kassa. App frá Amazon, Amazon Go, mun tryggja að notenda­upplýsingar um viðskiptin geymast og eru síðan skráð á kredit­kort viðkomandi viðskipta­vinar í gegnum Amazon svæði viðkomandi.

Ein slík verslun hefur verið opnuð í höfuð­stöðvum fyrir­tækisins í Seattle, en á næstunni verða fleiri verslanir opnaðar.

Eigandinn að verða sá ríkasti?

Næst ríksti maður heims í lok síðasta árs, Jeff Bezos, hefur hagnast ævintýra­lega á uppgangi félagsins en hann á ennþá 17 prósent eignar­hlut í félaginu. Í lok síðasta árs voru eignir hans metnar á 73 milljarða Bandaríkja­dala en frá þeim tíma hefur eignar­hlutur hans hækkað mikið, og eru eignir hans nú metnar á 77,7 milljarða Bandaríkja­dala.

Nágranni Bezos við Lake Washington á Seattle svæðinu, Bill Gates, er ríkasti maður heimsins en eignir hans eru nú metnar á 87 milljarða Bandaríkja­dala, samkvæmt uppfærðum lista Forbes.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár