Segist „fullur efasemda um harðari aðgerðir“

Þingmaður Sjálfstæðis­flokksins segir að honum sýnist „enn og aftur“ ekki horft til heildar­hagsmuna við ákvörðunar­töku varðandi sóttvarna­aðgerðir. Leiðin áfram sé að „treysta fólki til að taka ábyrgð á sjálfu sér“.

Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokks hér til vinstri.
Vil­hjálmur Árnason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks hér til vinstri. Mynd: Bára Huld Beck

Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðis­flokks lýsti yfir efasemdum um hertar aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu kórónu­veirunnar í gærkvöldi, en ríkis­stjórnin mun í dag funda um nýjar tillögur Þórólfs Guðna­sonar sóttvarna­læknis til heilbrigðis­ráðherra, sem meðal annars fela í sér að einungis 20 manns megi koma saman og að skólar opni ekki á ný fyrr en þann 10. janúar, samkvæmt því sem fram kom í fjöl­miðlum í gær, en minnis­blað Þórólfs hefur ekki verið gert opinbert.

Vilhjálmur, sem er þingmaður Suður­kjördæmis, gagnrýnir í færslu sinni að þingið hafi enga aðkomu að ákvörðunar­töku frekar en áður og segist „fullur efasemda um harðari aðgerðir.“ Í samtali við RÚV í morgun sagði Vilhjálmur að það væri „rík skoðun innan þing­flokks Sjálfstæðis­flokksins“ að meira þyrfti til að rökstyðja svona harðar takmarkanir.

„Á þeim tæpum tveimur árum sem við höfum glímt við faraldurinn höfum við farið úr því að vera óbólusett þjóð yfir í eina bólu­settustu þjóð jarðarinnar. Takmarkanirnar eru þó hér um bil þær sömu og er sá eftirtektar­verði árangur sem við höfum náð á sviði bólu­setninga þar með hafður að engu,“ skrifar þing­maðurinn.

Hann segir að þann mikla fjölda virkra smita í samfélaginu í dag skuli „lesa í því ljósi“ að mikil aðsókn hafi verið í hraðpróf undan­farið og vísar þar til frétta um að fimm prósent þjóðarinnar hafi farið í hraðpróf síðasta föstudag.

„Af þeim liggja ellefu á sjúkra­húsi, sem er umtals­vert minna en helstu sérfræðingar, þ.m.t. sóttvarnar­læknir, spáðu fyrir um fyrir skömmu,“ skrifar Vilhjálmur og bætir við að það sé „ríkis­stjórnarinnar og okkar þjóð­kjörinna fulltrúa að horfa til heildar­hagsmuna við alla ákvörðunar­töku. Enn og aftur sýnist mér að það sé ekki gert nú.“

Vilhjálmur segir að listafólk, veitinga- og gistigeirar horfi nú fram á algjört tekjuhrun, hópar sem „hafa lagt sig fram um að lifa með veirunni og hlýtt boðum yfirvalda um breyttar uppstillingar, aflögn standandi hlaðborða, neikvæð hraðpróf fyrir aðgang að viðburðum“ og fleira og að heims­faraldurinn hafi „áhrif á heilsu fólks sem sjaldnar er talað um.“

Þar á hann við andleg veikindi, kvíða, þunglyndi og frestun á að fólk leiti sér nauðsynlegrar heilbrigðis­þjónustu. „Fólk flosnar upp úr námi, mikilvæg þekking glatast á vinnu­stöðum og áfram mætti telja,“ segir þing­maðurinn og bætir við að fólk „hræðist ekki lengur veikindin af völdum covid, heldur sóttvarnar­yfirvöld og þeirra aðgerðir.“

Þing­maðurinn segir að áhrifin á yngstu kynslóðina eigi eftir að koma í ljós. Leiðin áfram, segir Vilhjálmur, er að „treysta fólki til að taka ábyrgð á sjálfu sér“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár