Fresta breytingum á skipulagi vegna vindorkuvers „því þetta er gríðarlega stór ákvörðun“

Sveitar­stjórn Norður­þings hefur ákveðið að fresta frekari vinnu við breytingu á aðal­skipulagi þar til umhverfis­mati fyrir­hugaðs vind­orkuvers á Melrakka­sléttu verður lokið að fullu. Gert í samræmi við vilja íbúa, segir forseti sveitar­stjórnar.

svæðið sem átti samkvæmt tillögu að breyta úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði á aðalskipulagi.
svæðið sem átti sam­kvæmt til­lögu að breyta úr land­bún­að­ar­svæði í iðn­að­ar­svæði á aðal­skipu­lagi. Mynd: EFLA

Ekki verður gerð breyting á aðal­skipulagi Norður­þings vegna áformaðs vind­orkuvers á Melrakka­sléttu fyrr en umhverfis­mati þess verður að fullu lokið. Þetta var samþykkt samhljóða á síðasta fundi sveitar­stjórnar. „Það voru allir sammála um að ef meirihluti íbúa á svæðinu vildi bíða og fá umhverfismat myndum við gera það,“ segir Kolbrún Ada Gunnars­dóttir, fulltrúi V-lista (lista VG og óháðra) og forseti sveitar­stjórnar Norður­þings, í samtali við Kjarnann. Sú afstaða hafi komið fram á íbúafundi hverfis­ráðs Kópaskers nýverið.

Ada, eins og hún er oftast kölluð, er sjálf þeirrar skoðunar að vind­orkuver á Melrakka­sléttu sé ekki góður kostur fyrir svæðið. Frekar ætti að berjast fyrir því að styrkja innviði fyrir raforku­flutninga í sveitar­félaginu. „Mér hugnast ekki þessi stað­setning. Að setja þarna 43 vind­myllur, sem fara í einhverja 200 til 300 metra hæð, finnst mér bara galið.“ Mikilvægt sé hins vegar að íbúar hafi öll þau gögn sem þurfi til að taka afstöðu og þau muni m.a. fást er umhverfis­áhrif framkvæmdarinnar verða metin.

Unnið hefur verið að hugmyndum á breytingum aðal­skipulags sveitar­félagsins vegna vind­orkuversins á Melrakka­sléttu í nokkra mánuði. Tillaga að skipulags- og mats­lýsingu var kynnt um síðustu áramót og drög að tillög­unni að sjálfri breytingunni svo auglýst og hún kynnt á fundi á Kópaskeri 14. júní.

Þeir sem sáu um þá kynningu voru fulltrúar framkvæmda­aðilans, Qair Iceland ehf., auk ráðgjafa frá Eflu en sú verkfræði­stofa vann bæði tillögu að mats­áætlun orku­versins fyrir fyrir­tækið og tillögu að aðal­skipulags­breytingunni.

Samkvæmt tillög­unni átti að breyta 33 ferkílómetrum lands á Melrakka­sléttu úr landbúnaðar­svæði í iðnaðar­svæði svo þar yrði hægt að reisa um 40 vind­myllur sem hver yrði um 200 metrar á hæð.

Skipulagsstofnun setti sautján skilyrði

Ákvörðun Skipulags­stofnunar um mats­áætlun Qair Iceland vegna hins fyrir­hugaða vind­orkuvers, lá fyrir í byrjun júlí. Stofnunin féllst á áætlunina, sem er eitt skrefið í umhverfis­mats­ferlinu, en með skilyrðum sem sett voru fram í sautján liðum. Bent var m.a. á að fram þurfi að fara mat á áhrifum á óbyggð víðerni þar sem hið fyrir­hugaða framkvæmda­svæði einkennist af víðfeðmu flatlendi og sjáist því víða að. Þá leggur stofnunin á það sérstaka áherslu að í frummats­skýrslu, sem er næsta skref í mati á umhverfis­áhrifum, verði við nálgun og fram­setningu mats á áhrifum á fugla fylgt bestu starfs­venjum og að rann­sóknir á þeim þurfi að standa í að minnsta kosti tvö ár.

Í öllu þessu ferli kom fram hörð gagnrýni frá ýmsum aðilum, m.a. íbúum á svæðinu. Á það var m.a. bent að í núverandi aðal­skipulagi Norður­þings stendur: „Forðast skal að raska ósnortnum víðernum í Norður­þingi með því að reisa þar mannvirki eða annars gæta þess að þau valdi sem minnstu raski og sjón­mengun.“

Þá stendur í sáttmála meirihluta Norður­þings 2018-2022: „Tryggja að ekki verði ráðist í verkefni innan Norður­þings sem útheimti nýja virkjunar­kosti á viðkvæmum ósnortnum svæðum í Þing­eyjarsýslum.“

Ada ákvað í kjölfar gagn­rýninnar að leggja fram tillögu á fundi byggðar­ráðs Norður­þings um að fallið yrði frá breytingum á aðal­skipulagi þar til umhverfis­mati yrði að fullu lokið. Hún hvatti einnig til þess að vilji íbúa til hins áformaða vind­orkuvers yrði kannaður.

„Að breyta aðal­skipulagi svæðis úr land­búnaðar­landi í iðnaðar­svæði til orku­nýtingar til að rúma vind­orkuver á mjög stórum skala er ekki léttvæg auglýsing eða kynning heldur stefnu­markandi ákvörðun sveitar­félags,“ skrifaði Ada m.a. í greinar­gerð með tillögu sinni sem tekin var fyrir í byrjun júlí. Hún benti á að fjórtán umsagnir og athuga­semdir hefðu borist „og engin þeirra jákvæð“. Þá benti hún einnig á að „í besta falli“ væru áhöld um það hvernig þessar framkvæmdir ættu að nýtast sveitar­félaginu og nærsamfélaginu. „Ekkert liggur fyrir um það hvernig orkan verði nýtt og ennfremur ekkert sem tryggir að orkan verði nýtt á nærsvæðinu. Samfélags­ábati er því óljós, burtséð frá umhverfis­áhrifum öllum.“

Byggðar­ráðið frestaði afgreiðslu á tillögu Ödu þar til í ágúst en samþykkti á seinni fundi sínum í júlí að viðhorf íbúa í nágrenni hins fyrir­hugaða vind­orkuvers yrði kannað.

„Þegar þetta var kynnt fyrst fyrir okkur þá var alltaf talað um að þetta væri í samvinnu við land­eigendur þannig að maður vildi ekki stíga á tærnar á mönnum á meðan þetta var í rannsóknar­fasa,“ segir Ada við Kjarnann um forsögu málsins. Þegar hún hins vegar hafi séð allar þær neikvæðu umsagnir og athuga­semdir sem bárust vegna tillög­unnar og heyrt í mörgum sem voru ósáttir ákvað hún að skoða málið betur. Þá tók hún m.a. eftir því að framkvæmda­aðili var búinn að fjölga vind­myllunum úr 33 í 43. Hún lagði því fram tillögu um að fresta aðal­skipulags­breytingunni. „Því þetta er gríðar­lega stór ákvörðun. Að fara að breyta aðal­skipulagi án þess að vita nákvæmlega hvaða áhrif það myndi hafa á svæðið.“

Hún spurðist fyrir um hvort að frestun aðal­skipulags­breytingar þar til umhverfis­mati yrði lokið myndi hægja verulega á öllu ferlinu og fékk þau svör að svo væri ekki. „Þannig að ég gat ekki séð að okkur lægi svo lífið á að breyta aðal­skipulagi. Því það er mjög stórt skref og ætti að mínu mati þá alltaf að vera síðasti punktur í ferli.“

Skiptar skoðanir en allir sammála um frestun breytinga

Á fundi hverfis­ráðs Kópaskers sem haldinn var 18. ágúst mættu margir sem búa í nágrenni hins fyrir­hugaða framkvæmda­svæðis. „Þar komu fram ýmsar athuga­semdir,“ segir Ada. „Það eru ekki allir á móti þessu en allir voru sammála um að það væri gott að fá fyrst niður­stöðu umhverfis­mats.“

Funduð þið eða þú fyrir þrýstingi frá framkvæmda­aðila að fara í þessar aðal­skipulags­breytingar áður en umhverfis­mats­ferlinu væri lokið?

„Nei, kannski ekki hægt að segja það, ekki þannig. Það kemur náttúru­lega upp þetta um að halda ferlinu gangandi. Og eðlilega vilja þeir keyra þetta allt í gegn sem hraðast af því að þetta er nátt­úrlega þeirra fjár­festing.“

Ada segir enga ákvörðun hafa verið tekna um að hætta við íbúa­könnunina. Kristján Þór Magnússon, sveitar­stjóri Norður­þings, segir í skriflegu svari til Kjarnans að eftir „afar góðan íbúafund á Kópaskeri“ reikni hann með að aflað verði frekari upplýsinga um hina fyrir­huguð framkvæmd áður en könnunin fari fram.

„Ég held að margir eigi erfitt með að taka afstöðu án þess að hafa frekari gögn í höndunum,“ segir Ada. „Ég myndi segja að þegar umhverfis­mati lýkur sé hægt að halda kynningu, svara spurningum og svo væri svo hægt að kanna viðhorfið, þá yrði fólk komið með gögn í hendurnar til að mynda sér skoðun.“

Ada tók fyrr á árinu við starfi skóla­stjóra Borgar­hólsskóla sem er ein stærsta stofnun sveitar­félagsins Norður­þings. Hún tók því þá ákvörðun að hætta í sveitar­stjórn, þó að hún muni áfram sitja í nefndum fyrir hönd V-lista. Aldey Trausta­dóttir kemur inn í sveitar­stjórn í hennar stað og verður forseti hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár