Áhrifasvæðið myndi ná langt inn á óbyggð víðerni

Bæði Skipulags­stofnun og Náttúru­fræði­stofnun vilja að fugla­rannsóknir vegna áformaðs vind­orkuvers á Melrakka­sléttu standi í tvö ár. Á svæðinu eru uppeldis­stöðvar rjúpu. Þeim er sérstak­lega hætt við að fljúga á hindranir. Myllurnar yrðu um 200 metra háar.

Hið áformaða virkjanasvæði er í grænum lit fyrir miðri mynd.
Hið áform­aða virkj­ana­svæði er í grænum lit fyrir miðri mynd. Mynd: Úr drögum að breytingu á aðalskipulagi Norðurþings

Skipulags­stofnun féllst á mats­áætlun fyrir mat á umhverfis­áhrifum vind­orkuvers á Melrakka­sléttu með skilyrðum sem sett eru fram í sautján liðum. Bent er m.a. á að fram þurfi að fara mat á áhrifum á óbyggð víðerni þar sem hið fyrir­hugaða framkvæmda­svæði einkennist af víðfeðmu flatlendi og sjáist því víða að. Þá leggur stofnunin á það sérstaka áherslu að í frummats­skýrslu, sem er næsta skref í mati á umhverfis­áhrifum, verði við nálgun og fram­setningu mats á áhrifum á fugla fylgt bestu starfs­venjum og að rann­sóknir á þeim þurfi að standa í að minnsta kosti tvö ár.

Fyrir­tækið Qair Iceland áformar að byggja og reka vind­orkuver á Melrakka­sléttu og er verkefnið kennt við örnefnið Hnota­stein. Það bóndabýli sem stendur næst framkvæmda­svæðinu er í 2,9 kílómetra fjarlægð og næsta þorp við framkvæmda­svæðið er Kópasker, í um 6,5 km fjarlægð.

Í tillögum fyrir­tækisins kemur fram að áætluð stærð versins, með 34 vind­myllum, yrði allt að 200 MW og að það yrði reist á rúmlega 30 ferkílómetra lands­svæði. Um er að ræða alþjóð­lega mikilvægt fugla­svæði (IPA) fyrir æður, ritu, kríu, álku, lóm og himbrima á varptíma og á fartíma fyrir rauðbrysting, sanderlu, sendling og tildru. Strönd Melrakka­sléttu er auk þess mikil­vægur viðkomu­staður farfugla á leið milli Evrópu og Grænlands/Kanada.

Þá hefur Náttúru­fræði­stofnun Íslands lagt til að Melrakka­slétta fari á framkvæmda­áætlun náttúru­minjaskrár sem á að njóta forgangs um frið­lýsingu eða friðun á næstu fimm árum. Melrakka­slétta er tilnefnd á skrána vegna ferskvatns­vistgerða, fjöru­vistgerða og fugla.

Gert er ráð fyrir að uppbygging vind­orkuversins fari fram í tveimur áföngum. Áætlanir miðast við að vind­myllur verði allt að 200 metrar að hæð. Til saman­burðar er Hallgríms­kirkjuturn 74 metrar. Fyrir­hugað er að lagðir verði nýir 4,5 metra breiðir malar­slóðar um svæðið og að hverri vindmyllu. Gert er ráð fyrir að jarð­strengir frá hverri myllu verði grafnir meðfram slóðunum og aðalvegi að safn­stöðinni og stöðin síðan tengd flutnings­kerfi Landsnets með háspennu­línum. Undir­stöður undir hverja vindmyllu verða um 1600 m² og vinnuplan við vind­myllur rúmlega 2200 m². Heildar­efnisþörf fyrir­hugaðra framkvæmda er áætluð um 250.000 m³.

Ekki tekið til meðferðar í rammaáætlun

Skipunar­tíma verkefnis­stjórnar 4. áfanga ramma­áætlunar lauk í vor og í tillögum hennar, á flokkun virkjunakosta, voru fimm vindorku­kostir teknir fyrir. Vind­orkuverið Hnota­steinn var ekki einn þeirra og á því enn eftir að fara í gegnum það matsferli sem lýkur með þings­ályktunar­tillögu sem Alþingi þarf að samþykkja. Ferlið er hins vegar í miklum hnút og enn á eftir að afgreiða þings­ályktunar­tillögu að 3. áfanga áætlunarinnar sem byggir á loka­skýrslu verkefnis­stjórnar sem gefin var út í ágúst árið 2016.

Skipulags­stofnun samþykkir mats­áætlun Qair vegna áformaðs vind­orkuvers á Melrakka­sléttu með ýmsum skilyrðum og er í ákvörðun hennar mest áhersla lögð á rann­sóknir á fuglum enda segir í ákvörðun hennar að mat á áhrifum á fugla sé einn þýðingar­mesti þáttur umhverfis­mats vind­orkuvera.

Fram kemur í tillögu Qair að aðferða­fræði sú sem stuðst er við til að rannsaka fuglalíf á svæðinu taki mið af leið­beiningum Scottish Natural Heritage (SNH) þar sem mælt sé með að fuglalíf á tilteknu framkvæmdar­svæði sé kannað í tvö ár nema hægt sé að færa rök fyrir því að þess sé ekki þörf.

Sögðu lítinn fjölbreytileika fugla á svæðinu

Fyrstu niður­stöður fyrir­tækisins, eftir 162 klukku­stundir af sjónarhóls­mælingum á tímum haustfars árið 2020, sýna, að því er fram kemur í tillög­unni, lítinn fjöl­breytileika fugla og að fuglalíf á fyrir­huguðu framkvæmda­svæði sé fremur fábreytt. Því metur framkvæmdar­aðili það svo að yfirgrips­miklar rann­sóknir á einu ári séu nægjanlegar til að framkvæma áreiðanlegt mat á áhrifum framkvæmdarinnar á fuglalíf. Þessu eru bæði Skipulags­stofnun og Náttúru­fræði­stofnun Íslands ósammála.

Í umsögn Náttúru­fræði­stofnunar um tillögu Qair að mats­áætlun kom fram að flokkun Melrakka­sléttu sem mikilvægs fugla­svæðis byggi ekki aðeins á sjófugla­byggðum líkt og fullyrt væri í tillög­unni. Þar séu einnig mikil­vægir vetrar,- og viðkomu- og fjaðra­fellis­staðir, auk mikil­vægra varpsvæða fyrir himbrima og fálka. Báðar þessar tegundir verpa og/eða nýta svæðið við Hnota­stein til fæðu­öflunar.

Í ljósi þessa verði að gera ríkar kröfur til rannsókna á fuglalífi í tengslum við fyrir­hugaða framkvæmd. Stofnunin lagði í umsögn sinni til að þar sem Hnota­steinn væri á mikilvægu fugla­svæði og það nýtt af tegundum á válista, auk þess sem mikið af farfuglum leggi leið sína um þessar slóðir og að farleiðir væru ekki þekktar, yrði að gera ráð fyrir a.m.k. tveggja ára athugunum á fuglalífi með sjónarhóls­athugunum sem nái yfir varptíma og fartíma vor og hausti.

Tífaldur munur á fjölda rjúpa á milli ára

Náttúru­fræði­stofnun benti ennfremur á að uppeldis­stöðvar rjúpu væru á svæðinu og að rjúpur væru meðal þeirra fugla sem rann­sóknir sýni að er sérstak­lega hætt við að fljúga á hindranir. Um þessar mundir er stofninn í sögulegu lágmarki og því er frekar lítið af rjúpum við Hnota­stein en allt að tífaldur munur getur verið á rjúpna­mergð í hámarks- og lágmarks­árum. Þá minnti stofnunin á að rjúpur væru mikið á ferli um dimmu­mótin og að þær athuganir sem Qair hyggðist fara í myndu ekki varpa ljósi á þýðingu svæðisins fyrir rjúpur utan varptíma.

Í svörum Qair kemur fram að framkvæmdar­aðili telji ratsjár­mælingar vera bestu leiðina til að kanna atferli rjúpunnar í ljósa­skiptum. Þó að aðferðin væri ekki gallalaus, t.d. þegar rjúpan flýgur lágt, þá teldi framkvæmdar­aðili þessa aðferð henta betur en aðrar. Auk þess yrðu lagðar fram mótvægis­aðgerðir í frummats­skýrslu eins og að mála hluta vindmylla.

Qair hefur lýst því yfir að sú aðferða­fræði sem stuðst er við til að rannsaka fuglalíf á svæðinu taki mið af leið­beiningum Scottish Natural Heritage en eins og Náttúru­fræði­stofnun Íslands hefur bent á í sínum umsögnum um vind­orkuver er ekki alfarið hægt að yfirfæra skoskar leið­beiningar um þetta efni upp á aðstæður hér á landi, segir í ákvörðun Skipulags­stofnunar.

„Sú uppbygging sem hér er fyrir­huguð er án fordæma hér á landi, en þekkt er erlendis að vind­orkuver geta haft mikil áhrif á fuglalíf,“ segir stofnunin. Þá séu almennt einnig til takmarkaðar upplýsingar um farleiðir fugla um Ísland. Hér eigi því við að leggja varúðar­sjónarmið til grund­vallar.

Í ljósi þess að ekki liggja fyrir sérstakar reglur eða leið­beiningar um það hvernig standa skal að mati á áhrifum vind­orkuvera á fuglalíf hér á landi, telur Skipulags­stofnun að rann­sóknir þurfi að standa a.m.k. í tvö ár og spanna, auk varptíma, fartíma vor og haust. Rann­sóknirnar þurfi að ná yfir allt framkvæmda­svæðið. „Upplýsa þarf um það hvaða fuglar verða helst í árekstrar­hættu við vind­myllur og hver eru líkleg afföll þeirra.“

Skipulags­stofnun gerir ekki athuga­semdir við ratsjár­mælingar en bendir á að bera þurfi niður­stöður þeirra undir stofnunina, sem muni í samráði við Náttúru­fræði­stofnun leggja mat á hvort þær kalli á frekari athuganir og mat á áhrifum á áflugs­hættu, áður en frummats­skýrslu er skilað.

Aðrir þættir sem Skipulags­stofnun leggur sérstaka áherslu á í ákvörðun sinni eru ásýnd lands og áhrif á samfélag, útivist og ferða­mennsku. Stofnunin segir m.a. að vindorku­garður af þeirri stærðar­gráðu og fyrir­hugaður er að Hnota­steini komi óhjá­kvæmilega til með að breyta ásýnd á umfangs­miklu svæði sem ber lítil merki mannlegra athafna og sýnileiki vind­myllanna kunni að hafa áhrif á upplifun ferða­manna og eins og Vatna­jökuls­þjóðgarður bendi á í umsögn sinni er þjóð­garðurinn í næsta nágrenni við fyrir­hugað framkvæmda­svæði. Sjónræn áhrif vindmylla sé sá áhrifa­þáttur sem er líklegur til að hafa mest áhrif á ferða­þjónustu og útivist.

Í frummats­skýrslu þurfi því að meta gildi og aðdráttarafl svæðisins með tilliti til ferða­mennsku og útivistar, t.a.m. með viðhorfs­könnunum eða viðtölum við ferðamenn, ferða­þjónustu­aðila og íbúa á svæðinu. Slíkt mat þurfi að leggja til grund­vallar mati á áhrifum á samfélag, útivist og ferðamenn. Fyrir­liggjandi rann­sóknir á viðhorfi til vindgarða þurfi að setja í samhengi við framkvæmda­svæðið. Þá þurfi að gera ráð fyrir að við matið verði tekið mið af sýni­leikakorti og mati á áhrifum á landslag og ásýnd.

Aðalskipulagsbreyting í farvatninu

Fyrstu drög að breytingu aðal­skipulags Norður­þings vegna hins fyrir­hugaða vind­orkuvers voru kynnt á íbúafundi á Kópaskeri um miðjan júní. Fulltrúar Qair kynntu verkefnið ásamt fulltrúum Eflu verkfræði­stofu. Við skipulags­breytinguna, sem endanlega verður mótuð á næstu vikum og mánuðum, er horft til þess að rúmlega 33 ferkílómetra svæði verði skilgreint sem iðnaðar­svæði og að þar megi byggja upp allt að fjörutíu vind­myllur.

Á heimasíðu Norður­þings segir að fundurinn hafi verið vel sóttur og að á honum hafi skapast „umtals­verðar umræður“ þar sem fram komu „ýmis sjónarmið“ sem horft verði til við framhald vinnunnar.

Hér er hægt að nálgast drögin að aðal­skipulags­breytingunni. Ef og þegar breytingarnar verða auglýstar verður lögum samkvæmt leitað umsagnar stofnana og fleiri aðila sem og almenningi gefið færi á að gera athuga­semdir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár