Aldraðir mótmæla opnun mötuneytis og óttast Covid-19 smit

Íbúar á öldruna­heimilinu Seljahlíð eru mjög ósáttir við fyrir­hugaða opnun mötuneytis þar fyrir fólk utan heimilisins. Þau telja að með því sé verið að setja þau í hættu. Forstöðu­kona segir að um nauðsyn­lega þjónustu sé að ræða fyrir skjól­stæð­inga Selja­hlíðar.

Ósátt og telja sig sett í hættu
Ósátt og telja sig sett í hættu Ingi­björg segir að íbúar í Selja­hlíð vilji að beðið sé með að opna mötu­neytið fyrir utan­að­kom­andi þar til allir íbúar hafi fengið bólu­setn­ingu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Íbúar í Seljahlíð, þjónustíbúðakjarna og hjúkrunar­heimili, eru mjög ósáttir við fyrir­hugaða opnun á mötuneyti heimilisins fyrir fólk sem ekki býr þar. Mötuneytis­þjónusta hefur verið lokuð fyrir utan­aðkomandi síðustu mánuði til að hamla hugsanlegu Covid-19 smiti. Nú er fyrir­hugað að opna mötuneytis­þjónustuna fyrir fólki sem ekki býr inn á heimilinu sjálfu. Á fjórða tug íbúða í þjónustu­íbúðum hafa undir­ritað mótmæla­skjal vegna þessa.

Rekin er mötuneytis­þjónusta inni í Seljahlíð þar sem íbúar fá sínar máltíðir en aðrir aldraðir, sem búa utan Selja­hlíðar, hafa einnig haft kost á að koma þangað og fá mat. Tekið var fyrir þá þjónustu nú fyrir áramót til að hamla gegn útbreiðslu kóróna­veirunnar, og raunar hafði það einnig verið gert í tvígang áður í fyrri bylgjum faraldursins. Nú er fyrir­hugað að opna á þessa þjónustu aftur, næst­komandi mánudag.

Telja sig óvarin fyrir veirunni

Ingibjörg Finnboga­dóttir býr í þjónustu­íbúð í Seljahlíð og er mjög ósátt við fyrir­hugaða opnun. „Það voru tuttugu manns bólu­settir hér, fólk sem býr í hjúkrunar­rýmum hér í Seljahlíð. Við sem búum í þjónustu­íbúðunum fengum hins vegar ekki bólu­setningu, tæplega fimmtíu manns, þeir yngstu á sjötugsaldri en þeir yngstu um eitthundrað ára. Ég verð nú að segja að ég, og við, erum frekar ósátt við það, við teljum okkur búa hér á heimili fyrir aldraða. Ég frétti síðan af því að þegar búið væri að sprauta fólk með seinni sprautunni ætti að opna mötuneytis­þjónustuna á ný. Við það erum við afar ósátt því við teljum að með því séum við óvarin gegn veirunni.“

Ingibjörg segir að íbúar í þjónustu­íbúðunum hafi að mestu verið í sjálf­skipaðri einangrun mánuðum saman. Þau panti sér vörur með netverslun, fari sem minnst út og fái ekki gesti. Allir fari varlega, passi upp á sig og starfs­fólkið geri hið sama.

„Við viljum þetta bara alls ekki, það styðja mig allir í þessu og ég fæ ekki annað séð en að starfs­fólkið sé á sama máli. Ég fór til forstöðu­konunnar, Margrétar Ósvalds­dóttur, og lýsti því að við íbúarnir óskuðum eftir að það yrði ekki af þessu. Hún gerði nú lítið með það, svörin voru sú að Reykja­víkurborg væri að opna þessa þjónustu.“

„Við viljum bara að það verði beðið eftir því að við höfum fengið bólu­setn­ingu svo við séum ekki sett í hættu“
Ingi­björg Finn­boga­dóttir

Ingibjörg hóf því undir­skrifta­söfnun til að mótmæla opnuninni og óska eftir að óbreyttar reglur yrðu í gildi þar til búið væri að bólusetja íbúa í þjónustu­íbúðunum. Á einni kvöld­stund fékk Ingibjörg á fjórða tug undir­skrifta sem hún afhenti Margréti. „Þá fengum við þau svör að ákveðið hefði verið að opna ekki mötuneytis­þjónustuna nema fyrir það fólk sem býr á Þúfunni.“ Þúfan eru parhús á lóðunum Hjalla­seli 17-53 sem eru hluti af þjónustu­kjarnanum í Seljahlíð en eru ekki innan aðal­húsnæðisins þar sem er að Hjalla­seli 55.

Ingibjörg segir að íbúar inni í Seljahlíð séu ósáttir við þetta. „Fólkið sem býr á Þúfunni er ekki búið að binda sig heima við eins og við, það er frjálst að því að fá gesti og fara hvert sem það vill. Þetta fólk valdi að búa í einbýli. Við viljum bara að það verði beðið eftir því að við höfum fengið bólu­setningu svo við séum ekki sett í hættu.“

Segir meiri hættu vegna starfsfólks

Margrét Ósvalds­dóttir forstöðu­kona Selja­hlíðar segir að fólkið sem búi í svokallaðri Þúfu fái heima­þjónustu frá starfs­fólki Selja­hlíðar. „Það er sama starfs­fólk sem er að sinna íbúum þar og inni í aðal­byggingunni svo það er sama hætta á smiti.“ Engu að síður hefur fólkið sem býr á Þúfunni ekki fengið að koma í mat inni í aðal­byggingu Selja­hlíðar frá því að þriðja bylgja Covid-19 hófst í september, síðan þá hefur mötu­neytið verið lokað fólki sem býr utan aðal­byggingarinnar. Fólkið fékk þá heim­sendan mat og ekkert kemur í veg fyrir að hægt sé að halda því áfram. Um er að ræða fjóra einstaklinga. „Það stendur til að ég opni fyrir þessi fjögur á mánudaginn kemur,“ segir Margrét.

„Þetta fólk hefur látið veru­lega á sjá með því að missa þessa rútínu sína, færni þeirra er að daprast“
Margrét Ósvalds­dóttir

Spurð hvort hún hafi skilning á áhyggjum íbúanna sem ekki vilja á mötu­neytið verði opnað játar Margrét því. „Jú, ég skil vel þessar áhyggjur en eins og ég segi þá er starfs­fólkið mitt að þjónusta þetta fólk og sama starfs­fólk er að þjónusta þá sem eru að kvarta. Það sem verið er að hugsa um er að þetta fólk hefur látið verulega á sjá með því að missa þessa rútínu sína, færni þeirra er að daprast. Það er verið að skerða þeirra lífsgæði. Ég tel að íbúunum hérna stafi meiri hætta af okkur starfs­fólkinu sem hér vinnur og þurfum að sinna því sem þarf að gera úti í samfélaginu, og einnig af íbúunum sjálfum sem fara út í samfélagið.“

Spurð hvort að vilji þeirra sem búa í þjónustu­íbúðunum inni í aðal­byggingu Selja­hlíðar hafi ekkert vægi í ákvarðana­tökunni segir Margrét að það hafi hann vissulega. Hún telji sig þó hafa mótrök, þau sem hún hefur rakið. Verið sé að fara þessa sömu leið í öðrum dvalar-og þjónustu­heimilum borgarinnar.

Sem fyrr segir er fyrir­hugað að opna mötu­neytið næst­komandi mánudag. Íbúarnir tuttugu á hjúkrunar­heimilis­hluta Selja­hlíðar fengu seinni bólefna­sprautuna í gær. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðis­yfirvöldum tekur það bóluefnið um eina viku að ná fullri virkni eftir síðari bólu­setningu. Á mánudag verða hins vegar aðeins liðnir fjórir dagar. Spurð hvers vegna fyrir­hugað sé að opna þá en að bíða ekki í það minnsta viku svarar Margrét því ekki heldur ítrekar að það sé fyrir­hugað að opna þá en ekki ákveðið. Ekki er búið að ræða við umrædda fjóra íbúa um það hvort vilji þeirra standi til þess að nýta þjónustuna í mötuneytinu. Ákvörðun um það verður endanlega tekin á stjórnar­fundi næst­komandi mánudag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár