Umhugsunarefni „ef keppnin um Miðflokksfylgið“ er orðin svona hörð innan Sjálfstæðisflokksins

Rósa Björk Brynjólfs­dóttir tók „pólitískt spark“ á Áslaugu Örnu Sigurbjörns­dóttur og hvatti hana til að seilast ekki of langt í því að sækja Miðflokks­fylgi. Áslaug sagði skotið ódýrt og benti á að hún vildi halda „mörgum boltum á lofti“.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (t.v.) og Rósa Björk Brynjólfsdóttir.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir (t.v.) og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir. Mynd: Samsett mynd

„Ef við tökum smá pólitískt spark hérna í lokin. Þó að ég telji það Áslaugu til tekna að hafa vikið frá þessari ákvörðun sinni varðandi Jón Steinar þá er það samt sem áður umhugsunar­efni að ef að staðan í keppninni um Miðflokks­fylgið er orðin svona hörð innan Sjálfstæðis­flokksins að kraft­mikil kona á ráðherra­stóli telur sig þurfa a þessum umdeilda manni að halda í sérverkefni. Það er eitthvað sem við þurfum kannski líka að íhuga og ég hvet Áslaugu til þess að seilast ekki of langt í því.“

Þetta sagði Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í lok útvarps­þáttarins Sprengi­sands á Bylgjunni í dag þar sem hún og Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir dómsmála­ráðherra ræddu ráðningu Jóns Steinars Gunnlaugs­sonar í sérverkefni í ráðuneytinu. Áslaug svaraði hinu pólitíska sparki Rósu með eftir­farandi orðum: „Þetta er auðvitað mjög ódýrt allt saman. Almennt í umræðunni um þetta og síðan nýjan lögmann sem kominn er í þessa mikilvægu vinnu, þá vil ég halda mörgum boltum á lofti, ég vil fá fólk utan kerfis, ég vil fá alls konar fólk að mér – sem er ekki endilega sammála mér – heldur getur ráðlagt mér eða komið með tillögur.“

Hún sagði að ekki mætti svo samsama verjanda skjólstæðingi sínum og vísaði þar til umræðunnar um störf Jóns Steinars og sagði það alvarlegt að þingmenn væru farnir að gera það. „En ég ætla ekki að fara í sömu pólitísku skot­grafir og Rósa með það hvaða fylgi maður er að vinna.“

Hvað átti Jón Steinar að gera?

Rósa hafði fyrr í þættinum bent á að ástæðan fyrir hörðum viðbrögðum gagnvart því að fela Jóni Steinari verkefni þegar kemur að máls­meðferðar­tíma snúist og hverfist um hans feril sem hæstaréttar­lögmanns og dómara. „Þar sem hann hefur ítrekað skilað sérákvæðum, sérstak­lega varðandi kynferðis­afbrot og sömuleiðis varðandi sönnunar­byrðina. Þar hefur hann gengið mjög hart fram og á ekkert sérstak­lega aðlaðandi feril þegar kemur að því.“

Kristján Kristjánsson, umsjónar­maður Sprengi­sands, spurði Áslaugu hvað Jón Steinar hefði í raun og veru átt að gera í vinnu sinni?

„Ég fékk hann til að, og taldi mikilvægt, [að skoða] hvort að við gætum lært af þessum langa máls­meðferðar­tíma í efnahags­brotum og hvar séu mögu­leikar á að stytta hann til hagsbóta fyrir aðila og læra af úrvinnslu slíkra mála frá síðasta áratug og nýtt þann lærdóm í að bæta kerfin okkar. Og hann átti að vinna að tillögum í því. Ég taldi mikilvægt að fá einhvern utan kerfisins. Hann hefur nú dregið sig til baka úr þeirri vinnu og ég hef fengið Hörð Felix [Harðarson] til að taka að sér það verkefni.“

Áslaug sagði geta skilið „að fólk hafi gert þau hugrenningar­tengsl, hvenær þessi frétt kom út,“ sagði hún en m.a. hefur verið bent á það í umræðunni að um svipað leyti hafi Stígamót tilkynnt að níu konur, sem teldi réttar­kerfið hafa brugðist sér, hefðu farið með mál sín fyrir Mann­réttinda­dómstóls Evrópu. Áslaug játaði að í samningnum sem gerður hafi verið við Jón Steinar hafi orðalagið verið of almennt. „En það var auðvitað mjög skýrt frá mér hvert verkefnið væri og það er mjög skýrt að Hörður Felix tekur að sér það verkefni.“

Spurð hvort það hafi þá aldrei staðið til að hann skoðaði ofbeldismál í sinni vinnu svarar Áslaug því neitandi. „Það er auðvelt að skoða verkin mín bæði í ofbeldis­brotum og kynferðis­brotum, bæði frumvörp sem ég hef lagt fram á Alþingi og eftir­fylgni við aðgerða­áætlun í bættri meðferð á kynferðis­brotum, til að sjá hug minn þar.“

Algjörlega ástæða til upphlaups

Rósa var spurð hvort að ástæða hafi verið til upphlaups vegna ráðningar Jóns Steinar, í ljósi alls þess sem Áslaug nefndi. „Algjör­lega. Já, það var það,“ svaraði hún. „Vegna þess að þetta gerist akkúrat í sömu vikunni og við erum að halda upp á alþjóð­legan baráttudag kvenna. Og það er líka grafal­varlegt þegar níu íslenskrar konur telja sig þurfa að leita til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu vegna þess að íslenska réttar­kerfið er að bregðast þeim og réttar­vörslu­kerfið líka.“

Hún sagði það rétt að dómsmála­ráðherra hafi komið fram með ýmis góð mál, „en þetta eru mál sem spretta ekki fram í tómarúmi eða eru einkamál Áslaugar Örnu Sigurbjörns­dóttur“ heldur afsprengi og viðbrögð við aðild Íslendinga að Evrópu­ráðinu, aðild að alþjóða­sáttmálum og þróun laga­setningar í löndum í kringum okkur. „Það er einmitt vegna alls þessa sem það voru ótrúlega mikil vonbrigði að Áslaug skildi skipa Jón Steinar Gunnlaugsson sem sinn trúnaðar­mann til að fara yfir máls­meðferðar­hraða í réttar­kerfinu.“ Og benti á að hann hefði sjálfur ekki skilið það ekki þannig að vinna hans væri afmörkuð við ákveðinn málaflokk „þó svo að hún hafi skilið það öðruvísi“.

Sagði Rósa tilefni til að staldra líka við það, að fara eigi ofan í máls­meðferðar­tíma efnahags­brota á undan „og með miklu meiri þunga og hraða“ en hvað kynferðis­afbrot varðar. „Og það tel ég vera mjög alvarlegt.“

Ráðherra sem ræður

Áslaug benti á að ráðning Jóns Steinars hafi ekki verið gerð í sömu viku og tilkynnt var um að konurnar níu færu með mál sín til Mann­réttinda­dómstólsins. „Það er verið að varpa einhverju ryki hér upp,“ sagði hún. Fréttir af verk­efnunum hefðu þó verið færðar í sömu vikunni.

„Svo finnst mér athyglis­vert að heyra að maðurinn sem var fenginn til verk­efnisins eigi að skilgreina verkefnið en ekki ráðherrann sem fékk hann til þess. Það er auðvitað mjög skýrt hver ræður því. Og hvert verkefnið er. Ég hef alltaf verið mjög skýr með það þó að samningurinn [við Jón Steinar] hafi verið full almennur.“

Áslaug sagði það svo „alrangt“ að verið væri að taka efnahags­brot fram yfir kynferðis­brot. „Það sem hefur verið í forgangi undan­farin ár eru kynferðis­brotin.“ Áhersla hafi verið lögð á að hraða máls­meðferðar­tíma þar.

Hún sagði alltaf gott að fá ábendingar um hvað mætti gera betur. „Og það er ekki þar með sagt að þó að margt hafi verið gert að þetta sé allt orðið fínt. Að hér setjum við punktinn.“ Lengra þurfi að ganga.

Spurð um mál kvennanna níu benti hún á að bæta þurfi upplifun þolenda allra af kerfinu í heild sinni. Ekki eitthvað eitt lagi slíkt heldur þurfi að bregðast við með fjölda aðgerða.

Rósa sagði langan máls­meðferðar­tíma vera að valda þolendum kynferðis­ofbeldis „ómældum skaða“. Meðal máls­meðferðar­tíminn væri 2-3 ár. „Það er tími sem ekki er hægt að una við.“ Þá fái sakborningar ítrekað refsilækkun hjá dómstólum vegna langs máls­meðferðar­tíma.

Áslaug sagðist þessu sammála og að þegar sé mikil vinna og mikið kapp lagt á það, t.d. með nýju verklagi hjá lögreglu og ákæru­valdinu. „Þetta er góð saga að segja,“ sagði hún um þau áherslumál sem gengið hefur verið í mála­flokknum síðustu misseri, „en það er ekki þar með sagt að við séum búin. Það er enn heilmikið verkefni fyrir höndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár