Fríir ársreikningar rýrir tekjur Skattsins um næstum 55 milljónir á ári

Árið 2017 sagði ríkis­skattstjóri að ef aðgengi að ársreikn­ingum yrði gert gjald­frjálst myndi það kippa fótunum undan rekstri stofn­un­ar­innar. Nú liggur fyrir hvað það kostar en ekki hver á að borga.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- og nýsköpunarráðherra ræddi málið á ríkisstjórnarfundi í gær.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála- og nýsköp­un­ar­ráð­herra ræddi málið á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær. Mynd: Bára Huld Beck

Tekju­missir Skattsins vegna þess að aðgengi að ársreikningum félaga varð gjald­frjálst um síðustu áramót er áætlað 54,5 milljónir króna á ári. Þetta kemur fram í svari atvinnuvega­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans um málið en það var rætt á ríkis­stjórnar­fundi í gærmorgun þar sem Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ráðherra mála­flokksins, gerði grein fyrir tekju­missinum. Hvernig þessu tekjutapi verður mætt er nú til skoðunar á milli ráðuneyta.

Í febrúar í fyrra voru kynnt drög að frumvarpi í samráðs­gátt stjórn­valda sem í fólst meðal annars að árs­reikn­ingar og sam­stæðu­reikn­ingar allra félaga sem skila árs­reikn­ingi sínum til árs­reikn­inga­skrár yrðu aðgengi­legir almenn­ingi og fjöl­miðlum að kostn­að­ar­lausu á opin­beru vef­svæði. Frum­varpið var svo samþykkt 29. júní 2020. Markmið breytinganna var að auka traust á og tryggja gagnsæi í upplýsinga­gjöf fyrir­tækja sem almennt má telja að séu þjóð­hagslega mikilvæg og varða hagsmuni almennings. Einnig tengdist frum­varpið aðgerðum á sviði kennitölu­flakks.

Frá byrjun árs 2021 hafa ársreikningar félaga svo verið aðgengi­legir án endur­gjalds á heimasíðu Skattsins. Hægt er að nálg­ast alla árs­reikn­inga í fyr­ir­tækja­skrá Skattsins með því að smella á körfu við hlið­ina á árs­reikn­ingi val­ins félags. Sú breyting hefur leitt til þess að Creditinfo, stærsta einka­fyrirtækið á þeim markaði sem seldi upplýsingar úr ársreikninga­skrá, hætti að rukka fyrir skönnuð frumrit af ársreikningum í febrúar 2021.

Töldu gjaldfrjálsan aðgang kippa fótunum undan rekstrinum

Frumvarp ríkis­stjórnarinnar frá því í fyrra var ekki það fyrsta sem lagt hefur verið fram í þeim tilgangi að veita gjald­frjálst aðgengi að ársreikningum. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, flutti frum­varp um afnám gjald­­töku fyrir aðgang að árs­­reikn­ingum í sept­­em­ber árið 2017 og svo aftur í des­em­ber sama ár. Það frum­varp fór í fyrstu umræðu í efna­hags- og við­­skipta­­nefnd sem kall­aði eftir umsögnum um mál­ið, en rataði svo aldrei það­­an.

Creditinfo mótmælti þá frum­varpinu í umsögn og sagði að upplýsingar úr ársreikningum væru fyrst og fremst nýttar af atvinn­u­líf­inu. Því væri eðli­­legt að fólk og fyr­ir­tæki greiði fyrir þær í stað þess að „al­­mannafé verði nýtt til að standa straum af kostn­aði við rekstur skránna.“

Emb­ætti rík­­is­skatt­­stjóra, sem nú er hluti af Skattinum, skrif­aði einnig umsögn um frum­varpið og sagði það kippa fótum undan rekstri þess. Enn fremur líkti emb­ættið afnámi gjald­tök­unnar við það að gera aðgang að söfnum lands­ins ókeyp­­is.

Rík­­­is­skatt­­­stjóri sagði í umsögn sinni að ef fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar næðu fram að ganga þá væri æski­­­legt að veitt yrði heim­ild til að setja reglu­­­gerð um afmörkun þeirra upp­­­lýs­inga sem veita ætti gjald­frjálst aðgengi að og fram­­­kvæmd hins raf­­­ræna aðgeng­­­is. „Hvort heldur átt er við ein­stakar upp­­­flett­ingar almenn­ings eða aðgang fyr­ir­tækja að gagna­grunnum eða afritun ein­stakra skráa vegna úrvinnslu upp­­­lýs­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár