Creditinfo hættir að rukka fyrir ársreikninga sem eru nú þegar fríir hjá Skattinum

Creditinfo veitir nú aðgang að frumriti ársreikninga án kostnaðar. Samkvæmt nýjum lögum hefur verið hægt að nálgast ársreikninga íslenskra fyrir­tækja án endur­gjalds á vef ríkisskatts­stjóra frá byrjun þessa árs.

Creditinfo hefur ákveðið að veita öllum viðskipta­vinum sínum aðgang að skönnuðum frumritum af ársreikningum að kostnaðar­lausu. Áfram verður tekið gjald af innslegnum eintökum (990 krónur), ársreikingaskýrslum (3.190 krónur) og fleiri vörum sem unnar eru upp úr ársreikningum fyrir­tækja.

Samkvæmt verðskrá Creditinfo verður einnig áfram rukkað fyrir til dæmis skönnuð skjöl, sem eru samþykktir, stofns­kjöl og önnur sem innihalda upplýsingar um breytingar hjá fyrir­tækjum. Fyrir hverja slíka pöntun þarf að greiða 1.820 krónur.

Frá byrjun árs hefur verið hægt að nálgast ársreikninga íslenskra fyrir­tækja án endur­gjalds, en lög þess efnis tóku gildi um síðastliðin áramót.

Hægt er að nálg­ast alla árs­reikn­inga í fyr­ir­tækja­skrá rík­is­skatt­stjóra með því að smella á körfu við hlið­ina á árs­reikn­ingi val­ins félags líkt og sést á mynd hér að neð­an.

Þegar árs­reikn­ingur er val­inn þarf svo að smella á gráan kassa sem mynd­ast efst á síð­unni og stendur „Karfa“ á.

Frum­varpið til lag­anna var flutt af Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ur, nýsköp­un­ar- og ferða­mála­ráð­herra, en Björn Leví Gísla­son þing­maður Pírata hefur end­ur­tekið flutt sam­bæri­leg frum­vörp á síð­ustu þremur árum þar sem afnám gjaldtöku á upp­lýs­ingum úr árs­reikn­ingum var lagt til.

Dó í nefnd og mót­mælt af Creditinfo

Björn Leví flutti frum­varp um afnám gjald­töku fyrir aðgang að árs­reikn­ingum í sept­em­ber árið 2017 og svo aftur í des­em­ber sama ár. Það frum­varp fór í fyrstu umræðu í efna­hags- og við­skipta­nefnd sem kall­aði eftir umsögnum um mál­ið, en rataði svo aldrei það­an.

Creditinfo, sem er stærsta fyr­ir­tækið á þeim mark­aði sem selur upp­lýs­ingar úr árs­reikn­inga­skrá, mót­mælti því frum­varpi í umsögn sinni til nefnd­ar­innar snemma árs 2017. Þar sagði fyr­ir­tækið meðal ann­ars að upp­lýs­ing­arnar væru fyrst og fremst nýttar af atvinnu­líf­inu og taldi það eðli­legt að fólk og fyr­ir­tæki greiði fyrir þær í stað þess að „al­mannafé verði nýtt til að standa straum af kostn­aði við rekstrur skránna.“

Ríkisskattsstjóri líka á móti

Emb­ætti rík­is­skatt­stjóra skrif­aði einnig umsögn um frum­varpið og sagði það kippa fótum undan rekstri þess. Enn fremur líkti emb­ættið afnámi gjald­tök­unnar við það að gera aðgang að söfnum lands­ins ókeyp­is.

Rík­­is­skatt­­stjóri sagði að ef fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar fram að ganga þá væri æski­­legt að veitt yrði heim­ild til að setja reglu­­gerð um afmörkun þeirra upp­­lýs­inga sem veita ætti gjald­frjálst aðgengi að og fram­­kvæmd hins raf­­ræna aðgeng­­is. „Hvort heldur átt er við ein­stakar upp­­flett­ingar almenn­ings eða aðgang fyr­ir­tækja að gagna­grunnum eða afritun ein­stakra skráa vegna úrvinnslu upp­­lýs­inga.“

Þór­dís Kol­brún með nýtt frum­varp

Björn Leví end­ur­flutti sama frum­varpið þrisvar sinnum á árunum 2017-2019, en það komst aldrei úr nefnd. Í apríl í fyrra, rúmu hálfu ári eftir þriðja end­ur­flutn­ing Björns Levís kom Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, nýsköp­un­ar- og ferða­mála­ráð­herra, svo fram með eigið frum­varp sem sneri að árs­reikn­ingum og end­ur­skoðun á þeim, en í því var lagt til að aðgengi að árs­reikn­ingum yrði gjald­frjálst. Frum­varpið var sam­þykkt í fyrra­sum­ar, en lögin tóku gildi við upp­haf þessa árs.

Aðgengi­legt í nágranna­löndum

Líkt og Kjarn­inn benti fyrst á fyrir þremur árum síðan eru upp­lýs­ingar um fyr­ir­tæki aðgengi­legar almenn­ingi í nágranna­löndum Íslands. Þar eru starfs­ræktar sér­­­stakar vef­­­síður þar sem hægt er að nálg­­­ast grunn­­­upp­­­lýs­ingar um fyr­ir­tæki á borð við eig­end­­­ur, stjórn­­­endur og lyk­il­­­tölur úr rekstri fyr­ir­tækj­anna.

Vef­­­síð­­an Allabolag í Sví­­­þjóð þjónar til að mynda þessum til­­­­­gangi, en þar er að finna helstu upp­­­lýs­ingar um fyr­ir­tæki þar í landi. Hægt er að nálg­­­ast grunn­­­upp­­­lýs­ingar án kosnaðar en ef þörf er á þá er hægt að greiða fyrir frek­­­ari upp­­­lýs­ing­­­ar. Sam­­­kvæmt síð­­­unni er hún upp­­­­­færð dag­­­lega með upp­­­lýs­ingum frá yfir­­­völdum þar í landi.

Sam­­­bæri­­­legar síður eru í Dan­­­mörku og Nor­egi, þar sem hægt er að fletta upp grunn­­­upp­­­lýs­ingum um dönsk og norsk fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár