„Gleymum ekki hinni daglegu kúgun þess sem lifir undir ólöglegu hernámi“

Bryndís Silja bjó í Palest­ínu um skeið og bendir á að ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar hafi vakið heims­at­hygli og velgt ísra­elskum stjórn­völdum undir uggum.

Það að snið­ganga ísra­elskar vörur er ein af fáum leiðum sem færar eru til að þrýsta á ísra­elsk stjórn­völd að láta af her­nám­inu í Palest­ínu. Þetta segir Bryndís Silja Pálma­dóttir, háskóla­nemi sem bjó í Palest­ínu um skeið, í opnu bréfi til borg­ar­full­trúa Reykja­vík­ur­borgar. 

„Þrátt fyrir að standi til að draga til­lög­una til baka þá hvet ég ykkur til þess að vinna næstu skref vel. Tilraun ykkar til aðgerða hefur vakið athygli heims­ins og ísra­elsk stjórn­völd fylgj­ast með,“ stendur í bréf­inu sem Bryndís sendi í gær, nokkru áður en auka­fundur borg­ar­stjórnar í Ráð­hús­inu hófst. Á fund­inum sam­þykkti borg­ar­stjórn ein­róma að fyrri sam­þykkt borg­ar­innar, um að ísra­elskar vörur skyldu snið­gengnar meðan á her­námi Palest­ínu stæði, yrði felld úr gildi. 

Í sam­tali við Stundina segir Bryndís að hún hafi, auk þess að senda bréfið, sent borg­ar­full­trúm eitt af mynd­bönd­unum sem hún tók upp í Palest­ínu meðan hún bjó þar. Jafn­framt hafi hún bent þeim á yfir­lýs­ingu sem Boycott from Within, sam­tök ísra­el­skra rík­is­borg­ara sem berj­ast fyrir snið­göngu á ísra­elskum vörum, birtu í dag. Þar er skorað á borg­ar­full­trúa Reykja­víkur að halda snið­göng­unni til streitu. Fram kemur að hóp­ur­inn skilji að borg­arstjórn sé und­ir mikl­um þrýst­ingi um að draga ákvörðun­ina til baka. „Við hvetj­um ykk­ur hins veg­ar til þess að gera það ekki, því það mætti túlka sem stuðn­ing­ við brot Ísra­els­rík­is,“ seg­ir í til­kynn­ingu sam­tak­anna.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár