Ivanka Trump og maður hennar ríkari en áður var talið

Skjöl sem birt hafa verið opinber­lega í samræmi við siða­reglur Hvíta hússins sýna að dóttir forseta Banda­ríkjanna er mun betur stæð en áður var talið.

Ivanka Trump, dóttir Donalds Trump forseta Banda­ríkjanna, og Jared Kushner, eigin­maður hennar, eiga eignir upp á 741 milljón Bandaríkja­dali, eða sem nemur tæplega 85 milljörðum króna. Þetta sýna gögn sem hafa verið birt í samræmi við siða­reglur Hvíta hússins og Banda­ríkjaþings, og vitnað er til í umfjöllun Wall Street Journal.

Þá voru einnig birt gögn sem sýna eignir helstu ráðgjafa og ráðamanna í ríkis­stjórn Donalds Trumps, en samanlögð auðævi þeirra eru talin nema um tólf milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur 1.400 milljörðum króna. Aldrei áður í sögu Banda­ríkjanna hafa svo margir auðmenn verið við stjórnvölinn í Washington D.C. að því er kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal. 

Í gögnunum kemur fram að þrátt fyrir að þau hjónin hafi hætt að stýra fjölmörgum félögum í viðskipta­veldi Trumps fjöl­skyldunnar, þegar Donald Trump varð forseti, þá hagnast þau ennþá fjárhags­lega á þeim, í gegnum net sjóða og félaga. Þetta er sagt orka tvímælis og ekki vera í takt við markmið reglnanna. Þær voru upphaf­lega settar til að koma í veg fyrir hagsmuna­tengsl ráðamanna á hverjum tíma.

Á meðal eigna sem þau hjónin eiga eru fasteignir vítt og breitt um Banda­ríkin, þar á meðal hótel í Washington D.C.

Ivanka og Kushner eru bæði hluti af nánustu samstarfs­mönnum Donalds Trumps, og gegn þau störfum sem ráðgjafar. Kushner er sérstakur ráðgjafi þegar kemur á málefnum Miðausturlanda en Ivanka er með

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár