„Það er verið að handtaka mig af lögreglunni fyrir að segja hug minn“

Hér­aðs­frétta­mið­ill­inn Aust­ur­frétt hefur birt tvö SMS frá þeim ein­stak­lingi sem var í haldi lög­regl­unnar á Aust­ur­landi vegna meintra hót­ana í garð Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á Seyð­is­firði í dag.

Lögreglan skoðaði hvort hótanir hefur verið settar fram í garð forsætisráðherra.
Lög­reglan skoð­aði hvort hót­anir hefur verið settar fram í garð for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Wiki Commons/Erik

Hér­aðs­frétta­mið­ill­inn Aust­ur­frétt birtir í dag tvö SMS-skeyti sem sögð eru frá þeim ein­stak­lingi sem sat í haldi lög­regl­unnar á Aust­ur­landi, grun­aður um hót­anir í garð for­sæt­is­ráð­herra. Aust­ur­frétt seg­ist hafa ákveðið að birta bæði SMS skeytin eftir að hafa haft sam­ráð við lög­fræð­inga og þar sem ekki leiki vafi á upp­runa þeirra.

Í fyrra skeyt­inu frá mann­inum kemur fram að hann telji að verið sé að hand­taka sig af lög­regl­unni fyrir að segja hug sinn. „Ég verð á lög­reglu­stöð­inni meðan for­sæt­is­ráð­herra hittir fólk á Egils­stöðum,“ segir í því síð­ara, sam­kvæmt frétt mið­ils­ins.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu síð­degis kom fram að eftir „sam­ræður“ við mann­inn hefði lög­regla talið að „engin ástæða sé til frek­ari aðgerða gagn­vart honum eða við­bragða að öðru leyti.“

Kristján Ólafur Guðnason yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á Aust­ur­landi sagði við Kjarn­ann fyrr í dag að „óstað­festar“ fregnir af hót­unum í garð Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hefðu borist lög­reglu, en Katrín var þar í heim­sókn ásamt þremur öðrum ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar.

Kristján Ólafur sagði að búið væri að ná tali af þeim sem hefði sett meintar hót­anir fram. Ekki feng­ust upp­lýs­ingar um hvers eðlis meintar hót­anir voru eða hvernig þær voru settar fram.

Í frétt Vísis í hádeg­inu var rakið að Lísa Krist­jáns­dóttir aðstoð­ar­maður ráð­herra hefði dregið Katrínu til hliðar skömmu áður en hún hugð­ist koma í útvarps­við­tal í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar rétt fyrir kl. 12 á hádegi. Þar sagði að ráð­herra hefði svo hafi verið fylgt í bak­her­bergi í ferju­húsi Smyril Line við höfn­ina á Seyð­is­firð­i.

Lög­regla varð­ist allra fregna í fyrstu og fjöl­miðla­menn lýstu því að nokkur ringul­reið hefði verið á staðn­um.

For­sæt­is­ráð­herra hefur ekki viljað tjá sig um þessi atvik við fjöl­miðla. Í frétt á vef mbl.is sagði að Katrín hafi látið sem ekk­ert hafi í skorist eftir að þessi atvik komu upp, en þess má einnig geta að um 20 mín­útum eftir að henni var kippt til hliðar í fylgd lög­reglu fyrir áætlað við­tal við Bylgj­una var hún komin í við­tal í beinni útsend­ingu í hádeg­is­fréttum Rík­is­út­varps­ins.

Lögregla ræddi við manninn og sér ekki tilefni til frekari viðbragða

Uppfært kl. 15:50: Lögregla sendi frá sér til­kynn­ingu vegna máls­ins síð­degis. Þar segir að upp­lýs­ingar hefðu borist lög­reglu um hót­anir sem hefðu átt að hafa beinst að for­sæt­is­ráð­herra.

„Sá er bor­inn var fyrir hót­un­inni reynd­ist þá ekki vera á Seyð­is­firði. Lögregla hefur nú rætt við hann og telur eftir þær sam­ræður að engin ástæða sé til frek­ari aðgerða gagn­vart honum eða við­bragða að öðru leyti,“ segir í til­kynn­ingu lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár