Lögreglan á Austurlandi: „Óstaðfest“ að um hótanir í garð Katrínar hafi verið að ræða

Lög­reglan á Aust­ur­landi er búin að ná tali af ein­stak­lingi sem sagður var hafa sett fram hót­anir í garð Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, sem stödd er á Seyð­is­firði. Óstað­fest er að um hót­anir hafi í raun verið að ræða.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á Aust­ur­landi segir við Kjarnann að „óstað­fest“ sé hvort hót­anir hafi verið settar fram gagn­vart Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á Seyð­is­firði í dag.

Búið er að ná tali af þeim sem á að hafa sett meintar hót­anir fram. Ekki feng­ust upp­lýs­ingar um hvers eðlis meintar hót­anir voru eða hvernig þær voru settar fram.

Í frétt Vísis í hádeg­inu var rakið að Lísa Krist­jáns­dóttir aðstoð­ar­maður ráð­herra hefði dregið Katrínu til hliðar skömmu áður en hún hugð­ist koma í útvarps­við­tal í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar rétt fyrir kl. 12 á hádegi. Þar sagði að ráð­herra hefði svo hafi verið flutt í bak­her­bergi í ferju­húsi Smyril Line við höfn­ina á Seyð­is­firði.

Lögregla varð­ist allra fregna í fyrstu og fjöl­miðla­menn lýstu því að nokkur ringul­reið hefði verið á staðnum.

Kristján Ólafur Guðnason yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á Aust­ur­landi sagði í sam­tali við Kjarnann skömmu eftir kl. 13 að enn væri „óstað­fest“ að um hót­anir hafi verið að ræða.

Hann sagði að lög­reglu hefðu borist upp­lýs­ingar þess efnis að hót­anir hefðu borist, en það væri óstað­fest að um hót­anir hefði í raun verið um að ræða. Búið væri að ná tali af þeim aðila sem hafi sett meintar hót­anir fram.

Katrín Jak­obs­dóttir er nú ásamt þremur öðrum ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar á Seyð­is­firði að virða fyrir sér afleið­ingar aur­skriðn­anna sem þar féllu í lok síð­ustu viku. Nokkrir fjöl­miðlar eru með blaða­menn á staðnum og hefur Katrín ekki viljað ræða við þá um þessar meintu hót­anir í sinn garð.

Í frétt á vef mbl.is segir að Katrín hafi látið sem ekk­ert hafi í skorist eftir að þessi atvik komu upp, en þess má einnig geta að um 20 mín­útum eftir að henni var kippt til hliðar í fylgd lög­reglu fyrir áætlað við­tal við Bylgjuna var hún komin í við­tal í beinni útsend­ingu í hádeg­is­fréttum Rík­is­út­varps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár