Bjarni segir gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi „óraunhæft“ – Sjálfstæðisflokkurinn vill„öfluga samkeppni“

Flokkurinn vill lækka hámarks­greiðslur sjúklinga bæði í lyfja­greiðslu­kerfi og greiðslu­þátttöku­kerfi heilbrigðis­þjónustu en jafnframt hvað varðar notkun hjálpar­tækja.

„Fjöl­breytt rekstrar­form“ og „öflug samkeppni“ í heilbrigðis­þjónustu er á meðal þess sem er boðað í stjórnmála­ályktun sem samþykkt var á flokks­ráðsfundi Sjálfstæðis­flokksins í gær. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, fullyrti jafnframt í leiðtoga­umræðunum á RÚV síðasta fimmtudag að það væri „óraunhæft að tala fyrir algerlega gjald­frjálsu heilbrigðis­kerfi“, enda þyrfti að tryggja aðgangs­stýringu að kerfinu. 

Áherslur Sjálfstæðis­flokksins í heilbrigðis­málum eru ólíkar þeim sem kynntar voru á flokks­stjórnar­fundi Samfylkingarinnar sem einnig var haldinn í gær. Fram kom að Samfylkingin vildi stefna að gjald­frjálsri heilbrigðis­þjónustu, en slíkt kynni á endanum að kosta ríkissjóð rúma 30 milljarða á ári. Telur Oddný G. Harðar­dóttir, formaður flokksins, að unnt sé að fjármagna þetta með uppboði afla­heimilda, hækkun virðis­aukaskatts á ferða­þjónustu og upptöku raforku­gjalds á stóriðju.

Þótt Sjálfstæðis­flokkurinn stefni ekki að gjald­frjálsu heilbrigðis­kerfi kemur skýrt fram í stjórnmála­ályktun flokksráð­fundar að „lækka þurfi greiðslu­þátttöku sjúklinga enn frekar með því að lækka hámarks­greiðslur sjúklingar bæði í lyfja­greiðslu­kerfi og greiðslu­þátttöku­kerfi heilbrigðis­þjónustu, sem og kostnaði við notkun hjálpar­tækja“. Auk þess sé brýnt að Sjúkra­tryggingar Íslands taki aukinn þátt í ferða­kostnaði sjúklinga. 

„Efnahagur fólks á aldrei að ráða aðgengi að heilbrigðis­þjónustu á Íslandi,“ sagði Bjarni Benediktsson í leiðtoga­umræðunum og lagði einkum áherslu á að dregið yrði úr greiðslu­þátttöku lang­veikra og öryrkja. „Ég held hins vegar að það sé óraunhæft að tala fyrir algerlega gjald­frjálsu heibrigðiskerfi vegna þess að þá óttast ég að við munum missa alla aðgangs­stýringu að kerfinu og það er reynsla annarra þjóða, það er í samræmi við ráðleggingar alþjóðlegra sérfræðinga um þessi efni en það þýðir ekki að gjald­takan eða kostnaðar­hlutdeild sjúklinga eigi að vera einhvers konar aðgangs­hindrun,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár