Óvissa um reit Íslandsbanka við Kirkjusand

Tekin hefur verið ákvörðun um að færa höfuð­stöðvarnar í Norður­turninn í Kópavogi. Ekki er vitað hvað verður gert við gamla húsnæðið en myglu­sveppur fannst í því fyrr á árinu.

Óvissa er um hvað verður um húsið sem hýsir nú höfuð­stöðvar Íslands­banka við Kirkju­sand. Myglu­sveppur fannst í byggingar­efnum en Kjarninn greindi frá þessu í mars. Rann­sóknir hafa staðið yfir á húsnæðinu síðan þá og samkvæmt frétta­tilkynningu sem bankinn sendi frá sér um helgina kemur fram að fylgst sé vel með loftgæðum í húsinu en ljóst sé að fara þurfi í tölu­verðar endur­bætur á húsnæðinu. Unnið sé með verkfræði­stofunni EFLU að rann­sóknum ásamt finnska ráðgjafa­fyrirtækinu Vahanen.

Íslands­banki hafði stefnt að því að stækka aðal­höfuð­stöðvar sínar á Kirkju­sandi með viðbyggingu við suður­vesturenda þeirrar byggingar sem fyrir er. Samhliða ætlaði bankinn sér að sameina starfsemi höfuð­stöðva sinna, sem nú eru á fjórum stöðum, á einn stað á Kirkju­sandi. Viðbyggingin átti að vera um sjö þúsund fermetrar og áætlanir gerðu ráð fyrir að framkvæmdir við hana myndu hefjast í lok síðasta árs.

Edda Hermanns­dóttir, samskipta­fulltrúi Íslands­banka, segir að ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um Kirkju­sandshúsið ennþá. Það verði skoðað á næstunni hversu miklar endur­bæturnar verða. Einnig sé í skoðun hver framtíð reitsins við Kirkju­sand verður.

Á stefnu­fundi starfs­manna Íslands­banka sem fór fram á laugar­daginn var tilkynnt að höfuð­stöðvar Íslands­banka muni á haust­mánuðum flytjast í Norður­turninn í Kópavogi frá Kirkju­sandi þar sem höfuð­stöðvar bankans hafa verið undan­farin 20 ár.

Í tilkynningunni segir:

„Með þessari breytingu verður starfsemi höfuð­stöðva, sem í dag fer fram á fjórum stöðum, sameinuð undir einu þaki þar sem 650 starfs­menn munu starfa. Mikil hagkvæmni fylgir sameiningunni en saman­lagður fermetra­fjöldi höfuðstöðva­starfsemi fer úr 13.900 í 8.600 fermetra í Norður­turninum.

Um hríð hefur legið fyrir að sameina starfsemi bankans í nýjum höfuð­stöðvum. Íslands­banki mun áfram vera leiðandi í stafrænni þjónustu og eru nýjar og fram­sæknar höfuð­stöðvar liður í efla þróun bankans og sókn á markaði. Nýtt útibú bankans mun jafnframt opna á 1. hæð Norður­turnsins í nóvember en sú vinna hefur staðið yfir undan­farna mánuði.“

Birna Einars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, segir að þau hafi beðið lengi eftir að geta sameinað alla höfuðstöðva­starfsemi bankans á einum stað. Vegna aðstæðna á Kirkju­sandi hafi þau flýtt þessum áformum og sjái mikil tækifæri í hinum nýja höfuð­stöðvum. Bankinn vilji vera framsýnn í starfsemi sinni og þau muni nú, undir einu þaki, geta boðið starfs­fólki og viðskipta­vinum upp á enn betri þjónustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár