Myglusveppur í höfuðstöðvum Íslandsbanka

Höfuðstöðvar Íslandsbanka við Kirkjusand í Reykjavík.
Höf­uð­stöðvar Íslands­banka við Kirkju­sand í Reykja­vík. Mynd: Gunnar Svanberg Skulason

Myglu­svepp er að finna í byggingar­efnum í höfuð­stöðvum Íslands­banka á Kirkju­sandi. Að undan­förnu hafa staðið yfir ítarlegar rann­sóknir á byggingar­efnunum og nú er beðið eftir niður­stöðum úr þeim. Þetta kemur fram í svari Eddu Hermanns­dóttur, samskipta­stjóra Íslands­banka, við fyrir­spurn Kjarnans um málið.

Hún segir að til að bæta loftgæði sem mest hafi viðamikið verkefni sem snúi að hreinsun loft­ræsiskerfis og alþrif í vinnurýma verið sett í gang og sé langt komið. Starfs­mönnum hafi verið boðið upp á heilsufars­skimun og þegar hafi tæplega 300 manns farið í slíka skimun, en 400 manns starfa á Kirkju­sandi. Þá hefur sérstakur fræðslu­fundur verið haldinn fyrir starfs­fólk. „Það er stjórn­endum bankans mikilvægt að starfs­menn búi við heilsusamlegt vinnu­umhverfi og er lögð mikil áhersla á að halda starfs­mönnum upplýstum um gang mála. Ekki ætti að líða langur tími þar til hægt verður að greina frá frekari áætlun.“

Íslands­banki hefur stefnt að því að stækka aðal­höfuð­stöðvar sínar á Kirkju­sandi með viðbyggingu við suður­vesturenda þeirrar byggingar sem fyrir er. Samhliða ætlar bankinn sér að sameina starfsemi höfuð­stöðva sinna, sem nú eru á fjórum stöðum, á einn stað á Kirkju­sandi. Viðbyggingin á að vera um sjö þúsund fermetrar og áætlanir gerðu ráð fyrir að framkvæmdir við hana myndu hefjast í lok síðasta árs. Þær eru enn ekki hafnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár