Stór jarðskjálfti í Mexíkó

Gefin hefur verið út flóðbylgju­viðvörun.

Jarð­skjálfti sem mæld­ist 8 stig á Richter-kvarða reið yfir Suður-Mexí­kó í nótt. Íbúar fundu vel fyrir honum, meðal annars í Mexíkó­borg.

Upp­tök skjálft­ans voru á hafsbotni, um 120 km suðvest­ur af bæn­um Tres Picos í Chiap­as-ríki. Gef­in hef­ur verið út flóð­bylgju­viðvör­un vegna skjálft­ans.

Vitað er um að tveir eru látn­ir en ótt­ast er að sú tala eigi eft­ir að hækka en meira enda stutt liðið frá skjálftanum, og alveg búist við fleiri jarð­skjálftum.

Yfirvöld í Mexíkó segja, að því er fram kemur á vef BBC, að ölduhæð geti orðið um þrír metar í flóð­bylgju, en óvíst er þó hvar hún mun koma að og hvernig.

Yfirvöld í Mexíkó er einnig á varðbergi vegna felli­bylsins Katiu sem nú sækir í sig veðrið, en hann hefur ekki náð hæsta styrk ennþá. Búist er við því að hann geti valdið miklu eigna­tjóni á austur­strönd landsins.

Þá eru dauðsföll orðin 14 vegna felli­bylsins Irmu sem mjakast nú í norð­vestur, milli Haítí og Karíbahafs­eyjanna Turks og Caicos. Talið er að hann muni skella á Miami um helgina, en veður­ofsinn sem fylgir felli­bylnum er fáheyrður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár