Lögmaður Hvíta hússins hættir - Tilkynnt á Twitter

Don McGahn, lögmaður Hvíta hússins, hætti störfum innan tíðar, en Donald Trump Band­ríkja­forseti tilkynnti um þetta í tísti á Twitter.

Don McGahn, lögmaður Hvíta hússins, hættir störfum í haust. Donald Trump Bandaríkja­forseti tilkynnti um þetta á Twitter í gær, öllum að óvörum. Hann hafði dagana á undan neitað því eindregið, að hafa deilt við McGahn, meðal annars um hvernig væri best að bregðast við rannsókn Roberts Mueller.

Trump hefur kallað rannsókn Muellers norna­veiðar og samkvæmt umfjöllun Washington Post hefur hann rætt við McGahn um hvernig hann geti stöðvað rann­sóknina og rekið Mueller. Þessu neitaði Trump, og segist hafa heimilað McGahn að bera vitni í rannsókn Muellers.

Engin ástæða hefur verið gefin upp hvers vegna McGahn mun hætta, en getgátur hafa verið uppi um það, að hann sé tilbúinn að veita upplýsingar um það að Trump hafi hindrað framgang rétt­vísinnar, meðal annars með því að reka James Comey, forstjóra FBI, og reyna með öðrum hætti að hindra rannsókn Muellers á tengslum Rússa við framboð Trumps.

Frétta­stofan CNN ákvað í gær að senda frá sér yfir­lýsingu, þar sem tekið var fram að frétta­stofan ætlaði ekki að draga til baka frétta­flutning um fund framboðs Trumps með rússneskum aðilum, 27. júlí 2016, skömmu fyrir forseta­kosningarnar. Í frétt CNN sagði meðal annars að Trump hefði vitað af fundinum í aðdrag­anda hans, en sonur hans og alnafni, Donald Trump jr., sótti meðal annars fundinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár