Ben Bernanke til liðs við vogunarsjóð

Ben Bernanke, fyrr­verandi seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, er genginn til liðs vogunar­sjóðinn Citadel Investment Group, sem aðal­ráðgjafi. Frá þessu greinir New York Times.

Bernanke er einn virtasti hagfræðingur heimsins, en hann var seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna í gegnum mikinn ólgusjó fjármála­kreppunnar, frá 2006 til 2014. Þá tók Janet Yellen við af honum, en hún er fyrsta konan sem gegnir embætti seðla­bankastjóra í Banda­ríkjunum.

Bernanke, sem er með doktors­próf í hagfræði og stærð­fræði frá MIT, mun veita sjóðs­stjórum Citadel ráðgjöf, einkum á sviði þjóð­hagfræði.

Í viðtali við New York Times, segir Bernanke að hann sé viðkvæmur fyrir því hvernig almenningur muni horfi á sambandið milli Wall Street og Seðla­banka Banda­ríkjanna. Því hafi hann ákveðið að ganga til liðs við Citadel, þar sem sjóðurinn starfi ekki undir reglu­verki seðla­bankans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár