Konan sem sakar Brett Kavanaugh um kynferðisbrot ber vitni á fimmtudaginn

Vitnis­burður Christine Bla­sey Ford fer fram næst­komandi fimmtudag gegn Brett Kavanaugh. Önnur kona hefur nú stigið fram og sakað hann um kynferðis­brot.

Brett Kavanaugh
Brett Kavan­augh Mynd: EPA

Konan sem sakar dóm­ar­ann Brett Kavan­augh um kyn­ferð­is­brot fyrir meira en 30 árum síð­an mun bera vitni fyrir þingnefnd næst­komandi fimmtudag. Kavan­augh mun bera vitni sama dag. Frá þessu er greint í frétt Reuters í morgun.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti til­nefndi Kavan­augh í Hæsta­rétt í júlí síð­ast­liðnum og standa yfir­heyrslur þings­ins yfir dóm­ar­anum nú yfir áður en til­nefn­ingin verður stað­fest.

Kon­an sem um ræðir heitir Christine Bla­sey Ford og er 52 ára sál­fræð­ing­ur. Hún sagði í sam­tali við Was­hington Post að Kavan­augh hefði verið drukkinn í skólapartýi, haldið henni fastri í rúmi, káfað á henni og tekið fyrir munn­inn á henni til að koma í veg fyrir að hún öskr­aði.

Kavan­augh hefur neitað þessum ásök­unum með öllu. Orðrómur um þessar ásak­anir fór af stað í byrjun september á þessu ári. Hvíta húsið hefur gefið út bréf frá 65 konum sem segj­ast þekkja dóm­ar­ann frá því á skóla­árum hans og geti vitnað til um karakter hans.

Önnur kona hefur nú stigið fram og sakað Kavanaugh um kynferðis­brot á níunda áratugnum. Í tíma­ritinu The New Yorker kemur fram að hún heiti Deborah Ramirez en hún segir atvikið hafa átt sér stað í Yale-háskólanum, þar sem þau stunduðu bæði nám.

Kavan­augh er 53 ára gam­all og starfar sem dóm­­ari við áfrýj­un­­ar­­dóm­stól í Was­hington DC. Hann starf­aði náið með George W. Bush á sínum tíma og tók meðal ann­­ars þátt í rann­­sókn­inni á sam­­skiptum Bill Clinton Banda­­ríkja­­for­­seta og Mon­icu Lewin­­sky auk þess sem hann var einn þeirra sem kom að end­­ur­taln­ingu atkvæða fyrir hönd Bush í for­­seta­­kosn­­ing­unum árið 2000. Kavan­augh var á árum áður aðstoð­­ar­­maður Ant­hony Kenn­edy, hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ar­ans sem lét nýlega af störfum og Kavan­augh tekur að öllum lík­indum við af.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár