Ráðherra segir að pakkaferðafrumvarp hennar hafi ekki meirihluta á þingi

Frumvarp Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfa­dóttur um að heimila ferða­skrifstofum að borga neytendum í inneignar­nótum í stað peninga mun ekki verða afgreitt á Alþingi. Hluti stjórnar­þingmanna styður það ekki.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

„Mér sýnist nú ljóst að frum­varpið sem ég lagði fram hafi ekki meirihluta­stuðning á Alþingi.“ Þetta skrifar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, ráðherra ferðamála, í stöðu­uppfærslu á Facebook þar sem hún fjallar um frum­varp sitt sem átti að heim­ila ferða­skrif­stofum að fresta end­ur­greiðslum pakka­ferða sem falla niður um allt að tólf mán­uði með því að gefa út inn­eign­arnótur fyrir and­virði ferð­ar­inn­ar. Frum­varpið átti að vera aft­ur­virkt til 15. mars og til­gangur þess að var sagður að forða því að ferða­skrif­stofur fari í þrot, en á sama tíma væri einnig tryggt að inn­eign­ar­nóta neyt­and­ans félli undir trygginga­vernd.

Þórdís segir í stöðu­uppfærslunni að hún jafi staðið með frum­varpinu eins og það var lagt fram en það hafi ekki stuðning. „Ég geri því ekki ráð fyrir að þingið afgreiði það.“

Fyrirséð að frumvarpið yrði umdeilt

Hún segir að í málinu vegist á sterk rök á báða bóga, annars vegar um rétt neytenda og hins vegar um það að sá neytenda­réttur hafi ekki verið lögfestur með þá stöðu í huga sem nú sé komin upp, algjöra stöðvun ferða­þjónustunnar og yfir­vofandi gjaldþrot margra ferða­skrifstofa sem krafðar væru um fullar endur­greiðslur án þess að fá nokkrar tekjur á móti. Það hafi því verið fyrirséð að frum­varpið yrði umdeilt.

Staða ferða­skrifstofa sé mjög mismun­andi og vandi þeirra mismikill, en ljóst sé að neytenda­rétturinn verði einhverjum þeirra ofviða að óbreyttu. „Mögulegt hefði verið að koma til móts við báðar hliðar málsins á kostnað skatt­greiðenda, með því að aflétta ekki bara skyldunni um endur­greiðslu í peningum af fyrir­tækjunum heldur innleiða samtímis ríkis­ábyrgð á kröfum neytenda. Niður­staðan var að gera það ekki,“ skrifar Þórdís.

Í fjöl­miðlum í dag hefur verið greint frá því að verið sé að hverfa frá þeirri leið sem hún vildi feta með frum­varpinu í nágranna­löndum, meðal annars í Danmörku. „Hugsanlega er þar að baki pólitísk ákvörðun innan ESB um að hvika hvergi frá sameiginlegu reglunum og sá möguleiki er auðvitað alltaf til staðar að gripið verði til aðgerða gegn löndum sem víkja frá þeim.“

Þá séu aðstæður að breytast frá því að frum­varpið var samið og lagt fram. „Þá var allt eins útlit fyrir að engin eða nær engin ferðalög yrðu á milli landa fyrr en í haust eða vetur. Nú sjáum við að lönd eru að opna landamæri sín nú þegar eða eftir nokkra daga, miklu fyrr en talið var líklegt fyrir fáeinum vikum. Það þýðir væntanlega að ferða­skrifstofur standa frammi fyrir færri afbókunum en ella og geta líka selt nýjar ferðir fyrr en ella. Þrátt fyrir það er mér vel ljóst að sum þeirra standa frammi fyrir mjög alvarlegri stöðu, þó að staða þeirra sé ólík eins og áður segir.“

Ljóst sé þó að frum­varpið hafi ekki stuðning, sem þýðir að hluti stjórnar­þingmanna mun ekki styðja við það. Því gerir Þórdís ekki ráð fyrir að Alþingi muni afgreiða málið.

Hleypur á milljörðum

Neytenda­samtökin og ýmsir aðrir hafa gagnrýnt frum­varpið harðlega og sagt það fela í sér að ferða­skrifstofur fái vaxtalaus lán hjá neytendum án þess að þeir hafi nokkuð um það að segja. Breki Karls­son, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, sagði við Kjarn­ann í maí að þetta virtist vera „default“-still­ingin hjá stjórn­völd­um, neyt­endur geti átt sig, en fyr­ir­tækj­unum verði að hjálpa. Neyt­enda­sam­tökin hafa fengið inn á sitt borð stór­auk­inn fjölda kvart­ana og ábend­inga frá neyt­endum sem telja á sér brotið eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hófst.

Breki sagði í Kast­ljósi skömmu áður að Neyt­enda­sam­tökin hefðu giskað á að féð sem íslenskir neyt­endur ættu inni hjá íslenskum ferða­skrif­stofum væri á bil­inu 1,5-2,5 millj­arðar króna. Hann sagðist hafa fulla samúð með fyr­ir­tækj­un­um, en neyt­endur ættu ekki að þurfa veita fyr­ir­tækjum vaxta­laus lán til þess að verja eigið fé þeirra í gegnum hremm­ing­arn­ar. Þeir glími nefni­lega líka við lausa­fjár­vanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár