Trump kærir til áfrýjunardómstóls – Hafnað umsvifalaust

Komubann Trumps Bandaríkja­forseta var fellt úr gildi með dómi alríkis­dómstóls í Washington ríki. Niður­stöðunni hefur nú verið áfrýjað til áfrýjunar­dómstóls.

Bandaríska dómsmála­ráðuneytið er búið að áfrýja bráðabirgða­banni alríkis­dómstóls í Washingtonríki gegn tíma­bundnu ferða­banni íbúa sjö landa til Banda­ríkjanna. Bandarísk stjórn­völd felldu tilskipunina úr gildi í gær, eftir að hafa metið áhrifin af niður­stöðu dómstólsins í Washington.

Áfrýjunar­dómstóllinn hefur hins vegar strax hafnað áfrýjuninni, samkvæmt frétt breska ríkis­útvarpsins BBC.

Að sögn talsmanns utan­ríkis­ráðuneytisins í Washington verður enginn stöðvaður við komuna hafi hann gilda vegabréfs­áritun.

Bannið náði til fólks frá Jem­en, Sómal­íu, Líb­íu, Íran, Írak, Súdan og Sýr­lands og gilti í 90 daga. Komu­bann Trumps nær til sjö þjóða þar sem múslima­trú er í meiri­hluta meðal íbúa, og hafa tug­þús­undir Banda­ríkja­manna orðið fyrir áhrifum vegna þess.

Það sama má segja um háskóla­nema, starfs­fólk fyr­ir­tækja sem á erindi til Banda­ríkj­anna og þá sem eru með tvö­falt rík­is­fang.

Donald Trump fór hörðum orðum um dómarann og úrskurð hans sem hann sagði að væri ógn við þjóðar­öryggi.

Síðar í kvöld sagði hann að þar sem banninu hafi verið aflétt af dómara geti og hættulegt og vont fólk komið til Banda­ríkjanna. Ákvörðunin sé ömurleg, og hefur hann farið mikinn á Twitter svæði sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár