Komubann Trumps fellt úr gildi – Talar um „svokallaðan dómara“

Komubanni á sjö ríki þar sem múslimatrú er í meirihluta er í uppnámi.

Bandarísk stjórn­völd felldu í dag úr gildi umdeilda tilskipun Donalds Trumps forseta sem bannaði fólki frá sjö löndum að koma til Banda­ríkjanna næstu níutíu daga. Þetta var gert eftir að alríkis­dómstóll í Washington ríki - Western District of Seattle - dæmdi á þá leið að bannið væri ólöglegt og stæðist ekki stjórnar­skrá Banda­ríkjanna.

Það voru Seattle borg, Washington ríki, með aðstoð lögmanna frá Amazon og Microsoft, sem stóðu að málsókninni sem beindist beint gegn Donald Trump og tilskipun hans.

Fyrstu viðbrögð stjórn­valda í Banda­ríkjunum voru þau, að niður­staða dómstólsins skipti engu máli, en annað hljóð var komið í skrokkinn nokkrum klukku­tímum síðara. Niður­staðan var skýr og það var ekki mögulegt að stinga henni ofan í skúffu og halda áfram.

Nú hefur talsmaður utan­ríkis­ráðuneytisins í Washington staðfest þetta við frétta­menn. Að hans sögn verður enginn stöðvaður við komuna hafi hann gilda vegabréfs­áritun, samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal.

Alríkis­dómari í Washingtonríki lögbann á tilskipunina, sem hann sagði að stríddi gegn lögum landsins . Donald Trump fór í dag hörðum orðum um dómarann, James Robart, og úrskurð hans sem hann sagði að væri ógn við þjóðar­öryggi. Á Twitter talaði hann um „svokallaðan dómara“.

Bannið náði til fólks frá Jemen, Sómalíu, Líbíu, Íran, Írak, Súdan og Sýrlands og gilti í 90 daga. 

Komubann Trumps nær til sjö þjóða þar sem múslimatrú er í meirihluta meðal íbúa, og hafa tugþúsundir Bandaríkja­manna orðið fyrir áhrifum vegna þess. Það sama má segja um háskóla­nema, starfs­fólk fyrir­tækja sem á erindi til Banda­ríkjanna og þá sem eru með tvöfalt ríkisfang. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár