Ólafur telur enga ástæðu til að hræðast lokun álversins í Straumsvík

Doktor í hagfræði hvetur Íslendinga til þess að láta sér detta eitthvað sniðugt í hug varðandi hvað gera eigi við orkuna.

Ólafur Margeirsson
Ólafur Mar­geirs­son Mynd: Bára Huld Beck

Ólafur Margeirsson, doktor í hagfræði, segir í stöðu­uppfærslu á Facebook að engin ástæða sé til að „panikka“ þótt álverið í Straumsvík loki.

Ástæða skrifanna er að fram hefur komið í fréttum að Lands­virkjun eigi nú í sam­tali við Rio Tin­to, eig­anda álvers­ins í Straums­vík, en fyr­ir­tækið til­kynnti í vikunni að það ætl­aði að hefja „sér­­staka end­­ur­­skoðun á starf­­semi álver­s­ins í Straum­s­vík til að meta rekstr­­ar­hæfni þess til fram­­tíð­­ar­.“

Ólafur lætur fylgja með töflu með útflutningi á Íslandi en hann bendir á að Straumsvík sé að baki sirka 20 prósentum af grænu línunni – sem merkir ál og álafurðir.

„Athugið að til að geta flutt út um 220 milljarða af áli þarf að flytja inn aðföng (t.d. súrál) að andvirði 100 milljarða. Og sé miðað við hlutfalls­lega stærð Straums­víkur af heildar­áliðnaðinum á Íslandi (20%) má geta sér til um að innlendur kostnaður Straums­víkur (sem eru tekjur fyrir­tækja, starfs­manna og hins opinbera á Íslandi) sé um 15 milljarðar á ári. Þetta er byggt á tölum frá Samtökum Álframleiðenda á Íslandi,“ skrifar hann.

Landsvirkjun mun finna aðra kaupendur að orkunni

Þess vegna segir hann að engin ástæða sé til að óttast þótt Straumsvík loki, 15 milljarðar á ári sé rétt um hálft prósent af árlegri lands­framleiðslu.

„Og Lands­virkjun mun með tíð og tíma finna aðra kaupendur að orkunni – fyrir utan að ef móðurfélags­ábyrgðin á raforku­samningnum er virk er tap Lands­virkjunar takmarkað og hún getur, í raun, selt sömu orkuna tvisvar (einu sinni til álvers sem ákveður síðar að láta sig hverfa áður en raforku­samningurinn rennur út en móður­félagið þarf að borga og svo aftur til nýs kaupanda sem t.d. byggir gróðurhús eða einhvern annan fjandann á svæðinu/annars staðar).“

Hann hvetur því fólk frekar til þess að láta sér detta eitthvað sniðugt í hug varðandi hvað eigi að gera við orkuna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár